blaðið - 16.11.2005, Page 26
Komum í veg fyrir áfengis- og vímuefnaneyslu
barna og ungmenna!
Neysla áfengis og annarra vímuefna raskar uppvexti og ógnar velferð margra barna. Sum bíða ævarandi tjón.
Það er bitur reynsla foreldra og annarra aðstandenda að sjá barn sitt lenda í fjötrum vímuefnaneyslu og villast á
brautir glæpa og ofbeldis. Það er átakanleg fórn sem snertir okkur öll.
í æsku er lagður grunnur að framtíð hvers einstaklings. Þá mótast mikilvægar forsendur lífssýnar, þroska og
heilbrigði síðar á ævinni. Börn og ungmenni eru berskjölduð fyrir áróðri og hvatningu til neyslu áfengis og
annarra vímuefna. Rannsóknir sýna að því seinna sem ungt fólk byrjar neyslu áfengis og tóbaks því minni líkur eru
á að þaö leiðist í neyslu vímuefna, hætti í skóla eöa lendi í öörum erfiðleikum.
Höfum það í huga.
Tökum höndum saman um að skapa börnum þroskavænleg skilyrði. Styðjum börn og ungmenni í að hafna neyslu
áfengis og annarra vímuefna. Látum velferð þeirra ráða við mörkun stefnu í áfengis- og vímuefnamálum.
Hagsmunir barna og ungmenna eiga að hafa forgang!
Bandalag íslenskra skáta
Biskupsstofa
Brautin - bindindisfélag ökumanna
íþrótta- og ólympíusamband íslands
Félag íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundafulltrúa
Heimili og skóli
KFUM&K
Krabbameinsfélag Reykjavfkur
Kvenfélagasamband íslands
Lionshreyfingin
Samtök félagsmiðstöðva - SAMFÉS
Samstarfsráð um forvarnir
Samtök skólamanna um bindindisfræðslu
Barnahreyfing IOGT
ÍUT-forvarnasamtök
Ungmennahreyfing IOGT
IOGT á íslandi
Ungmennafélag íslands
Vímulaus æska/Foreldahús
SAMFOK
BAÐSTOFAN
VÍV/ ICEL AND