blaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 28
28 I MENKFING
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 blaöiö
Dómur um Sölku Völku í Borgarleikhúsinu
Proskasaga kvenskörungs
Borgarleikhús- 99
ið frumsýndi sl.
laugardagskvöld
leikritið Sölku
Völku eftir sam-
nefndri skáld-
sögu Halldórs
Laxness í leik-
gerð Hrafnhild-
ar Hagalín. Það
kallast að ráðast
ekki á garðinn
þar sem hann er
lægsturaðtakast
áviðþessamögn-
uðu skáldsögu
og þá stóru per-
sónu sem Salka ............
Valka er. í þess-
ari leikgerð er
einblínt á Sölku
og samskipti hennar við tvo áhrifa-
mestu einstaklingana í lífi hennar
þá Arnald og Steinþór. Þetta er
ekki ástarsaga heldur þroskasaga
þriggja ólíkra einstaklinga sem
fyrir hlutskipti örlaganna mætast í
þorpinu Óseyri við Axlarfjörð.
í leikritinu er tímarammi frá-
sagnar brotinn upp og flakkað er
á milli þriggja ólíkra tímaskeiða í
lífi Sölku. Varpað er upp mynd af
henni sem barni, sem unglingi og
loks sem fullþroskaðri konu. Þess-
ar stundum öru skiptingar krefjast
töluverðs af Ilmi Kristjánsdóttur
sem leikur Sölku en í heild má
segja að henni takist afburða vel að
leysa það verkefni af hendi. Túlkun
Ilmar á Sölku er afar sannfærandi
og kraftur sögupersónunnar og
ákveðni nær að skína vel í gegn.
Sama verður að segja um leik Sveins
Geirssonar sem leikur Arnald þó
hlutverkið sé vissulega ekki eins
krefjandi og hlutverk Sölku. Ellert
A. Ingimundarson nær vel að túlka
hinn ófágaða og óbeislaða Steinþór
og hans ruddalega fas. Halldóra
Geirharðsdóttir leikur Sigurlínu,
móður Sölku. Saga hennar er harm-
sagan í leikritinu. Saga konu sem
verður undir í harðri og allt að
Þessar stundum öru
skiptingar krefjast
töluverðs af IImi Krist-
jánsdóttur, sem leikur
Sölku, en í heild má segja
að henni takist afburða
vel að leysa það verkefni
afhendi. Túlkun llmar
á Sölku er afar sannfær-
andi og kraftur söguper-
sónunnar og ákveðni
nær að skína vel í gegn.
því ómanneskju-
legri tilveru.
Hún er andstaða
Sölkuaðþvíleyti
að hún tekst ekki
á við aðstæðurn-
ar heldur annað
hvort flýr þær
eða gefst upp
frammi fyrir
þeim. Halldóra
nær ágætlega að
túlka hina veik-
lunduðu konu en
á það til að vera
frekar óskýr í
máli þannig að
.............. stundum reynd-
ist erfitt að
greina orðaskil.
Segja má að leik-
ritið hvíli fyrst og fremst á þessum
fjórum höfuðpersónum sem fyrir
vikið bera verkið uppi. Önnur hlut-
verk eru minni háttar en þó verð-
ur ekki hjá því komist að minnast
á Þórhall Sigurðsson sem tekur
að sér þrjú hlutverk í verkinu þ.e.
Jukka á Kvíum, læknirinn og verk-
stjórann. í þessum hlutverkum nær
Þórhallur oftar en ekki að kalla
fram bros í leikriti sem annars
tekst á við kaldan og óhugnanlegan
veruleika. Hann á það þó til að falla
ofan í gamlar klisjur sem útiloka
að persónur nái fullkomlega að
stíga fram. Sú ákvörðun í þessari
leikgerð að einblína á þroskasögu
Sölku er athyglisverð en þegar upp
er staðið nær það ekki halda uppi
heilu verki. Þrátt fyrir sterkan ka-
rakter Sölku verður öll önnur per-
sónusköpun eilítið losaralega og all-
ar meiriháttar togstreitur verksins
hálf máttlausar.
Leikmyndin í verkinu er afskap-
lega einföld og vel úr garði gerð.
Yfir sviðinu hvílir risastór mynd af
fjalli sem stendur fyrir fjallið Öxl
sem undirstrikar vel einangrun
þorpsins, mátt landsins og náttúr-
unnar. í flestum tilvikum ganga
leikarar inn á svið undir fjallinu
líkt og þeir gangi út úr því. Undir
myndinni eru þil með timburáferð
sem notuð eru til að skapa rými og
afmarka það. Tónlistin í verkinu
er samin af Óskari Guðjónssyni og
Ómari Guðjónssyni og nær vel að
undirstrika andrúmsloftið í leikrit-
inu.
