blaðið - 22.03.2006, Qupperneq 26

blaðið - 22.03.2006, Qupperneq 26
ÁLFABAKKA SAMtmá THEMATADOR KL 6-8:10-10:20 THE MATADOR VIP KL 350-6-8:10-10:20 LASSIE KL 3:50-6 AEONFLUX KL 4-64-10:10 SYRIANA KL 8:10-10:40 BIÓDBÖND KL4-6-8-10:10 CASAN0VA KL 6-8:10-10:20 BAMBI2 tsL tol KL4 UTU KIÚIUNN td KL4 KRINGLUNNI-— sAMwmm LASSIE KL 5:50-8 THE NEWWORID KL 8-10:10 THEPINKPANI KL6 DERAILED KL8 MUNICH KLIO BAMBI2 ísL tal KL6 KEFLAVÍK LASSIE B AE0N FLUX KLIO BIGM0MMAS H0USE 2 KL8-10 AKUREYRI SAMmWm LASSIE KL 6 THE MATAD0R KL8-10 AE0N FLUX KL 10 BLÓÐBÖND KL 6 PRIDE & PREJUDICE KL 8 iii 1 THE MATAD0R KL 6-8-10 THE W0RLDS FASTESTINDIAN KL 5:30-10:15 THE NEWW0RLD KL 5:45-8:30 BLÓÐBÖND KL. 6-8 SYRIANA KL 5:30-8-10:30 CRASH KL 10 KVIKMYNDAKLUBBUR AUIANCE FRANCAtSt ClfAN KLB 34 I AFPREYING MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaöiö NYTTIBIO aiOOACAK SfTIHRfA^BÍÓ BiG MOMMA'S HOUSE kl. 3.40,5.45,8 og 10.15 BIG MOMMA'S HOUSE í LÚXUS kl.3.40,5.45,8 og 10.15 RENT kl.8og10.45 B.U4ÁRA YOURS, MINEAND OURS kl.4og6 PINK PANTHER kl.3.45,5.50,8 og 10.10 NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 WALKTHE LINE kl.8og10.45 B.1.12ARA REcnBOEinn BIG MOMMA'S HOUSE kl. 5.50,8 og 10.10 RENT kl. 5.20 B.1.14ÁRA CAPOTE M.8 B.I.16ÁRA CONSTANT GARDENER kl. 10.20 B.I.16ARA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 10.10 B.1.12 Ara DULARFULL SNERTING kl. 8 HINSEGIN BÍÓOAGAR SKRÆKJANDI kl. 6 HWSEGIN BÍÓOAGAR 100% MANNESKJA W. 8 HWSEÍ3N BIÓOAGAR KISULÚRUR kl. 6 HWSEGIN BÍÓOAGAR PROTEUS kl. 10 HWSEGW BÍÓOAGAR BIG MOMMA'S HOUSE kl. 6,8og 10 YOURS, MINEANDOURS W.6 MATCH POINT kl. 8og 10.15 NANNY MCPHEE kl.6 MEMOIRS OF A GEISHA kl. 8 ALLRASlÐUSTUSÝMNGAR Buryarbrii BIG MOMMA'S HOUSE kl. 6,8og 10 FU9ÍT W. 10 BJ. 14ARA YOURS, MWE ANO OURS W.6 THE PtNK PAMTHEH W.8 Byrjaði á Spitsign og Sigur Rós Á morgun verða sjö ár liðin frá því Sigvaldi Jónsson setti heimasíðuna Dordingull.com á netið. Þar með var íslenska rokksenan komin með samastað og í kjölfarið hefur Sigvaldi verið kallaður Valli Dordingull. „Þetta byrjaði allt með því að ég hannaði heimasíðu fyrir hljómsveit- ina Spitsign,“ segir Valli. „Þá hafði ég líka áhuga að gera síður fyrir nokkrar hljómsveitir í viðbót. Þannig kom hugmyndin að heildarsíðu sem héldi utan um heimasíður hljómsveit- anna, tónleika, plötudóma og fréttir tengdar íslensku rokki. Þetta átti að vera tímarit á netinu til að koma is- lenska rokkinu á netið þar sem allir gætu nálgast það.“ Búist við velgengni Sjö ár er hár aldur fyrir heimasíðu. Valli segist hafa búist við löngum líftíma. „Ég er þannig maður að ég býst alltaf við velgengni. Ef ég ákveð eitthvað held ég mig við það.“ Drodingull.com er eins manns síða, þ.e. Valli hefur ávallt staðið einn að baki henni. Upphaflega átti hún reyndar einnig að ná yfir kvik- myndir en félagi hans sem ætlaði að sjá um þann hluta síðunnar komst aldrei í það. Dordingull varð rokk- síða, sú eina í mörg ár. „Af og til hef ég fengið aðra penna með mér í skrifin, fólk til að skrifa fréttir, plötudóma og þess háttar. En annars sé ég um hér um bil 99% af efninu.“ „Það má segja að ég auglýsi eftir fólki í þetta hér og nú. Ef fólk hefur áhuga á að skrifa fréttir, tónleikaum- fjallanir eða plötudóma vil ég endi- lega heyra í því.“ Afhverju nafnið Dordingull? „Eg fékk vini mína til að koma með tillögur að nafni. Þessi hugmynd stóð einfaldlega framar öllum öðrum. Hugmyndin gengur semsagt út á að Dordingull er lítill hluti í kóngulóar- vef. Á þann hátt er Dordingull.com bara hluti af vefsíðusafni.