blaðið - 05.08.2005, Side 21
blaöið FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST2005
VIÐTAL I 21
99.......................................
„Meðal borgarfulltrúa R-listans erþví miður
enginn, alls enginn, sem gæti leyst úr læðingi
fylgisvakningu á borð við þá sem varð 1994."
þá sjaldan hann leyfir fjölmiðlum
aðgang að sér. Það er full fljótt að
kasta rekunum á pólitískan „karríer“
don Alfredos.”
Barnaleg þrákelkni
Þá komum við að Sjálfstœðisflokkn-
um i borginni þar sem menn keppa
um forystusœti.
„f sjálfstæðisbúðunum vilja allir
ver'ann. Borgarstjóradjobbið spegl-
ast bæði í Vilhjálmi, Gísla Marteini
og Hönnu Birnu og sjálfsagt fleir-
um. Hinir djúpúðgu rannsóknarar
miðlanna hafa ekkert athugavert
fundið við þá pólitísku spillingu að
stjórnarmeirihlutinn í útvarpsráð-
inu hefur látið Gísla Martein dingla
með skemmtiþátt, einhvers konar
„Séð og heyrt“ sjónvarpsins á besta
útsendingartíma og byggja upp í ró-
legheitum notalega ímynd af jákvæð-
um stráki, greindum og hvikum í
kollinum, - og þegarþví er lokið bæt-
ir Morgunblaðið við' í helgarútgáfu
sérstöku blaði sem er ekkert annað
en kosningastefnuskrá stráks. Þetta
er sannarlega ágætis markaðssetn-
ing á notalegri manneskju og skilar
honum kannski árangri meðal eldra
fólks í flokknum.
En spunameistarinn góði, Vil-
hjálmur Þ., er ekki búinn að segja
sitt síðasta orð og þótt viðkomandi
sé ansi grámóskulegur og lítt til
nútíma markaðssetningar fallinn,
munu margir áhrifamenn flokksins
styðja hann í baráttunni.
Borgarstjórnin í Reykjavík þetta
kjörtímabil hefur verið tvö ramm-
gerð virki - og Don Kíkóti syndandi
í virkisgröfinni: Öðrum megin R-
listinn og hinum megin Sjálfstæð-
isflokkur - og getur hvorugur hugs-
að sér að styðja góð málefni hins,
endalaus barnaleg þrákelkni hjá báð-
um aðilum.”
Ráðskast út um allt
Hvað segirðu um allt þetta peninga-
og bankatal sem dynur á manni dag-
inn út og inn. í gamla daga var lítið
talað um banka, nema kannski Seðla-
bankann en nú eru allir að tala um
banka. Botnarðu eitthvað í því tali
öllu saman?
„íslenskt samfélag er orðið svo hólf-
að og flókið að nú hefur enginn leng-
ur yfirsýn um allt samfélagið, nema
kannski tölfræðideildir Seðlabank-
ans og Hagstofunnar, en hjá þessum
opinberu stofnunum ríkja daufgerð
grámenni sem framreiða tölur en ná
ekki lengra. Hinsvegar hafa greining-
ardeildir bankanna mjög flottan og
kláran her fólks sem hefur puttana á
púlsinum. Seðlabankinn hefur mik-
ið til glatað formlegu valdi sínu og
nánast alveg hinu sálræna ægivaldi
sem fylgdi Jóhannesi Nordal. Núver-
andi talsmann bankans skortir allan
myndugleika að tala til fólks af stalli.
Ég sakna þess að heyra aldrei í Jóni
Tótubróður Sigurðssyni seðlabanka-
stjóra, það er strákur sem hefur for-
mat til að gera ýmsa góða hluti.
Fyrrum var þetta allt miklu ein-
faldara: Ríkið átti bankana, bank-
arnir áttu atvinnulífið, vinnuveit-
endurnir áttu fólkið sem vann. Yfir
öllu þessu trónuðu ríkisstjórnin og
alþingismennirnir. Bankarnir voru
hjarta þjóðarlíkamans, stjórnvöldin
voru heilabúið, öllum var þetta ljóst
- enda leyndi það sér ekki. Nú er bú-
ið að eyðiieggja þetta guðdómlega
„harmóní", nú ræður enginn yfir
öllu - ekki einu sinni Davíð, allir eru
að ráðskast útum allt. Kaos. Bank-
arnir orðnir einkaeign nokkurra
fárra og sumir segja meira að segja
alveg ægilegra „mafíóssa", blöðin
orðin minna og meira sjálfstæð og
vaða á skítugum skónum inn í einka-
líf fólksins, nema auðvitað ekki öðl-
ingsmogginn, sem heldur sínu stein-
runna jafnvægi, hvað sem á dynur.
