blaðið - 05.08.2005, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaöiö
- HelenctekurviðKR
Fyrrum A-landsliðsþjálfari
Islands I kvennaflokki, Helena
Ólafsdóttir, er tekin við sem
þjálfari meistaraflokks kvenna
hjá KR. íris Eysteinsdóttir sem
þjálfað hefur KR er komin í
barneignarfrí og Helena tók
við KR-liðinu í gærkvöldi í leik
gegn FH í Landsbankadeildinni.
Helena er gamalkunnur KR-ing-
ur og lék um árabil í framherja-
stöðu hjá liðinu en hún hefur
áður þjálfað hjá Val og svo
landsliðið. Það er því athygl-
isverð staðreynd að KR-ingar
hafa skipt um þjálfara í báðum
meistaraflokkum félaganna og
fyrstu leikir þeirra eru gegn FH.
En meistaraflokkur karla mætir
FH á sunnudaginn í Kaplakrika
og þar þreytir Sigursteinn
Gíslason frumraun sína sem
þjálfari meistaraflokks KR.
Figo til Inter
Samkvæmt spænskum fjölmiðl-
um í gær er portúgalski leik-
maðurinn að fara til ítalska liðs-
ins Inter. Figo, sem er 32ja ára
og hefur leikið með spænska
stórliðinu Real Madrid, skrifar
undir tveggja ára samning við
Inter. Samkvæmt fréttum fær
Figo um 350 milljónir íslenskra
króna í árslaun hjá Inter. Figo
kom til Real Madrid árið 2000 í
einni frægustu sölu allra tíma í
boltanum. Florentino Perez var
þá nýkjörinn forseti Real Madr-
id og hann og Figo notuðu
klásúlu í samningi leikmanns-
ins til að kaupa hann á metfé
frá Barcelona. Figo keypti þá
sjálfur samninginn og fram-
seldi síðan til Real Madrid.
Kaupverðið þá var um 5,6 millj-
arðar íslenskra króna og var
heimsmet. Figo verður
fjórði leikmaðurinn
sem kemur til Inter
á síðustu 12 mán-
uðum frá Real
Madrid. Hinir
eru Esteban
Cambiasso,
Santiago
Solari og
Walter *
Samuel.
Nevilletil Everton
David Moyes, framkvæmda-
stjóri enska úrvalsdeildarliðs-
ins Everton, náði í gær að festa
kaup á enska landsliðsmannin-
um Phil Neville frá Manchester
United. Neville, sem er 28 ára
gamall, á 52 A-landsleiki fyrir
England og 386 leiki fyrir aðal-
lið Manchester United. Hann
var aðeins 12 sinnum í byrjun-
arliði United á síðustu leiktið.
Kaupverðið er um 340 millj-
ónir íslenskra króna en Everton
varð að ganga frá kaupunum
fyrir miðnætti í gær til að Ne-
ville yrði löglegur í leikjunum
gegn spænska liðinu Villareal
í 3. umferð forkeppni Meistara-
deildar Evrópu. Moyes stjóri
Everton sagði við fréttamenn
að hann væri í skýjunum með
að fá Neville til félagsins og eitt
er víst að þar kemur leikmað-
ur með gríðarlega reynslu.
r"
Fótboltri
loftkœling
Verð frá 49.900 án vsk.
UEFA Super Cup • Mónakó • 26. ágúst 2005
LiverpooJ FC
CSKA Moskva
Skráðu þíg i Fólbollaklúbb MosterCard á
www.kreditkort.is, notaðu MasterCard® kortlö þltt til
11. ágúst og þú gætir vcrið á lciðinni á storlcik í
Mónakó: UEFA Champions Lcague meistararnir I
Liverpool mæta UEFA Cup meisturunum í CSKA
Moskvu.
Meira <i www.kreditkort.is
Chelsea-Arsenal á sunnudag
- t hinum árlega leik um Samfélagsskjöldinn
Enski boltinn hefst á sunnu-
dag þegar Arsenal og Chelsea
mætast í leik um Samfélags-
skjöldinn. Leikurinn er árlegur leik-
ur Englandsmeistara og bikarmeist-
ara.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með leiknum á sunnudag og hvaða
leikmenn verða í byrjunarliðunum.
Það verður til dæmis örugglega
blendin tilfinning fyrir Ashley Cole,
leikmann Arsenal, en hann átti i
leynilegum viðræðum við Chelsea í
janúarmánuði síðastliðnum og bæði
hann og Chelsea fengu háar sektir
frá enska knattspyrnusambandinu.
Gilberto Silva verður ekki með Ar-
senal þar sem hann er enn meidd-
ur en þó er búist við að hann verði
klár í slaginn þegar keppni í ensku
úrvalsdeildinni hefst laugar-
daginn y.ágúst. Ungu
mennirnir í Arsen
al, Robin van
Persie, Cesc
Fabregas
og Gael Clichy eru allir tilbúnir í
leikinn en þeir léku með í leiknum
Beveren sem lauk með jafntefli 3-3 á
miðvikudag.