“ Dordingull er miðstöð rokktón- listar í þyngri kantinum á Islandi. „Síðan er fyrir alla sem fylgjast með neðanjarðar rokktónlist, hvort sem það er Sign eða Forgarður Helvítis." „Fyrstu hljómsveitirnar á síðunni voru t.d. Spitsign og Sigur Rós. Sigur Rós var náttúrulega rokkhljómsveit í gamla daga þegar síðan byrjaði. En það eru átta ár síðan það var og margt hefur breyst." „Netið hefur vaxið mikið á þessum tíma sem miðill. Nú vilja allar hljóm- sveitir vera með eigin síður. Þar kemur Dordingull líka inn þar sem hann er stórt og mikið heimasvæði fyrir margar íslenskar hljómsveitir, hvort sem það er Mínus, I adapt, Sólstafir, Future future, Denver eða Changer. Á forsíðunni er t.d. góður listi af nýjum og gömlum hljómsveitum í bland, jafnvel sveitum sem eru nýstofnaðar og eru á leiðinni í senuna." „Ég veit ekki hversu margar hljóm- sveitir hafa verið á Dordingli á þessum tíma. Þær eru örugglega í kringum 50 talsins." Ájaðrinum Tilgangurinn með Dordingli er upp- lýsingamiðlun til fólks sem vill sjá eitthvað annað en það sem er t.d. aug- lýst í blöðum að sögn Valla. „Við höfum staðið að tónleikum í mörg ár. Ég held til dæmis að minnsta kosti eina stóra tónleika á hverju ári, sbr. Isis í fyrra sem tókust gríðarlega vel. Svo eru margir minni tónleikar sem Dordingull er viðrið- inn á einhvern hátt.“ „Þegar maður lítur til baka stendur fólkið og tónleikarnir uppúr. Að sjá hversu íslensk rokktónlist hefur vaxið þessi sjö ár. Hún hefur farið úr því að vera örlitlar út í að vera heimsklassa rokksveitir með útgáfusamninga úti um allan heim." „Tilgangurinn er samt ekki ein- göngu að láta fólk vita af tónleikum heldur einnig að láta vita hvað er að frétta hjá Islendingum og hjálpa hljómsveitum að koma sér á framfæri.“ Myndir þú segja að senan hafi tekið miklum breytingum á þessum sjö árum? „Mjög miklum. Hún hefur þróast úr því að vera einfaldir rokkarar að reyna eitthvað sniðugt út í að vera fag- menn á sínu sviði.“ „Ég vona að Dordingull.com fylgi stefnunni í framtíðinni. Ég held mig við sama efni og vona að það komi fleiri síður til að halda manni á tánum. Þó ekki endilega í samkeppni. Því meira rokk, því betra - finnst mér. Síðan verður betri með hverjum degi og meira get ég ekki beðið um. Það er kannski helst að fleiri taki þátt í þessu með mér.“ agnar.burgess@bladid.net Rokkað gegn ofbeldi Annað kvöld verða stórtónleikar á Nasa við Austurvöll þar sem margar helstu rokksveitir landsins koma saman til að styrkja Blátt áfram. Þar að auki verður tískusýning á vegum Eskimo models. Rjóminn af íslenskum rokksveitum kemur saman annað kvöld á Nasa við Austurvöll til að rokka gegn of- beldi. Stutt verður við forvarnarverk- efnið Blátt áfram sem flestir kannast við. Það felst í að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á ís- landi. Á dagskrá kvöldsins er einnig tískusýning frá Eskimo models. „Tónleikarnir eru hluti af verkefni í Kennaraháskólanum þar sem við erum í tómstunda- og félagsmála- fræði.,“ segir Þórhallur Guðmunds- son, einn fimmmenninganna sem standa að tónleikunum. Með honum í verkefninu eru þau Nanna Katrín Kristjánsdóttir, Guðlaug Ósk Péturs- dóttir, Stefán Arnarson og Þröstur Sigurðsson. Frekar en fyrirlestrar „Við hefðum getað staðið fyrir röð Brain Police troða upp á tónleikunum fyrirlestra eða minni uppákomum af svipuðu tagi en ákváðum frekar að leggja aðeins meiri vinnu í verk- efnið, halda stóra tónleika og láta gott af okkur leiða á sama tíma,“ segir Þórhallur. „Við náðum að halda verðinu niðri, það kostar ekki nema 800 krónur inn, en svo er hægt að bæta við 200 kalli og styrkja verkefnið enn meira. Þeir sem það gera fá svo blátt arm- band sem sýnir stuðninginn.“ Tónleikarnir eru sem áður sagði annað kvöld á Nasa. Húsið opnar klukkan 19.30 og streyma tónlistar- mennirnir og fyrirsæturnar á sviðið upp úr því. LETTKOLSYRT ■Æfe, ■ t ISDolby /00/ M* {Íbio.is V Nasa fimmtudaginn 23. mars Fram koma: Brain Police Leaves Vínill Sólstafir Mammút Days of Our Lives Lokbrá Margeir Úlpa Tískusýning frá Eskimo Bhíid/SteinarHugi

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.