blaðið - 05.08.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaðiö
Flest slys eldri borgara
siasaðan verða á heimilum þeirra ►
sjómann
Björgunarsveitin Víkverji frá
Vík var kölluð út um hádegi
í gær til að sækja slasaðan
sjómann um borð í bát sem
staddur var rétt fyrir utan
Vík. Notaði björgunarsveitin
hjólabát til að sækja mann-
inn og var læknir með i för.
Sjúkrabíll tók við manninum
þegar í land var komið og
kom honum á sjúkrahús.
Sjómaðurinn hafði feng-
ið vír í andlitið og kallaði
skipstjóri bátsins eftir aðstoð
í kjölfarið. Maðurinn var
ekki alvarlega slasaður.
Davíð til
Japans
Davíð Oddson, utanríkisráð-
herra, mun leiða viðskiptasendi-
nefnd til Japans í september
næstkomandi. Gert er ráð
fyrir að ferðin verði farin 12.-19.
september en hún er að sögn
Vilhjálms Guðmundssonar,
forstöðumanns, sniðin bæði
að þeim fyrirtækjum sem eru
þegar í viðskiptum á svæðinu
sem og þeim sem vilja hefja
samstarf eða markaðssókn inn
á þennan markað. Einnig henti
hún þeim aðilum sem tengjast
þróunarstarfi, fjármögnun og
rannsóknum. Fyrirkomulagið
verður þannig að skipulögð
verður viðskiptaráðstefna, lítil
sýning, fyrirtækjastefnumót
og móttaka á hóteli í Tókýó
og mögulega einnig í Nagoya
en þar fer fram heimssýn-
ingin Expo 2005 sem mun
ljúka síðar í þeim mánuði.
Tæplega 66% allra slysa á eldri
borgurum árið 2003 urðu á eða
við heimili þeirra samkvæmt nýrri
skýrslu frá Landlæknisembættinu.
Þar kemur fram að tæp 44% slysa
einstaklinga sem eru 65 ára eða
eldri eiga sér stað inni á heimilum
og rúm 22% við heimili. Svo virðist
sem setustofa og svefnherbergi séu
hættulegustu herbergin í húsinu því
samkvæmt skýrslunni verða flest
heimilsslys þar, eða tæp 41%. Segja
skýrsluhöfundar að það komi ekki á
óvart þar sem þessi herbergi séu þau
sem fólk eyði hvað mestum tíma í.
Fall algengasta orsök slysa
Algengasta orsök slysa sem aldrað-
ir verða fyrir er að fólk hrasar eða
dettur. Rúmlega 67% allra slysa hjá
umræddum aldurshópi eiga sér stað
af þeirri ástæðu. Áverkar af þessum
slysum eru oftast á höfði en næst oft-
ast á úlnliði eða hendi.
Næst algengustu slys á einstak-
lingum á umræddum aldri eru um-
ferðarslys, en þau telja um 7% allra
slysa. Vinnuslys eru síðan í þriðja
sæti en tæp 5% slysa eldri borgara
eru vinnutengd.
Öldruðum Qölgar hratt
Það vekur sérstaka athygli 1 skýrsl-
unni að tæplega 100 einstaklingar
mjaðmarbrotnuðu árið 2003.
Full ástæða er til að taka málið
alvarlega þar sem slys á öldruðum,
bæði körlum og konum, eru hlut-
fallslega algengari en hjá öðrum hóp-
um í samfélaginu. Með hækkandi
aldri eykst einnig hætta á meiðslum,
brot eru lengur að gróa, líkur aukast
á innlögn á sjúkrastofnun auk þess
sem dvalartíminn þar er að jafnaði
lengri en hjá þeim sem yngri
eru.
Ennfremur
rétt að
er
hafa
huga
a ð
í
öldruðum fer nú hratt fjölgandi í
samfélaginu þannig að slys eldra
fólks munu á næstu árum óg áratug-
um, ef ekkert verður að gert, verða
enn stærra vandamál en það er nú.