Nýr fyrirliði hjá Arsenal
Arsenal er komið með nýjan fyrir-
liða. Hann heitir Thierry Henry og
tekur við fyrirliðabandinu af Patr-
ick Vieira sem óvænt var seldur til Ju-
ventus á Ítalíu eftir níu ára veru hjá
Arsenal. Sparkspekingar velta því
nú fyrir sér hvaða áhrif brotthvarf
Vieira hefur á lið Arsenal. Margir
benda á að hann hafi verið mikið
meiddur á síðustu leiktíð og þegar
Gilberto hafi leikið hafi árangur liðs-
ins verið betri. Hvað sem því líður er
víst að Arsenal á eftir að jafna sig á
brotthvarfi Vieira en það tekur tíma.
Alexander Hleb kom til liðs-
ins frá Stuttgart og
þar fer góður
leikmað-
ur sem
Islendingar
í góðum málum á HM í hestaíþróttum
í slensku keppendurnir á heimsmeist-
aramótinu í hestaíþróttum halda
áfram að gera góða hluti en mótið er
haldið í Norrköping í Svíþjóð.
Styrmir Árnason á Hlyni frá
Kjarnholtum I er efstur eftir for-
keppni í fimmgangi en hann fékk
einkunnina 7.43. I öðru sæti er
danska konan Julie Christiansen.
Hún keppti á Ljósvaka frá Akureyri
og fékk einkunnina 7.40. Vignir Jón-
asson á Hrannari var með 7.10 í ein-
kunn í þriðja sæti. A-úrslitin eru á
sunnudag og þetta þýðir að fsland á
tvo keppendur í A-úrslitunum.
Gæðingaskeiðið fór fram í gær
og báðir sprettirnir fóru fram þá
en samanlagður árangur í þeim tel-
ur. Heimsmeistari varð íslending-
urinn Magnús Skúlason en hann
keppir fyrir Svíþjóð á Mjölni frá
Dalbæ. Hann fékk 8.75. Annar varð
Svíinn Johann Hegberg á Aski frá
Hakansgárden með 8.63. Þriðji varð
svo Rassmus Möller Jensen frá Dan-
mörku á Stjarna frá Dalsmynni með
7-43-
í dag verður keppt í forkeppni í
fjórgangi og í 100 metra skeiði.
I fjórgangi eigum við íslending-
ar, Jóhann Skúlason, Sigurð Sigurð-
arson, Hinrik Bragason og Sigurð
Matthíasson.
I 100 metra skeiðinu verða tveir
sprettir og samanlagður árangurþar
telur. Þar eigum við Valdimar Berg-
stað, Bergþór Eggertsson, Styrmi
Árnason og Vigni Jónasson.
Islensku keppendurnir búast við
mjög góðum árangri í dag og jafnvel
heimsmeistaratitli.
510 3744
vert er að gefa góðan gaum. Sol
Campbell var í miklum meiðslum á
síðustu leiktíð og vonandi að hann
nái að leika meira með í vetur, bæði
fyrir Arsenal og enska landsliðið.
Arsene Wenger getur ekki stillt
upp óskaliði sínu en eitt er víst að
þar á bæ verður barist fyrir sigri á
sunnudag. Hatrið á milli liðanna er
einfaldlega það mikið.
Chelsea líklegra til
sigurs á sunnudag
Hinir bláu, Chelsea, mæta til leiks
á sunnudag án William Gallas og
Arjen Robben sem eru meiddir en
Claude Makelele er í lagi og verður
á sínum stað á miðjunni. John Terry
fyrirliði Chelsea, sem hefur glímt
við minniháttar meiðsli í baki, sagði
á fréttavef BBC í gær að Arsenal
kæmi til með að sakna Patrick Vi-
eira mjög mikið í leik sínum í vetur.
Vieira væri einfaldlega heimsklassa
miðjumaður og þegar lið missti
mann á borð við hann þá kæmi það
niður á leik liðsins.
Jose Mourinho, framkvæmda-
stjóri Chelsea, keypti í sumar vinstri
bakvörðinn Asier Del Horno frá
Atletico Madrid á Spáni og þar fer
klassaleikmaður. Þá á eftir að minn-
ast á enska hægri kantmanninn
Shaun Wright-Phillips sem kom frá
Manchester City. Þar með er enn ein
skrautfjöðrin komin í leikmanna-
hóp Chelsea en það var vissulega
eilítið vandamál á síðustu leiktíð á
hægri kantinum. Nú er búið að leysa
það mál og Hernan Crespo er kom-
inn aftur frá AC Milan í framherja-
stöðuna og ef hann fer í gang þá Guð
hjálpi andstæðingum Chelsea.
