blaðið - 23.06.2006, Síða 38

blaðið - 23.06.2006, Síða 38
38 IFÓLK FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaðið NÖLDUR UM NÖLDUR Smáborgarinn ætiarað breyta út af van- anum í dag og reyna að skrifa jákvæð- an og uppbyggilegan pistil. Þegar hann sat úti á svölum í veðurbliðunni í gær- morgun og hlustaði á söng fuglanna í trjánum fannst honum sem hann gæti ekki fengið af sér að skrifa enn einn umkvörtunar- og nöldurpistilinn. Slíkt bæri vott um vanþakklæti og óvirðingu við almættið. Þar að auki er Smáborgarinn lítill nöldrari að eðlisfari og veit margt skemmtilegra en að kvarta og kveina yfir ómerkilegustu smámunum. Það sama verður ekki sagt um marga sam- landa hans. fslendingar eru nefnilega óttalegir nöldrarar að eðlisfari og virðast finna að öllum mögulegum og ómögulegum hlutum. Slíkt og þvílíkt fer illa í fínustu taugar Smáborgarans sem hefur með tíð og tíma lært að brynja sig gegn nöldri og neikvæðni samborgarasinna. Nöldrað út af smámunum Nú ber ekki að skilja Smáborgarann svo að honum sé á móti skapi að fólk láti skoðun sína í Ijósi og tjái sig um það sem máli skipti. Það er hann svo sann- arlega ekki. Þvert á móti lítur hann mjög upp til fólks sem vekur athygli á meinsemdum samfélagsins eða heims- byggðarinnar og leggur sitt af mörkum til að uppræta þær. Vandamálið við fslendinga er að þeir nöldra aðallega yfir ómerkileg- um og hversdagslegum smámunum sem skipta litlu máli svo sem útliti og klæðaburði nágrannanna, sjónvarps- dagskránni eða leiðarkerfi strætisvagn- anna. Einnig eru þeir óvenjugjarnir á að kvarta og kveina yfir því sem þeir fá engu ráðið um eins og veðurfarinu eða umferðinni. Þegar kemur að raunverulegum vandamálum eins og loftslagsbreyting- um, mannréttindabrotum og styrjöld- um í hinum stóra heimi kæra Islending- ar sig kollótta og sjá enga ástæðu til að æmta eða skræmta. Ekki reyna þeir nöldrarar sem Smá- borgarinn þekkir heldur að bæta úr þeim vanda sem þeim verður svo tíð- rætt um eða reyna að bæta ástandið á einhvern hátt. Þeir láta sér aðeins nægja að nöldra. Síðan eiga alltaf ein- hverjir aðrir að leysa vandamálið. HVAÐ FINNST ÞÉR? Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri. Ertu búinn að borða laxinn? „Nei ég er ekki búinn að borða hann. Ég ætla að borða hann í kvöld. Ég veiddi reyndar annan lax í Elliðaánum að kvöldi sama dags sem var fimm pund. Þegar ég var að taka úr honum öngulinn þá voru í honum tveir önglar. Ég missti einmitt tvo fyrr um daginn og mér finnst mjög líklegt að um einn og sama laxinn hafi verið að ræða. Ég lét grafa helm- inginn af honum og hinn helmingurinn fór í reykingu þannig að hann verður ekki borðaður strax.“ Borgarstjóri var fyrstur manna til aö renna fyrir laxi í Elliðaánum á þessu veiðisumri eins og heföin gerir ráð fyrir. Alþjóðlegt írísbígolfmót Frisbígolf er ný almenningsíþrótt sem hefur verið að skjóta rótum hér á landi. Leikurinn fer þannig fram að leikið er á sérhönnuðum völlum þar sem takmarkið er að kasta frisbídiskum í sérstakar körfur í sem fæstum köstum. Um helgina verður alþjóðlegt mót, lce- landair Open, haldið á vellinum í Gufunesi en 25 erlendir keppendur eru skráðir en margir þeirra eru í fremstu röð í Evrópu. Þar má nefna Bretann Derek Robins en hann keppti hér líka síðasta haust og Svíann Christian Sandstöm sem á heimsmetið í lengsta kasti með frisbídisk, 250 metra. Mótið hefst á miðnætti aðfararnótt laugardags og verður keppt alla helgina. Ahorfendur eru velkomnir. HEYRST HEFUR... Guðmundur Magni Ásgeirs- son eða Magni eins og hann er kallaður er kominn inn í raunveru- leikaþáttinn Rockstar: Sup- ernova. Magni hefur hingað til verið söngvari hljómsveitarinn- ar Á móti sól og mun vera afar liðtækur á því sviði. Samkvæmt heimild- um er hann að velta fyrir sér að breyta um sviðsnafn eins og sannri rokkstjörnu sæmir. Ekki er vitað hvert nafnið verð- ur en fleygt hefur verið fram að það verði harðkjarnanafnið Magnum. Fyrirsagnir á íslenskum fréttum geta verið með hinu skrautlegasta móti. Ferskt er í minni þegar DV sagði frá rimmu prinsessunar Leoncie viðútvarps- stjóra en fyrirsögn- in var. „Le- oncie reið Markúsi,“ sem má svo sannarlega mis- skilja. Hitt er þó að á hinum stórgóða vef vf.is má finna fyrirsögn sem á að lýsa um- ferðaróhappi en hæglega má misskilja. Fyrirsögnin er: „Sex á hraðferð og einn þurfti drátt eftir umferðaróhapp,“ og skilji hver sem.yill. Víkingahátíðin í Hafnarfirði er alltaf stór og skemmti- legur viðburður þar sem gefin erinnsýníheim víkinga. Hátíð- in er þó ekki bara skylming- ar og drykkja að hætti vík- inga því fregnir herma að par ætli að gifta sig að heiðnum sig. Hins vegar mun það vera á dagskrá að skíra barn einnig á hátíðinni. Ekki er vitað hvað barnið mun heita eða hverjir eru foreldrar en heyrst hefur að skylminga- félagið Rimmugýgur bafi lagt hart að foreldrunum að nefna barnið í höfuðið á félaginu. valur@bladid. net Johnny Depp eða Orlando Bloom? Þær geta nú verið skemmtilegar klemmurnar semstórstjörn- urnar þurfa að glíma við. Litla breska leikkon- an hún Keira Knightley stendur frammi fyr- ir því þessa dagana að þurfa að gefa svar við spurningunni: Hvor kyssir betur, Johnny Depp eða Orlando Bloom? Svo virðist sem Depp gamli hafi haft vinninginn því stúlkan seg- ir í viðtali við InStyle tímaritið að gamli maðurinn hafi alls ekki verið slæmur. Orlando gæti orðið miður sín þegar hann fréttir af þessu því sjálfur hefur hann ekki farið leynt með einkunnar- gjöfsinaáframmi- stöðu Knightley. „Hún kyssir frá- bærlega vel og er yfirhöfuð yndisleg og fyndin manneskja. Hún er gersamlega frábær,“ lét kappinn hafa við sér í viðtali við annað tímarit. Lwus Sr Lwus eftir Jim Unger 8-30 O Jlm Unger/dist. by Unlled Medla, 2001 Jófríður, viltu stökkva út og ná í skóinn hans.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.