blaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 37

blaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 37
blaðið MIÐVIWKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 DAGSKRÁI37 Arnbjörg er leikari og í þáttunum Stelpurnar Hvernig hefurðu það í dag? Ég hef það bara fínt. Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í fjölmiðlum? Ég hef unnið í mörgum leikritum og stuttmyndum en það hefur flest ver- ið tengt leikhúsinu. Stelpurnar er fyrsta sjónvarpsverkefnið mitt sem slíkt. Hvernig finnst þér að vinna í sjónvarpi? Ég kann mjög vel við það. Sérstaklega að leika með Stelpunum. Langaði þig að verða leikkona þegar þú varst lítil? Já, ég ætlaði að verða leikkona, dansari eða forstjóri. Síðustu árin áður en ég fór í Leiklistarskólann varð ég að velja á milli dansins og leiklistarinnar. Hvað er það skemmtilegasta við að vera í Stelpunum? Mér finnst fólkið skemmtilegast en það er gaman að fá að fíflast aðeins. Horfirðu á þættina sem þú hefur verið í? Nei, ég hef því miður ekki séð nema fyrstu tvo þættina sem að ég lék ekki í. Ég var alltaf að leika öll laugardagskvöld og gat þess vegna ekki horft á þá. En ég hlakka til að sjá þetta, ég ætti eiginlega að hringja niður eftir og athuga hvort ég geti ekki fengið þættina á spólu. Hvernig er dæmigerður dagur í lífi Arnbjargar? Ég vakna um níu leytið, dríf mig beint niður í leikhús þar sem ég fæ mér kaffi og kjafta pínulítið og æfi svo til fjögur. Þá kemur smá pása og þá tala ég oft inn á teiknimyndir eða eitthvað slíkt. Þá mæti ég aftur klukkan hálf sjö niður í leikhús fyrir sýningu og er þar þangað til ég fer heim að sofa. Þegar ég er ekki að vinna þá reyni ég að hitta vini mína. Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt? Ég hef lítinn tíma til að horfa á sjónvarp en hef reyndar alltaf haldið mikið upp á heimildamyndir og sérstaklega dýralífs- myndir. Mér finnast þær magnaðar og finnst það mætti vera meira af þeim. Annars næ ég lítið að fylgjast með þáttum af því að ég er svo oft að leika. Desperate Housewifes eru reyndarfrábærir þættir. Hver myndirðu vilja að væri síðasta spurningin í þessu viðtali? „Ert þú ekki farin að hlakka til jólanna?" „Jú,jú ég hlakkatil!" Skjár í - America’s Next Top Mod- el IV - kl. 20:00 Fjórtán stúlkur keppa um titilinn og enn er það Tyra Banks sem held- ur um stjórnvölinn. Stöð 2 - Supernanny US - kl. 20:30 (Ofurfóstran í Bandaríkjunum) Ofurfóstran Jo Frost kennir ungu og ráðþrota fólki að ala upp ólátabelgi. Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt? Birkir Rafn Þorláksson C.S.I. Svanborg Guðmundsdóttir Doctor House. Sævar Ari Finnbogason Fræðsluþættir sem þeir eru að sýna á Sjón- varpinu. María Ósk Kjartansdóttir Friends. Birgir Jóhannsson Fréttir. Snjólaug Ásta Hauksdóttir Friends. Kim er skotin í yngri mönn Kim Cattrall, stjarnan úr Beðmálum í borg- inni, hefur lýst því yfir að hún elski að fara í rúmið með sér yngri mönnum því þeir leyfi henni að ráða. Hin 49 ára stjarna er núna í sambandi með Alan Wyse sem er 22 árum yngri en hún. En Kim viðurkennir að hún dýrki þennan aldursmun, því yngri sem elskhuginn hennar er því síður finni hún fyrir leiða þegar kemur að kynlífinu. Hún hafði þetta um málið að segja á hátíðarhöldum vegna útgáfu bókar sinnar „Sexual Intelligence“: „Honum líður vel því hann er að hugsa: „Hún er eldri og reynd- ari en ég“, en ekki: „Ég ætti að vita þetta, ég ætti þess vegna að vera við stjórnvölinn.“ Kim viðurkennir að hafa lært heilmikið af Samönthu í þáttunum og þá sérstaklega hvernig eigi að skemmta sér ærlega 1 svefn- herberginu. Skíðafatnaður Skautar 'JLU£±L£S A14RKIÐ www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.