blaðið - 23.06.2006, Page 4

blaðið - 23.06.2006, Page 4
4IFRÉTTIR FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaóiö Segir Björgólf ábyrgan fyrir óþolandi ástandi innan stjórnar Stjórnarmaður í fjárfestingarbankanum Straumi Burðarás kveður Björgólf Thor Björgólfsson hafa hengt bakara fyrir smið. Hart deilt um lögmæti stjórnarfundar. íla og fyirtækja aila virka daga blaðið Eftir Gunnar Reyni Valþórsson Magnús Kristinsson, stjórnarmaður í Straumi Burðarás fjárfestingabanka, segir að með því að reka forstjóra fyr- irtækisins hafi stjórnarformaðurinn, Björgólfur Thor Björgólfsson, verið að hengja bakara fyrir smið. Magnús og Kristinn Björnsson, annar stjórn- armaður, fóru á fund Fjármálaeftir- litsins í gær. Að þeirra mati var stjórn- arfundur á miðvikudagskvöldið, þar sem forstjóranum Þórði Má Jóhannessyni var sagt upp störfum, k'qrænmeti sérmerkt þér! Sölu minnispeninga hætt Árið 1994 gaf Seðlabanki íslands út þrjá minnispeninga úr silfri með myndum af fyrstu þremur forsetum íslands í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins. Árið 2000 gaf Seðlabankinn út minnispening úr gulli í tilefni af 1000 ára kristni á íslandi. Seðlabankinn hefur ákveðið að hætta sölu þessara minnispeninga 31. ágúst næstkomandi. Eftir þann tíma verður óseldum minnis- peningum eytt. Nánari upplýsingar um þessa minnispeninga má finna á vef Seðlabankans (www.sedlabanki.is). Reykjavík, 23. júní 2006 SEÐALBANKIÍSLANDS ólöglegur. 1 yfirlýsingu frá Björgólfi Thor í gær kemur fram að fundurinn hafi verið haldinn í samræmi við lög, samþykktir og starfsreglur bankans og enginn vafi sé um lögmæti fund- arins eða þeirra ákvarðana sem þar voru teknar. Eftirlitsstofnanir skoði máiið ,Við fórum og gerðum Fjármálaeftirlit- inu grein fyrir okkar sjónarmiðum," segir Magnús Kristinsson. Að mati Magnúsar var ólöglega boðað til fundarins á miðvikudaginn vegna þess að Páll Magnússon mætti ekki heldur tilkynna um nýjan varamann í sinn stað. Aðspurður um framhald málsins sagðist Magnús ekki átta sig á því. „Eftirlitsstofnanir þjóðfé- lagsins hljóta að takast á við þetta verkefni núna. Samkeppniseftirlitið og Fjármálaeftirlitið hljóta að kanna þetta mál. Kannski er ekkert athuga- vert við þetta að þeirra mati og þá fá Björgólfur Thor og hans menn að vaða þarna uppi.“ Sáttatillagan aldrei samþykkt { samtölum við fjölmiðla í gær sagð- ist Björgólfur Thor hafa lagt fram sáttatillögu í málinuþess efnis að for- stjórinn myndi víkja fram y fir næsta hluthafafund. Björgólfursagði tillög- una hafa verið samþykkta í stjórn- inni en að Þórður Már hafi ekki fallist á þá tilhögun mála. „Það er bara rangt,“ segir Magnús. „Það var aldrei borin nein sáttatillaga upp á fundinum. Það voru þreifingar uppi um að biðja Þórð um að fara í launa- laust leyfi. Björgólfur sjálfur óskaði síðan eftir fundarhléi til þess að bera það undir Þórð. Það reyndi því aldrei á að stjórnin tæki afstöðu um tillöguna.“ Bakari hengdur fyrir smið Aðspurður um starfslokasamning Þórðar segir Magnús: „Nú er best að Björgólfur Thor svari því hvað þetta kostar hluthafana. Ég hef ekki hug- mynd um það. Stjórnarformanni og lögmanni var falið að ganga frá HORFT FRAM Á VEGINN | Máritanskur maður horfir fram á veginn við hið forna þorp Ouadane. Gengið verður til kosninga í íslamska lýðveldinu á sunnudag í fyrsta sinn eftir að herinn tók völdin í landinu í ágúst á síðasta ári. Falsaöir iPod-spilarar Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli gerði í vikunni upptækt nokkurt magn fals- aðra