Dagsbrún - 01.11.1989, Blaðsíða 37
ORLOF
Lágmarksorlof skal vera 24 virkir dagar. Orlofsfé skal vera 10,17% af
öllu kaupi, hvort sem er fyrir dagvinnu eöa yfirvinnu. Um orlof fer aö
öðru leyti eftir ákvæöum laga um orlof.
Verkafólk, sem unnið hefur 10 ár í sama fyrirtæki skal eiga rétt á orlofi
í 25 virka daga og orlofsgreiðslum sem nema 10,64%. Þetta gildir frá
upphafi næsta orlofsárs eftir aö ofangreindum starfstíma er náð.
LAUSAR VIKUR í ORLOFSHÚSUM
Frá og meö 1. október er aðeins opiö í ölfusborgum, Akureyri og
lllugastööum.
HÁLF OG HEIL DAGLAUN
Fyrir hvern byrjaöan vinnudag greiðast hálf daglaun og full daglaun sé
unnið meira en hálfan daginn, og gildir þaö jafnt virka daga sem helga.
LÁGMARKSHVÍLD
Hafi verkamaður unnið samfellt meira en 16 klukkustundir aö meðtöld-
um matar- og kaffihléum, skal hann fá minnst 8 klst. samfellda hvíld án
frádráttar á föstum dagvinnulaunum.
Verkamenn skulu hvílast 10 klst. Séu þeir hins vegar sérstaklega
beönir um aö mæta til vinnu áöur en 8 klst. hvíld er náð, skal greiða yfir-
vinnukaup auk fastra dagvinnulauna.
Þegar um slíkt er að ræöa á laugar- og sunnudögum skal auk unnins
tíma greiða 4 klst. dagvinnulaun, sé unnið til hádegis, en 8 klst. sé ein-
nig unnið eftir hádegi.
Að öðru leyti gildir samkomulag um framkvæmd hvíldartíma og frí-
tímaákvæða laga nr. 46/1980.
37