Næstum því. Ráðherrarnir rassast
hver í sínu skoti, samráðið og verk-
stjórnin virðast liðin undir lok í rík-
isstjórninni. Allt lekur út um víðan
völl. Flestir ráðherranna eru komn-
ir með pólitíska hvíslara, kallaðir
aðstoðarmenn, sem oft koma fram
fyrir ráðherrana og reyna að mark-
aðssetja skoðanir húsbændanna í
fjölmiðlunum. Það virðist vera hægt
að markaðssetja allt, nema auðvit-
að ekki forsætisráðherrann og sam-
gönguráðherrann, meira að segja
Sigríði Önnu Þórðardóttur.
Löggjafarstarfið er orðið árum á
eftir þróun atvinnulífsins, sveigjan-
legir endurskoðendur og djúplærðir
lögfræðingaskarar tryggja fyrirtækj-
um starfsöryggi og ímyndarskapend-
ur úr hópi fyrrverandi fréttahauka
eru ráðnir til að halda á lofti réttri
ímynd.
Fjármálafyrirtækin og gildir fjár-
festar gleypa hvert fyrirtækið af
öðru, svo safnast verðbréfabörnin
saman fyrir framan sjónvarpsvélarn-
ar, 99% gráklæddir kallar á fertugs-
aldri, allir með sama stífpressaða fá-
lætisfasið og fara yfir talnadálkana
og hagnaðartölurnar. Hálsbindun-
um hefur meira að segja fækkað hjá
þessum hópi eftir að Hannes Smára-
son fór að stæla Jón Ásgeir.”
Búktal og bakferli
Erpólitíkin orðin verri en hún var?
„Stjórnmál höfða æ minna til al-
mennings. Margir hafa skömm á
búktalinu og bakferlinu í íslenskri
pólitík. Ættar- og vinatrén hafa
vaxandi vægi í flokkunum og ýms-
ir fyrrum líflegir og skemmtilegir
stjórnmálamenn hafa forðað sér á
hlaupum í faðm stjórnsýslunnar og
gerst þiggjendur þokkalegrar risnu
og iðka hégómalíf.
Stjórnmál eru frábær íþrótt, fal-
leg listaflétta, ef þau eru iðkuð af ein-
lægri sýn og jákvæðum heilindum.
En mikill hluti núverandi og fyrr-
verandi valdakynslóða hefur kom-
ið leiðu orði á þessa göfugu grein.
Imynd stjórnmálanna hefur liðið
fyrir persónulega hyglunaráráttu
valdamanna og -kvenna og þetta
litla ættartengsla- og vinasamfélag
virkar stundum líkt og maðksmogið
af barnalegri spillingu, en fjölmiðl-
arnir láta þetta flest framhjá sér
fara.“
Ertu ekki flokkspólitískur?
„Ég var „obbo svag“ fyrir Kvenna-
listanum á sínum tíma, en er í
verunni grenjandi blátt íhald með
vinstri slagsíðu og hef oftast kosið
blessaðan Sjálfstæðisflokkinn og
með vaxandi gleði undir Davíð.
Og við höfum átt stórmerka stjórn-
málamenn frá Heimastjórn: Öðling-
inn Hannes Hafstein, hinn slægvitra
skuggavald Jónas frá Hriflu, jöfnuð-
armanninn hægrisinnaða Bjarna
Benediktsson, framsýna hugsuðinn
Gylfa Þ. Gíslason, eldhugann Ein-
ar Olgeirsson, mælskusnillinginn
Magnús Kjartansson, sverðfiskinn
Ingibjörgu Sólrúnu - að ógleymdum
þeim ófyrirséðasta af þeim öllum,
Davið Oddsson og sannarlega gamla
ungmennið í hópnum, einlæga
prakkarann Steingrím J. Sigfússon."
kolbrun@vbl.is
sum og serium
Við rýmum til fyrir nýjum Ijósum pg serium,
þess vegna ef-u eldri týpur á|
|af öðrum Ijósumj
hálfvirði!
byggtogbúió
20% afsláttur
og serium
, Kringlunni
Smaralind 568 9400
554 7760
Ljósa- og seríubúðin þín