iPod-spilara sem voru á leið til landsins frá Kína. Sendingin var á leið- inni til verslunar nokkurrar í Reykja- vík. I íféttatilkynningu frá Apple IMC Varist eftirlíkingarl segir að umbúðir þessarar tilteknu fölsunar séu varla á nokkurn hátt frá- brugðnar raunverulegum iPod nano umbúðum heldur virðist hafa verið sérstaklega vandað til þeirra þvert á innihaldið sem í þeim er. „Innihaldið var svo hins vegar allt annað, óvand- aður mp3-spilari með kínversku við- móti,“ segir í tilkynningunni. Steingrímur Ámason, þróunarstjóri Apple IMC, segir að þrátt fyrir að tekist hafi að stöðva þessa sendingu megi gera ráð fyrir að eitthvað sé af fölsuðum iPod-spilurum í umferð hér á landi. „Við viljum því beina því til kaupenda að kaupa vörur merktar Apple hjá viðurkenndum söluaðilum hérlendis sem erlendis. Gróðrarstöðj 20 stk stjúpur kr. 790 Lobelía kr. 390 2 stk Petuníur kr. 450 Nellikur kr. 390 20% afsláttur af runnum Tilboð alla daga starfslokasamningi við Þórð.“ Magnúsi finnst skjóta skökku við að reka forstjórann vegna vandamála innan stjórnar fjárfestingabankans. „Þá notar hann tækifærið og rekur forstjórann, í stað þess að reka mig. Er ekki verið að hengja bakara fyrir smið þarna? Það hefði einhvern tím- ann verið sagt um svona gjörning,“ segir Magnús. Hann segir óhætt að taka undir með Björgólfi að ástandið í stjórn- inni hafi verið óþolandi. „Það er óhætt að taka undir að ákveðnu marki að ástandið sé búið að vera óþolandi síðan Björgólfur Thor kom þarna inn. Maður var svo sem fyrir löngu búinn að sjá að hann væri ekki á vetur setjandi," segir Magnús Kristinsson. gunnar@bladid.net Milljarður við starfslok? Þórður Már Jóhannesson, fráfar- andi forstjóri Straums Burðar- áss, gerði starfssamning tveimur dögum fyrir samruna Straums fjárfestingabanka og Burðaráss. Samkvæmt heimildum Blaðs- ins gerði Þórður Már samn- inginn við þáverandi stjórn- arformann Straums, Magnús Kristinsson, og gæti hann fært Þórði allt að einum milljarði króna í eigin vasa nú þegar honum hefur verið sagt upp störfum. Þegar samningurinn var gerður var ljóst að Þórður yrði forstjóri í sameinuðu félagi og héldi launum og réttindum sínum. Heimildir Blaðsins herma einnig að stjórnarmenn í Straumi Burðarás hafi ekki séð umræddan samning. Samn- ingurinn mun vera í gildi og er félaginu skylt að efna hann. „Ég man ekkert eftir því hvernig samningar voru gerðir á sínum tíma,“ segir Magnús Krist- insson, stjórnarmaður í Straumi Burðarási og fyrrverandi stjórn- arformaður I Straumi þegar hann er spurður út í umræddan samning. Stoltur skattgreiðandi Jón Ásgeir Jóhannesson sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna fréttar Morgunblaðsins þar sem fullyrt er að áætluð skattalaga- brot hans nemi 194 milljónum króna. Þar segir að Jón Ásgeir hafa fengið endurálagningu vegna áranna 1998-2003 að upp- hæð 66 milljóna króna í byrjun ársins. Sú endurálagning nái til sömu þátta og þeirra sem hann var boðaður til skýrslutöku hjá embætti Ríkislögreglustjóra með boðunarbréfi sl. þriðjudag. Segir ennfremur að lögmenn Jóns telji að umrædd upphæð verði endurgreidd þegar niður- staða yfirskattanefndar liggur fyrir. „Ég greiði alla mína skatta og gjöld á íslandi og hef ávallt gert. Ég hef verið meðal stærstu skattgreiðenda hér á landi og greiddi á síðasta ári um 98 millj- ónir I ríkissjóð. Ég skorast ekki undan þeirri ábyrgð minni og er stoltur af því að greiða mína skatta hér á landi og mun áfram gera,“ segir Jón Ásgeir.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.