Það verður einfaldlega að segjast
eins og er að leikmannahópur Chels-
ea er gríðarlega sterkur og mun öfl-
ugri en hópur Arsenal.
Að mati Blaðsins á Chelsea, með
arkitektinn Eið Smára Guðjohnsen í
broddi fylkingar, að sigra í leiknum
á sunnudag. Eiður Smári sagði í við-
tali á vef breska blaðsins Daily Tele-
graph að á sunnudag eigist við tvö af
bestu liðum Englands og hann eigi
von á góðri knattspyrnu þrátt fyrir
að erjur hafi verið á milli félaganna.
Við vonum svo sannarlega að það
gangi eftir en leikurinn verður sýnd-
ur beint á Sýn.
Fótboltarásin Enski Boltinn hefur
síðan sýningar frá
ensku úrvalsdeild-
inni laugardaginn
i3.ágúst.
ÍÞRÓTTIR
Valtýr Björn
Fram í úrslit bikarsins
Maöiö-
Safamýrarpiltar úr Fram eru komn-
ir í úrslit VISA-bikarkeppninnar
eftir frækilegan sigur á toppliði ís-
lenska boltans í sumar, FH. Flestir
bjuggust við sigri FH-inga í leik lið-
anna 1 undanúrslitum og það leit svo
sannarlega út fyrir það í hálfleik á
Laugardalsvellinum. Framarar skor-
uðu að vísu mark sem dæmt var af
vegna rangstöðu og Ríkharður Daða-
son skaut framhjá í dauðafæri.
Allan Borgvardt átti
líka dauðafæri á upp-
hafsmínútum leiksins
en fyrsta markið kom
eftir um hálftíma leik.
Allan Borgvardt fékk þá
sendingu innfyrir vörn
Fram og að flestra mati,
nema Einars Sigurðssonar
línuvarðar, var þar um rang-
stöðu að ræða. Markið stóð þrátt
fyrir áköf mótmæli Framara. Einni
mínútu fyrir lok hálfleiksins skoraði
Borgvardt svo aftur með glæsilegu
marki. Tók boltann viðstöðulaust
á lofti og smellti honum í bláhorn-
ið uppi vinstra megin. Þarna héldu
margir að hið sigursæla FH-lið sem
hafði ekki tapað leik í deild eða bik-
ar í sumar, mundi klára Framara á
sannfærandi hátt. Eftir um 20 mín-
útna leik í seinni hálfleik var Denis
Sim og Heimi Guðjónssyni skipt út-
af hjá FH og við það vöknuðu Fram-
arar og níu mínútum fyrir leikslok
skoruðu þeir eftir mikinn dans í
vítateig FH. Andri Fannar Ottósson
var skráður fyrir markinu. Aðeins
sjö mínútum síðar var Fam búið að
jafna metin þegar boltinn var send-
ur inn í vítateig FH og Daði Láruss-
on markvörður liðsins misreiknaði
sig eitthvað og boltinn barst til Bo
Henriksen sem skallaði í autt mark
FH. 2-2 eftir venjulegan leitkíma og
því varð að framlengja. Þar voru
FH-ingar mun sterkari og hefðu
átt að skora en Gunnar Sigurðsson
markvörður Fram var enn og aftur
frábær á milli stanganna. Þvílíkur
markvörður. Leikurinn fór i víta-
spyrnukeppni og úr fyrstu fimm
spyrnunum hjá hvoru liði tókst
hvoru liði að skora fjórum sinnum.
Gunnar varði frá Baldri Bett og Daði
varði frá Bo Henriksen. I bráðabana
í vítaspyrnukeppninni var það ekki
fyrr en í þriðju umferð að úrslitin
réðust þegar Gunnar Sigurðsson
varði vítaspyrnu frá Ásgeiri
Gunnari Ásgeirssyni og
Framarar eru því komnir í
úrslitaleikinn sem fer fram
á Laugardalsvelli laugardag-
inn 24,september.
FH-ingar geta nagað sig í
handarbökin frægu að hafa
ekki klárað leikinn í gær I
venjulegum leiktíma nú eða
I framlengingunni. En svona er
bikarinn eins og einhver mælti svo
spaklega. Það er ekki spurt um hvar
þú ert í deildinni, það er bara þessi
eini leikur sem skiptir öllu máli.
Maður leiksins í undanúrslitaleik
Fram og FH var að mati Blaðsins
markvörður Fram, Gunnar Sigurðs-
son. Hann varði á tíðum stórkost-
lega I markinu áður en kom til víta-
spyrnukeppninnar og svo var hann
hetja þeirra bláklæddu þegar hann
varði frá Ásgeiri Gunnari.
Gunnar Sigurösson markvörður Fram.
Maður leiksins.