Borgarleikhúsið - Salka Valka. Leikstjóri:
Edda Heiðrún Bachman. Helstu hlutverk:
llmur Kristjánsdóttir, Halldóra Geirharðs-
dóttir, Ellert A. Ingimundarson, Sveinn
Geirsson og Þórhallur Sigurðsson.
hoskuldur@vbl.is
Archer
og Van Gogh
Jeffrey Archer vinnur nú að nýrri
skáldsögu, spennusögu, sem sæk-
ir innblástur í sjálfs-
mynd eftir Vincent
Van Gogh. Þetta er
fyrsta skáldsaga Arc-
her eftir að hann
losnaði úr fangelsi
árið 2003 en hann
sat inni vegna
meinsæris. Mynd-
in sýnir Van Gogh
með sáraumbúð-
ir eftir að hann
skar af sér hluta
af eyra.
Bókin heitir
False Impressi-
on og kemur út
í mars á næsta
ári. Van Gogh
er einn af eft-
irlætis mynd-
listarmönn-
um Archers
sem er
mikill lista-
verkasafn-
ari en á þó
ekki verk
eftir hann.
Archer á hins vegar verk eftir Pic-
asso, Pissarro, Hockney og Bonn-
ard. „í rúm þrjátíu ár hef ég haft
Van Gogh
myndin sem varð inn-
blástur að nýrri skáldsögu Jeffrey Archer.
Myndin er til sýnis í Courtauld listagaller-
finu í London.
dálæti á listaverkum. Þetta var
tækifæri mitt til að koma þeim að
í skáldsögu,“ segir Archer.
1 skáldsögunni
er Gogh
myndinni
stolið frá
sveitasetri
gamallar
aðalskonu,
nóttina áð-
ur en árás
er gerð á Tví-
buraturnana
í New York.
Söguhetja
bókarinnar er
Anna Petrescu,
sérfræðingur
í Van Gogh, og
hún aðstoðar við
að endurheimta
myndina. í einum
kafla bókarinnar
er afskorið eyra
sent til bandarísks
bankastjóra. ■
Steinar Bragi. Ljóð eftir hann er að finna í Ijóðapakka sem Nýhil gefur út.
Ljóðabókasería Nýhil
„Nýhil hefur verið starfandi í þrjú
ár og rekur eiginlega upphaf sitt
til Berlínar þar sem íslenskir heim-
spekinemar og listafólk rottaði sig
saman. Síðan þá hafa þessir níu höf-
undar, sem gefa út í vetur hjá okkur,
verið mjög iðnir og eiga ýmist að
baki ljóðabók eða skáldsögur,“ segir
Þór Steinarsson einn af aðstandend-
um útgáfunnar. „Nýhil hefur stutt
við sjálfsútgáfu þessara höfunda og
nú í nóvember sendum við frá okk-
ur ljóðapakka. Sá fyrri kemur út í
nóvember. Þar eru ljóðabækur eftir
Eirík örn Norðdahl, Óttar Mart-
in Norðfjörð, Ófeig Sigurðsson og
Hauk Má Helgason. 1 apríl á næsta
ári koma svo bækur eftir Krístínu
Eiríksdóttur, Þórdísi Björnsdóttur,
Val Brynjar Antonsson, Örvar Þór-
eyjarson Smárason og Steinar Braga
Guðmundsson.
Það er greinilegur áhugi á ljóðum
þessara höfunda en þetta er hæg-
virk útgáfa sem selst ekki í gegnum
búðir en fólk kaupir bækurnar. Bóka-
útgáfa í dag er orðin ódýr og ef mað-
ur ber sig eftir björginni þá gengur
útgáfan vel. Okkur gengur mjög vel
að selja þessa ljóðabókaseríu," segir
Þór.
Ljóðaáhugamönnum gefst kostur
á að kaupa ljóðapakkann, sem hlot-
ið hefur nafnið Norrænar bókmennt-
ir, í áskrift á aðeins 6.750 krónur og
kemur fyrri pakkinn út í nóvember
og seinni pakkinn í apríl á næsta
ári. ■
Stjörnu-
bjartar næt-
ur
Bók írska metsölu-
höfundarins, Mae-
ve Binchy, kemur
nú loksins út á ís-
lensku. Þetta er
hennar nýjasta
bók sem ger-
ist í dulmögn-
uðu umhverfi
grísku eyjanna.
Á lítilli grískri eyju sitja nokkrir
ferðalangar yfir hádegisverði á krá
uppi í íjallshlíð, tvær konur og tveir
karlar. Skyndilega verða þau vitni
að óvæntum harmleik í höfninni
við eyjuna. Harmleikurinn tengir
þau nánum böndum. Öll standa
þau á tímamótum, telja sig hafa
sagt skilið við sitt gamla líf en eiga
eftir að gera upp reikningana og
finna sér nýja fótfestu í lífinu.
Fíóna er ung írsk hjúkrunarkona
sem stakk af með manninum sem
enginn vildi að hún giffist. Tómas
syrgir misheppnað hjónaband
og saknar litla stráksins síns í
Kaliforníu. Elsa yfirgaf glæstan
sjónvarpsferil í Þýskalandi þegar
hún uppgötvaði leyndarmál sem
maðurinn sem hún elskaði hafði
dulið fyrir henni. Davíð hljópst á
brott þvf hann gat ekki hugsað sér
að vinna í fjölskyldufyrirtækinu.
Undir næturregni og stjörnu-
björtum himni fléttast saga
þessara ólíku einstaklinga saman.