í mannfjöldaspá Hagstofu Islands
er gert ráð fyrir að landsmönnum
fjölgi um 14% á næstu tuttugu árum,
en að á sama tíma muni einstakling-
um yfir 65 ára aldri fjölga um 68%. í
dag er hlutfall íbúa yfir 65 ára
aldri tæp 12% en verð-
ur orðið rúm-
lega 17% eft-
ir tuttugu
ár.
lotto.is
Bygging
álvers stöðvaðist í fjóra
Vilja draga úr
notkun magalyfja
Tryggingastofnun ríkisins og
Landlæknisembættið munu
í haust hefja átak með það að
markmiði að draga úr notkun
magalyija. Þetta á að gera
með beinni fræðslu lækna. I
tilkynningu frá Tryggingastofn-
un um málið segir að magalyf
séu meðal kostnaðarsömustu
lyfjaflokkanna en kostnaður
TR vegna meltingarfæra- og
efnaskiptalyfja nam rúmum
milljarði króna á síðasta ári.
Kostnaðurinn jókst um 5%
á milli áranna 2003 og 2004
meðan lyfjanotkunin jókst um
10%. Markmið fræðslunnar er
að lyfin verði notuð á hófsam-
ari og réttari hátt.Ætlunin er
að beita svipuðum aðferðum
í fræðsluátajcinu og lyfjaiðnað-
urinn notar í markaðssetningu
lyfja en með öfugum formerkj-
um, þ.e. að freista þess að draga
úr neysluniji en ekki auka hana.
tíma
Tólf manna hópur mótmælenda fór
inn á lokað byggingarsvæði álvers
Alcoa á Reyðarfirði um hádegi í
gær. Þrír úr hópnum gerðu sér lít-
ið fyrir og klifruðu upp í 40 metra
háa byggingarkrana á svæðinu og
dvöldu þar um nokkra stund.
Aðalverktakinn á svæðinu, al-
þjóðlega verktakafyrirtækið
Bechtel, greip þegar til ráðstafana
þegar til mannanna sást og stöðv-
aði vinnu á öllu svæðinu. Að sögn
Björns S. Lárussonar, upplýsinga-
fulltrúa Bechtel, er ástæðan sú að
ekki var vitað hvað mótmælend-
um gekk til og upp á hverju fólkið
gæti tekið. Aðspurður um hvort
starfsmenn hafi verið í hættu
sagði Björn:
„Við vissum það ekki og því var
þegar tekin ákvörðun um að rýma
svæðið.“
Eins og áður sagði klifruðu
þrír af mótmælendum upp í bygg-
ingarkrana á svæðinu en það
gerðu þeir upp úr klukkan 10 í
gærmorgun. Tveir af þeim sem
fóru upp í krana á svæðinu komu
niður úr þeim um klukkan tvö í
gær. Einn dvaldi hinsvegar uppi
í sínum krana fram undir klukk-
an fjögur. Vinna tafðist nokkuð
vegna uppátækisins en hætt var
að vinna um klukkan 11 og hófst
hún ekki að nýju fyrr en uppúr
klukkan hálf fjögur.
Allir mótmælendur voru í gær
handteknir af lögreglunni á Eski-
firði og færðir til yfirheyrslu.
Alcoa sendi hinsvegar frá sér yf-
irlýsingu í gær um að mótmæl-
endur yrðu ekki kærðir vegna
atviksins. ■
Nytt blað fré Disney,
stútfullt af sögum, þrautum
og föndurverkefnum fyrir
ungar prinsessur.
Sandalar
f ■ •
Piparsveinar og
-meyjar íslands
Lokaundirbúningur fyrir sjónvarps-
þáttinn Bachelor er í fullum gangi
og er nú verið að taka viðtöl við
hugsanlega þátttakendur. Saga film,
sem framleiðir þáttinn fyrir Skjá
einn, hefur farið í ferðalag um land-
ið til þess að finna þátttakendur á
landsbyggðinni og hefur nú endað
á Nordica hótelinu þar sem þeir
sem sýnt hafa áhuga af höfuðborgar-
svæðinu eru teknir í viðtal. Að sögn
Maríönnu Friðjónsdóttur hjá Saga
film hefur allt gengið mjög vel og
það komið á óvart hversu mikið
gæðafólk það er sem sækir um að
koma í þáttinn. Það sé skemmtilegt
fólk með skemmtilegan bakgrunn.
Sýningar á svokölluðum leitar-
þætti, þar sem farið er yfir forgrunn
þáttanna, hefjast um miðjan sept-
ember en Bachelorinn sjálfur mán-
uði seinna.