blaðið - 05.08.2005, Side 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaöið
i i-y
|| mmmm*
1^^ # ’r"
Þúsundir mótmælenda gengu um götur Hiroshima í Japan í gær en á morgun veröur þess minnst aö 60 ár eru liðin frá því að fyrstu
kjarnorkusprengjunni var varpað á borgina. 140 þúsund íbúar létu lífið og báru mótmælendurnir spjöld þar sem tilraunum með kjarn-
orkuvopn var mótmælt.
11 ára stúlka sýknuð
Maribel Cuevas, ellefu ára stúlka frá
Fresno í Kaliforníu, sem var ákærð
fyrir að henda steini í dreng sem
hafði strítt henni með vatnsblöðr-
um, var í gær sýknuð af ákæru um
að hafa beitt banvænu vopni. Lög-
regla gerði mikið úr málinu á sínum
tima og sendi meðal annars marga
lögreglubíla á vettvang, auk þess
sem þyrla sveimaði yfir vettvangi.
Málið hefur vakið mikla athygli í
Bandaríkjunum en mörgum finnst
of langt gengið að draga stúlkuna
fyrir dóm fyrir að hafa misst stjórn
á skapi sínu og svarað fyrir sig. Stúlk-
an var handtekin í aprfl vegna máls-
ins og þurfti hún að dúsa í fangelsi
í nokkra daga og síðan að sæta ör-
yggisgæslu á heimili sínu í nokkrar
vikur. Cuevas var loks sýknuð í hér-
aðsdómi Fresno í gær en var gert að
hitta piltinn sem hún henti steinin-
um í og fara yfir málin með honum.
Jafnframt var tilkynnt að málið yrði
hugsanlega tekið upp aftur ef stúlk-
an hagaði sér ekki vel. ■
Enn í stofufangelsi
Bandaríska viðskiptadrottningin
Martha Stewart þarf að dúsa heima
við f þrjár vikur til viðbótar en hún
þurfti að afplána dóm og sitja síðan
í stofufangelsi í fimm mánuði. Þenn-
an dóm fékk hún eftir að hún nýtti
sér innherjaupplýsingar en hún
seldi bréf í erfðafræðifyrirtækinu
Imclone rétt áður en þau fellu í verði.
Stewart rekur risafyrirtækið Mart-
ha Stewart Omnimedia, en hún er
þekkt fyrir markaðssetningu á all-
skyns vörum sem tengjast heimili
og heimilishaldi. Sjálf var hún dag-
legur gestur á heimilum Bandaríkja-
manna í mörg ár þar sem hún gaf
þeim góð ráð. Talið var að Stewart
ætti jafnvel möguleika á að losna
úr stofufangelsinu í vikunni en yf-
irvöld í New York segja að svo fari
ekki. Samkvæmt dómi má Martha
Stewart aðeins eyða 48 stundum
á viku utan veggja heimilisins og
Martha Stewart
þann tíma á hún að nota til að kaupa
inn til heimilisins, fara til lækna ef
með þarf og sækja kirkju. ■
Minni
hagvöxtur
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur
lækkað spá sfna um hagvöxt í Evr-
ópu og segir að hátt olíuvérð og hátt
gengi evrunnar hafi dregið úr eftir-
spurn á almennum vörum. Verð á
hráolíu sló fyrra met í fyrradag og
sér ekki fyrir endann á þeirri hækk-
unarhrinu sem verið hefur undan-
farna mánuði. Alþjóða gjaldeyris-
sjóðurinn spáir því að hagvöxtur
í evruríkjunum verði 1,3% á þessu
ári en í apríl spáði sjóðurinn þvf að
hagvöxtur yrði 1,6%. Þá hefur hag-
vaxtarspá fyrir næsta ár verið lækk-
uð - gert er ráð fyrir 1,9% hagvexti
í stað 2,3% áður. I skýrslunni segir
að markaðir í Evrópu hafi verið sein-
ir að bregðast við breyttu ástandi á
heimsmarkaði og að eftirspurn eftir
helstu nauðsynjavörum til heimilis-
ins hafi verið í lágmarki og því hafi
stórfyrirtæki verið treg til að auka
framleiðslu sína. ■
Fyrrverandi heimsmethafi í 100 metra
hlaupi, Maurice Green, kom fram á blaða-
mannafundi f Helsinki (Finnlandi í gær.
Green undirbýr sig nú fyrir heimsmeist-
aramót Alþjóða frjálsfþróttasambandsins
sem haldið veröur f borginni 6.-14. þessa
mánaðar.
Nýtt blað komið á næsta sölustað
Áskríftarsími 586-8005
r:*