blaðið - 05.08.2005, Side 38
38 I
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 blaðið
SMÁborcrarinn
VÍSINDIN EFLA ALLA DÁÐ...
EÐA NÆSTUM ÞVÍ
Smáborgarinn, eins og smáborg-
ara er siður, les alltaf fréttir af
nýjustu tækni og vísindum. Hann
tekur vart mark á almennum frétt-
um sem ekki eru studdar tölum
eða tíðnitöflum úr nýjustu rann-
sóknum, skoðanakönnunum eða
hvers kyns öðrum vísindalegum
athugunum. Smáborgarinn taldi,
eins og allir góðir smáborgarar,
að vísindin væru óskeikul og al-
góð. Hallelúja. Amen.
Það var Smáborgaranum því
mikið áfall þegar hann komst að
því að nýjustu úttektir á niður-
stöðum vísindalegra rannsókna
sýndu svo ekki um er villst að
um þriðjungur rannsóknarniður-
staðna er tómt bull. Það var Smá-
borgaranum síður en svo léttir að
finna út í ofanálag að margar þess-
ara snarvitlausu rannsóknarnið-
urstaðna eru læknisfræðilegar!
Auðvitað skýra þessar frétt-
ir ýmislegt kukl þeirrar annars
ágætu stéttar, heilbrigðisstéttar-
innar. Það er ótrúlega margt sem
læknar aðhöfðust fyrir allt of
skömmu sem enginn myndi vilja
kannast við í dag. Tja, að minnsta
kosti ekki praktisera. Og þó er
enn margt aðhafst sem ekki mun
þola dagsbirtuna í nánustu fram-
tíð. En það er aukaatriði. Enda
tökum við öll saman virkan þátt
í þessari stóru tilraun. Gröfumst
ekki frekar fyrir um það.
Það sem Smáborgaranum stend-
ur einna mesti stuggur af í dag,
eftir lestur á vísindagrein um að
vísindin séu ákaflega skeikul, er
þessi ofurtrú fólks á vísindum.
Slíkt er bókstafsviðhorfið á köfl-
um að hreintrú ofstækismanna
miðalda bliknar í samanburðin-
um. Hallelúja.
Auðvitað eru vísindin alls ekk-
ert alslæm þó ekki sé öll vitleysan
eins. Blásaklausir menn ganga til
að mynda um götur og geta loks
um frjálst höfuð strokið eftir að
lífsýnavísindin þróuðust og nýtt-
ust í sakamálum. Hver dæmdi
nauðgarinn og morðinginn á fæt-
ur öðrum fær nú uppgefnar sakir
- og kannski einhverjar bætur fyr-
ir tuttugu ára fangelsissetu.
Margir þeirra voru þó einmitt
hnepptir í varðhald á grundvelli
vísindaniðurstaðna. Til að mynda
hefur að minnsta kosti þremur
manneskjum verið sleppt úr haldi
í Bretlandi eftir að í ljós kom að
læknir sem bar vitni um að börn
þeirra hefðu dáið vegna ofbeldis
studdist við afar hæpna grein-
ingu.
Smáborgarinn getur ekki á heil-
um sér tekið. Getur maður eftir
lestur á vísindagrein um skeikul-
leika vísindanna trúað niðurstöðu
greinarinnar. Er hún óskeikul?
Kannski kemur í ljós eftir einhver
ár að einmitt þessi grein var hið
mesta bull. Hver veit?
SU DOKU
talnaþraut
23. gáta
1 9 6 7
4 1 3
9 2
5 T 2 3
3 5
2 3 9 4
4 2
2 6 5
8 5 3 9
Lausn á23.
gátu irerður að
finna i
blaðinu á
mánudag.
Lausn á 22. gátu
Jausn á 21 .. gátu
5 2 4 6 1 3 T 9
1 7 3 4 2 9 8 6 5
6 9 8 7 3 J 1 4 2
5 T 2) 4 3 9 8 6
9 3 6 1 5 8 7 2 4
± 8 2 £j 7 6 5 ÍJ 1
2 4 5 3 1 \1_ 6 9 8
3 6 9 5 8 4 2 | 1 7
8 1 6 9 lL 4 1 5 3
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
í þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er
ágætt að skrá þá hjá sér og halda
áfram.
Orlando
leggur frá
ser sverðið
Orlando Bloom hefur nú viðurkennt
að hann sé ánægður með að leggja
frá sér sverðið í bili, en hann hefur
leikið í hverri stríðsmyndinni á fæt-
ur annarri upp á síðkastið. Helstar
má nefna Troy, Kingdom of Heaven
og auðvitað Lord of the Rings þríló-
gíuna. í nýjustu mynd sinni, Eliza-
bethtown, sem kemur út seinna á
árinu, leikur Orlando ungan aðals-
mann. „Fyrst og fremst var það frá-
bært að gera mynd án sverða, hesta
og brynja“, segir Orlando. Þessa
stundina er hann að leika í nútíma-
mynd sem Cameron Crowe leikstýr-
ir en þar leikur hann ungan mann
sem byrjar að kynnast fjölskyldu
sinni eftir að faðir hans deyr. Kirs-
ten Dunst er einnig í aðalhlutverki
í myndinni.
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Þú þarft að passa þig meira en venjulega á sam-
eiginlegu svæði. Einhver sem þú vinnur með gæti
orvernaað sitt pláss.
