blaðið - 05.08.2005, Page 22
22 I SAMSKIPTI KYWJAWNA
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaöiö
Konur vilia setja i þvottavél
körlunum ekki treyst fyrir fatnaðinum
Störf heimilisins eru ekki síður mik-
ilvæg en önnur störf sem afla fólki
tekna. Það eru hins vegar ekki allir
á eitt sammála um verkaskipting-
una á þessum störfum heimafyrir.
Löngum hefur verið alhæft um að
konur sjái alla jafna meira um heim-
ilisverkin, nema þá þær sem sinni
ábyrgðarmiklum stöðum og þurfi
að leita sér utanaðkomandi aðstoð-
ar. Sitt sýnist að sjálfsögðu hverjum
og erfitt er að henda reiður á tölfræð-
ina í þessu samhengi en óhætt er að
segja að konur þrífi allavega fatnað
fjölskyldunnar. Komið hefur á dag-
inn að stærsti hluti kvenna setur í
þvottavél á sínu heimili og koma
karlarnir þar sjaldan nálægt.
Ingólfur V. Gíslason, félagsfræð-
ingur og starfsmaður Jafnréttisstofu,
segir að eftir því sem kannanir á
Vesturlöndum sýna þá sé þróun á
skiptingu heimilisstarfanna jafn-
ari með hverju árinu sem líður. Þó
standi þvottavélin sér á báti í þessu
samhengi en konur sjá að mestu
um þvottinn á heimilunum. „Það
er minnsta breytingin á klæðaþrif-
um en konurnar eru ríkjandi þegar
kemur að þvottavélinni. Hins vegar
virðist raunin vera sú að þær vilja
helst sjá um þvottinn og treysta jafn-
an ekki karlmönnunum fyrir því að
þvo fötin", segir Ingólfur en hann
gerði úttekt á heimilisstörfum árið
1997 og setti niðurstöður sínar í bók-
ina „Karlmenn eru bara karlmenn."
„Ég ræddi við 25 karlmenn, m.a.
um heimilisstörfin, og heildarniður-
staðan var sú að þeim væri kurteis-
islega ýtt til hliðar þegar kæmi að
þvottavélinni. Það erþað svið heimil-
isins sem konurnar vilja einna helst
sjá um sjálfar, ásamt kannski því að
ákveða klæðnað barnanna.“
Ingólfur vill meina að karlmenn
kunni upp til hópa á þvottavélina og
hafi margir þvegið þvott þegar þeir
hafi búið einir en það breytist þegar
kemur að sambúð við konu. „Eig-
inkonurnar koma oft í sambúðina
með það í farteskinu að karlmenn
séu kærulausari gagnvart fatnaði og
því vilja þær sjá um þvottinn sjálf-
ar. Ég talaði einmitt við einn sem
reyndar setti i vélina en það var eft-
ir að konan var búin að setja miða
á hverja fatahrúgu varðandi hitastig,
stillingu og fleira.“
halldora@vbl.is
STÓRÚTSALA!
20 - 80% AFSLÁTTUR
29.800,-
Verð áður: 42.600,-
Hægindastóll
Slitsterkt Microfiber áklæði
Litir: Ljósbrúnn, dökkbrúnn og blár
Premium svefnsófi
Microfiber áklæði (slitsterkt með óhreinindavörn)
Litir: Beige og Ijósbrúnt
67.950,-
Verð áður: 135.900,-
FULL BÚÐ AF HÆGINDASTÓLUM
OG SÓFUM Á ÓTRÚLEGU VERÐI
• Hægindastólar frá 15.800 - verð áður 59.800
• Svefnsófar frá 14.900 - verð áður 29.900
• 3ja sæta sófar frá 25.000 - verð áður 79.800
...OG FLEIRA OG FLEIRA! f
OPNUNARTÍMI
MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA.11-18
LAUGARDAGA...........11 - 16
SUNNUDAGA............LOKAÐ
SETTEHF • HLÍÐASMÁRA 14 • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI 534 1400 • SETT@SETT.IS
VtSA OG EURO
LÉIT RAÐGREIÐSLUR
Hver setur
i þvottavél
ina á þinu
heimili?
Katrín L. Rúnarsdóttir
Ég verð eiginlega að segja við
bæði. Ég hef verið að gera það
um þessar mundir en annars er
hann alveg jafn duglegur.
Sigurlaug Hilmarsdóttir
Ég geri það nú eiginlega alltaf,
Árnína Björg Einarsdóttir
Ég og það er einfaldlega vegna
þess að ég er einstæð móðir.