blaðið - 05.08.2005, Side 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaöi6
fl,
lífe'íísíir.-Bí
II I I; :l!
MÍ! I
m
£ JíjSa**?® ,oss *51|
pil-msiissUli
S s8S**,!iil3S*®£ I
P:is:íiíHs:<<l
Í3S!»is:XSB
e íaa,*®S5Sa»a**
ÍíSíSi”»“>;;“
vSí!í!'5eí!:í:
Miklar öryggisráðstafanir voru í Lundúnum f gær vegna hræðslu við frekari hryðjuverk.
Þessir lögregluþjónar fylgdust vel með gangi mála í Canary Wharf hverfinu í austur
Lundúnum. I gær voru fjórar vikur frá þvf að hryðjuverk voru framin f Lundúnum sem
kostuðu fjölmarga lífið og var orðrómur á kreiki um að verið væri að undirbúa frekari
árásir.
Hótar árásum
í Lundúnum
Ayman al-Zawahri, næst æðsti mað-
ur A1 Qaeda samtakanna, segir að
stefna Tony Blairs i málefnum íraks
muni kosta Breta fleiri mannslíf. í
myndbandi sem gert var opinbert
í gær beinir hann spjótum sínum
líka að Bandaríkjamönnum og segir
að A1 Qaeda muni halda áfram bar-
áttu sinni gegn hermönnum þeirra
í Irak svo lengi sem landið er her-
numið. „Stefna Blairs kostaði ykkur
mörg mannslíf í miðborg Lundúna
og mun valda ykkur meiri eyðilegg-
ingu“, segir Zawahri. „Það sem þið
hafið séð i Bandaríkjunum og í Afg-
anistan er aðeins byrjunin, aðeins
fyrstu mannslífin sem þið munuð
tapa. Ef ekki verður stefnubreyting
munu ennþá fleiri árásir verða gerð-
ar“, segir hann. Hryðjuverkaleiðtog-
inn segir að Osama Bin Laden hafi
boðið Vesturlöndum sáttahönd en
henni hafi ekki verið tekið. „Okkar
blessaði sheik Osama hefur boðið
sættir svo að þið getið yfirgefið
lönd múslima. Hann segir að ekki
sé hægt að fá frið og öryggi fyrr en ingu sinni sem sjónvarpsstöðin A1
málefni Palestínu séu leyst og að her- Jazeera birti. ■
ir ykkar yfirgefi land Múhammeðs
spámanns", segir Zawahri í yfirlýs-
Lést eftir að
eldingu laust niður
Fimmtán ára skáti í Utah í Bandaríkj- með brunasár. Læknir sem var með arinnar laust eldingunni niður í tré
unum lét lífið þegar að eldingu laust hópnum sagði að skyndilega hefði rétt hjá kofa piltanna og féll tréð á
niður rétt hjá trjákofa sem hann mikil birta komið og hvellur heyrst í kofann og dró með sér rafmagns-
dvaldi í. Atvikið átti sér stað í Uinta kjölfarið. Sjálfur reyndi hann í einn línu. Straumur komst þannig í nagla
fjöllum þar sem drengurinn var í úti- og hálfan tíma að halda drengnum á sem voru í kofanum. Piltarnir voru
legu ásamt öðrum skátum. Þrjá aðra lífi áður en hjálp barst, en án árang- allir sofandi i einu horni kofans þeg-
pilta þurfti að flytja á sjúkrahús urs. Að sögn KUTV sjónvarpsstöðv- ar slysið varð. ■
RISAUTSALA A
REIÐHJÓLUM!
20-45% afsláttur af öllum reiðhjólum.
Útileiktæki með 30% afslætti.
Mikið úrval reiðhjóla fyrir alla aldurshópa:
þrihjól, barnahjól, herra og dömuhjól.
AURKIDI
^www.markid.is • Sfml: 553 5320 • Ármúla 40
Bjartsýn á
framhaldið
Eileen Collins, leiðangursstjóri um
borð í geimskutlunni Discovery, seg-
ist bjartsýn á að ferðin til jarðar muni
ganga vel fyrir sig. Eins og kunnugt
er losnaði einangrun á skutlunni við
flugtak og höfðu menn af því nokkr-
ar áhyggjur. Viðgerð gekk vel í gær
og sérfræðingar NASA, bandarísku
geimferðastofnunarinnar, segja að
ekkert sé að óttast. „Við erum búin
að fara yfir alla hluti”, segir Collins.
,Ég hefði í fyrsta lagi aldrei farið í
þessa ferð nema vera viss um að
öll öryggisatriði væru í lagi.“ Einn
geimafaranna um borð í Discovery
fór í geimgöngu í gær til að fjarlægja
einangrunina sem losnaði og lýsti
Collin upplifun hinna geimfaranna
af þessu í samtali við AP fréttastof-
una. „Við vorum öll spennt að fylgj-
ast með Stephen og þegar honum
tókst að losa einangrunina þá klapp-
aði ég saman höndum og við hrópuð-
um öll húrra.“ ■
Ken Livingstone borgarstjóri Lundúna
Vill hermenn heim
Ken Livingston, borgarstjóri Lund-
úna, vill að breskar hersveitir í írak
verði kallaðar heim sem allra fyrst.
Hann telur að slíkt myndi leiða til
þess að hætta á hryðjuverkaárásum
á Lundúnir myndi minnka til muna.
Livingston skrifaði grein í The Gu-
ardian um málið og segir meðal
annars að Bretar eigi að umgangast
jafnt lögreglu sem múslima með
virðingu. Málefni íraks og hryðju-
verk í Lundúnum tengist og því sé
ekki hægt að tala um eitt en sleppa
öðru. Borgarstjórinn hefur oft gagn-
rýnt Tony Blair forsætisráðherra
harðlega og í blaðagreininni segir
hann:„Ef innrásin í Irak var réttlæt-
anleg þá er hægt að færa rök fyrir
því að Bretar verði líka að taka á sig
þær fórnir sem fylgja í kjölfarið.” Og
hann bætir við:„Astæðan fyrir því
að Bandaríkjamönnum hefur ekki
tekist að koma á friði í írak hefur
að gera með sama vandamál og við
eigum við að etja í löggæslumálum
hér á landi: Að koma upplýsingum
á framfæri.” ■