blaðið - 23.06.2006, Side 15

blaðið - 23.06.2006, Side 15
blaðið FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 FERÐALÖG I 15 Fjölskyldan ílakkar um landið og fer í lautarferð Hjá Máli og menningu er komin út Ferðahand- bókfjölskyldunnar eftir Bjarnheiði Hallsdóttur og Tómas Guðmundsson. Undanfarin ár hafa fs- lendingar byrjað að ferð- ast meira um landið en eftir að auðveldara varð að komast til sólarlanda, minnkaði þetta um ára- bil. Nú má segja að það hafi orðið vakning í inn- anlandsferðum landans og því getur ferðahand- bók fyrir fjölskylduna verið einkar gagnleg. Allir sem hafa ferð- ast með börn og ung- linga vita að það gilda önnur lögmál um ferðalög með ung- mennum en fullorðnum. Það þarf að skipuleggja ferðalagið sjálft nokkuð vel, áfangastaði og nestisstopp og nauðsynlegt er að gera ráð fyrir alls kyns óvæntum uppákomum. Ferða- handbók fjölskyldunnar mun vera samin með þetta í huga. Höfundar Ferðahandbókar fjöl- skyldunnar, þau Bjarnheiður Halls- dóttir og Tómas Guðmundsson, hafa samanlagt unnið í áratugi við ferða- þjónustu á fslandi, meðal annars við að skipuleggja ferðir um landið fyrir útlendinga. Þessi reynsla nýttist þeim vel við vinnslu bókarinnar, ekki síður en að ferðast með fjölskyldu sína. Þau iögðu iand undir fót með það í huga að velja áhugaverða og fjölskylduvæna staði þar sem börn gætu unað sér í guðsgrænni náttúrunni og ákváðu jafnframt að það mætti ekki kosta neitt að upplifa þessa staði. Markmið þeirra er að fá fólk til að skoða, upp- íifa og njóta - og slaka á. Staðirnir sem urðu fyrir valinu eru flokkaðir eftir landshlutum og farið réttsælis í kringum landið, byrjað á Akranesi og endað á suð- vesturhorninu. Umfjölluninni er skipt í nokkra efnisflokka: • fyrir börnin þar sem sérstak- lega er hugað að áhugasviðum yngstu ferðalanganna • áhugaverður staður sem getur verið í grenndinni eða nokkuð frá aðalstaðnum • gönguleið þar sem bent er á mis- erfiðar en skemmtilegar leiðir • söguhornið sem inniheldur sögulegan fróðleik • molar og forvitnilegt efni sem fjalla ýmist um dýr og plöntur eða annað áhugavert sem teng- ist svæðinu. Ferðalög innanlands færast í aukana Tók langan tíma að und- irbúa bókina? „Frá því að hug- myndin fæddist og þar til bókin fór f prentun liðu tvö ár en að sjálf- sögðu vorum við bæði búin að vinna mjög lengi við ferðamál og vorum því ekki að byrja á núlli. Bæði búin að ferðast mikið og spá mikið í landinu," segir Bjarnheiður. Er það enn algengt að íslenskar fjöl- skyldur leggist íferðalög um landið? „Þetta var algengt í gamla daga, eða svona fram til ársins 1980 en þá fór það að færast í aukana að fólk ferðað- ist til útlanda. Þegar sú bylgja reið yfir má segja að fólk hafi mikið til hætt að ferðast um landið. Öllu sumarfríinu, kannski þremur til fjórum vikum var kannski eytt á Mallorca. En á und- anförnum fimm til sex árum hefur þetta breyst. Reyndar eru ferðalögin með öðru sniði núna. Fólk er komið á flottari bíla og ferðast með fellihýsi eða gistir í vel útbúnum sumarbú- stöðum. Það má til dæmis merkja aukin ferðalög um landið á sölu felli- hýsa sem hefur verið gífurlega mikil undanfarin ár hér á landi. Þar af leiðandi teljum við að þessi bók eigi vel erindi til fólks i dag þar sem hún getur gert ferðalagið inni- haldsrfkara og skemmtilegra. Fólk fær vitneskju um hvar er gaman að stoppa og eiga góða stund í náttúr- unni í stað þess að keyra beinustu leið á milli þéttbýla og gera hlé í þremur sjoppum en okkur hættir jú oft til þess eða vera bara á tjaldstæðinu. I bókinni er ekkert minnst á neinar þjónustumiðstöðvar heldur eru þetta bara staðir í náttúrunni sem við mælum með að sé stoppað við. Við bendum á góða lautarferðastaði og mælum með söfnum og sundlaugum sem okkur finnast sérstaklega skemmtilegar fyrir börn. Við reynum sem sagt að nálgast þetta viðfangsefni frá öðru sjónarhorni en hefur áður verið gert,“ segir Bjarnheiður Halls- dóttir að lokum. margret@bladid. net Bjarnheiður Hallsdóttir hefur i árabil unnið við ferðaþjónustu. Nú hefur hún, ásamt manni sínum Tómasi Guðmundssyni, gefið út sérstaka ferðahandbók fyrir fjölskylduna.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.