blaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 18
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 ! Ma6Í6
Argerö 2005
Rockadile 26
ÁrgeröZnœ
Switchback
M61 álsielllshrain ?1 pífar IV bremsur I
Argerazaœ
Motivator Mini
Argera EDD5
Moto Micro 16
CAP
k
alvöru fjallahjól
FJALLAHJÓLABÚÐIN
) \ FAXAFENI 7
S:'5200 200 MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU. KL. 10-16
www.gap.is
18 I HEILSA
Hlaupið til góðs
Reykjavíkurmaraþon verður hald-
ið í 22. sinn laugardaginn 20. ág-
úst. Fjöldi þátttakenda hefur þegar
skráð sig til leiks og á fimmtahundr-
að manns hafa verið skráðir í und-
irbúningshóp frá því í vor og notið
ýmiss konar leiðbeininga. Maraþon-
ið verður sífellt vinsælla en í fyrra
var tekið upp á þeirri nýbreytni að
hvetja hlauparana áfram með lif-
andi tónlist. Það mæltist vel fyrir og
því verður tónlistarflutningur efld-
ur í ár. Á rásstað, í Lækjargötu, mun
hljómsveitin 1 svörtum fötum halda
uppi stemmningu á meðan á hlaup-
inu stendur og við hlaupaleiðir mun
karlakórinn Fóstbræður og fleiri
hvetja hlauparana til dáða með söng
og hljóðfærablæstri. Almenningur
er hvattur til að gera slíkt hið sama
og segir Hjördís Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri hlaupsins, að
skemmtilegast væri að fá sem flesta
með í hlaupið þetta árið. Hægt er að
hlaupa heilt eða hálft maraþon, 10
km hlaup, 3 km hlaup eða skemmti-
skokk sem Hjördís segir að henti
vel þeim sem ekki eru i neinni sér-
stakri þjálfun. Fjöldi manns tekur
einnig þátt í Reykjavíkurmaraþoni
fyrir góðan málstað. 1 ár er von á
250 hlaupurum frá samtökum syk-
ursjúkra í Kanada en hefð hefur
skapast fyrir því að hlaupa til góðs.
Sífellt fleiri íslendingar hlaupa reglu-
lega og margir lýsa því sem svo að
líkaminn verði háður því að komast
í þessa hressilegu hreyfingu. ■
rST.YiRKURBujiHÁL'Dl^ENDURHEIMTriBU&ÐSyiKURll^jAF.NyÆGI
lENGINN
HVÍTUR’
^SYKUR
WWW.'UEP.P.IN/ÍS]
HAGKAU
Tekur þátt í fyrsta sinni
Hlaup verður sífellt vinsælla
hér á landi og margir taka
þátt í reglulegum æfing-
um hlaupahópa. Fjölmargar góðar
hlaupaleiðir eru í Reykjavík og í
öllum hverfum koma saman hóp-
ar sem sjá má hlaupa um bæinn á
öllum tímum dags. Um hundrað
manna hópur hefur hist tvisvar í
viku frá því í vor til að æfa fyrir
Reykjavíkurmaraþonið. Æfingarnar
fara fram undir handleiðslu þjálfara.
Berglind Sigurðardóttir er ein þeirra
sem æfir sig reglubundið fyrir mara-
þonið. „Ég er að taka þátt í fyrsta
sinn þetta árið. Ég var alltaf starfs-
maður þarna þegar ég var yngri og
langaði alltaf að taka þátt en lét aldr-
ei verða af því“, segir Berglind.
„Ég var í íþróttum þegar ég var
yngri en svo komu börnin og þá
dró úr hreyfingunni. Ég á langveik-
an son og þegar hann var veikur
hékk ég bara inni og gerði ekkert
svo þetta var æðislegt að komast í
svona hóp til að fá hvatninguna og
innblástur”, segir Berglind. Hópur-
inn hittist tvisvar í viku og tekur þá
þrekþjáfun, brekkuspretti og lengri
hlaup.
Berglind segist alltaf hafa reynt
að vera dugleg að fara út að hlaupa
og hreyfa sig en þegar hún var ein
í átakinu var auðvelt að hætta og
vera bara heima. „Núna held ég allt-
af áfram og er mikið ákveðnari en
ég var áður en ég byrjaði í hópnum.
Það kemur einhver baráttuandi í
mann þegar fleiri eru saman. Mað-
ur hleypur hraðar til að dragast ekki
aftur úr“, segir Berglind og hlær.
Núna hefur hópurinn æft saman í
tíu vikur og tvær vikur eru til stefnu.
Berglind segir það líka mikilvægt að
æfa sjálfur á milli þess sem hópur-
inn hittist til að viðhalda þolinu.
„Ég hef alltaf verið 1 einhverri lík-
amsrækt inn á milli svo ég bý að
þjálfuninni. Ég æfi til dæmis hand-
bolta með „old girls“ sem er rosalega
skemmtilegt. Það er gamall draum-
ur að taka þátt í maraþoni og núna
m
ri g|?gp!
er ég að láta hann rætast."
Það hefur verið áberandi í gegn-
um tíðina að fólk kemur í miklu
mæli erlendis frá til að taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu. Berglind
segir maraþonið trekkja útlendinga
að og að þeir hugi fyrr að því en Is-
lendingar að skrá sig.
„íslendingar eru yfirleitt seinir að
BlaðiO/SteinarHugi
skrá sig í maraþonið, bíða alltaf með
það fram á síðustu stundu. Biða eft-
ir veðurspánni líklega. Útlendingar
koma hingað i sérferðir og hlaupa í
hvaða veðri sem er. Svo má heldur
ekki gleyma því að íslendingar fara
líka út til að taka þátt í maraþonum,
það er að verða æ algengara", segir
Berglind og bendir einnig á að yngra
fólk sé farið að taka þátt í hlaupum í
meira mæli en áður.
„Ég hef einu sinni hlaupið 10 kíló-
metra og þá hljóp ég undir einum
tíma sem er ágætt held ég bara. Alla-
vega miðað við að það var í fyrsta
sinn og ég var ekki í rosalega góðu
formi. Núna bara stefni ég á að
klára á betri tíma og á enn betri
tíma á næsta ári“, segir Berglind
full tilhlökkunar fyrir maraþonið
22. ágúst. ■
katrin.bessadottir@vbl.is