V Vertu viðbúin/n árekstrum við samstarfsfé-
laga eða vin. Smávægilegt rifrildi verður blásið
upp og þú gætir lent í miojunni.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Þú mátt búast við miklum breytingum og þú
verður fyrst/ur til að taka eftir vandanum sem
myndast þegar upp kemur ágreiningur vegna
þeirra.
^ Þú ert að eera félagslegar tilraunir um þessar
mundir og þao verður ýmislegt sem kemur þér á
óvart. Það er gaman að komast að því hvað er að
gerast í höfðinu á fólki.
OFiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Ef þú ert útkeyrð/ur þá skaltu loka hurðinni
og einbeita þér ao sjálfri/sjálfum þér. Samstarfs-
folkið skilur ekki alltaf að þú þarft að einbeita þér.
V Það er mikill munur á ímyndun og raunveru-
leika. Það er alltaf gott að láta sig dreyma en ekki
gangaoflangt.
Hrútur
(21. mars-19.apríl)
Pam að
onna klúbb
s Vegas
i
Pamela Anderson hefur nú ákveðið
að opna klúbb í Las Vegas og mun
hún njóta aðstoðar vinar síns Da-
ve LaChapelle í undirbúningnum.
„Þetta er ekki alveg tilbúið en Dave
LaChapelle og ég erum örugglega að
fara að opna klúbb í Las Vegas. Ég
hef fjárfest með nokkrum vinum.”
Pamela er þekktust fyrir að hafa leik-
ið í vinsælu þáttunum Baywatch og
þá var hún einnig gift Tommy Lee
og á með honum tvö börn.
Jen hafnar
Friends heim
ildamynd
Jennifer Aniston hefur neitað að
koma fram í Friends endurkomu-
þætti og er sagt að hún vilji fjarlægj-
ast persónuna sem hún lék í þáttun-
um og hún er þekktust fyrir, Rachel
Green. Hinir Friends leikararnir
hafa samþykkt að koma fram í heim-
ildarmynd um Friends en Jennifer
hefur neitað því. Sagt er að hún sé
ennþá að jafna sig eftir sambandsslit-
in við Brad Pitt á meðan aðrir halda
þvi fram að hún vilji hverfa frá Rac-
hel ímyndinni fyrir fullt og allt.
$ Breyttu út af venjunni enda þarftu að vera
miög kjörkuð/kjarkaour til að vekja athvgli á
sjálíri/um þér. Það verður erfitt en þú getur það.
V Þú mátt eiga von á því að íyllast af jákvæðri
orku fljótlega þannig að pú skalt njóta þess og gera
sem mest.
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Þú þarft að draga fram leiklistarhæfileikana
í þér Ojg brosa meira en þú vilt til að nálgast fólk
sem þu vildir ekki hafa kynnst. En nú um stundir
er þao nauðsynlegt
V Það er kominn tími til að kyngja stoltinu og
leyfa öðrum aðiráða stundum. Það mun ekki
drepa þig og þú kemur út sem sigurvegari.
©Tvíburar
(21. maí-21. júní)
$ Talaðu varlega því einhver sem tekur öllu of
alvarlega gæti misskilið brandara eða fyndna at-
hujgasema. Þú getur lagað það en samt sem áður
er betra að forðast atvilað.
V Þú ert heldur léttari en venjulega og gætir
strítt einhverjum sem tekur það óstinnt upp. Þú
sérð það gerast og getur bjargað þvi.
©Krabbi
(22. júní-22. júlí)
3 Þegar þú en
anum skaltu vj
Ef þú fylgist vé
veldlega.
V Þú ert sef
hvað sem kc
lengi um það <
að íhuga breytinear á starfsfram-
viss um að skooa kosti og galla.
íeð þá ætti svarið að finnast auð-
lega að hugsa um að kaupa eitt-
. þig ansi mikið. Hugsaðu vel og
taktu síðan rétta ákvórðun.
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
S Þér gæti liðið eins og þú hafir náð toppnum
en þú getur alltaf náð lengra ef þú ert metnaðar-
gjörn/gjarn.
V Útgeislun þín og þokki er ótrúlegur og aðrir
eru farnir að taka eftir því.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Þú hefur skipulagt allt og þú býst við að sam-
starfsfélagarnir séu jafn sldpulagðir. En því miður
er það ekíá svo þannig ao þú gætir þurft að að-
stoða þá.
V Vinirnir eru að gera þig brjálaða/n. Dragðu
djúpt inn andann og leyfðu þeim að njóta sín.
Vog
(23. september-23. október)
S Þú mátt búast við beiðnum um aðstoð ffá öll-
um áttum. Það verður auðvelt að verða við flestum
enda skortir oft bara hlý orð.
V Það vilja allir deila þér og þú getur gefið
þeim hvað sem þú vilt. Þú munt alltaf vita
nákvæmlega hvao á að segja og hvenær á
að segja þao við rétta fólkið.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
S Þú ertu stressuð/aður og í raun svo mjög að
þér finnst sem þú þurfir þoknun fyrir. Þú hefur
sennilega á réttu ao standa en núna er ekki rétti
tíminn til að spyrja.
V Þú hugsar ekki um annað en vinnuna og yfir-
mennina og hve erfiðir þeir eru. Ekki láta stressið
eyðileggja annars frábæra helgi.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Það er tími til að slaka á enda hefurðu verið
óvenju dugJeg/ur undanfarið. Það er gott að sinna
vinnu sinni vel en líka í góðu lagi að vera löt/latur
einstaka sinnum.
V Þótt þú hatir venjulega að versla þá skiptir það
þig mildu máJi þessa da^ana. Þú átt pening sem
parf að eyða hvort sem þu veist af því eða elud.