blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 1
 14 Einkaþjálfarinn og heilsuátakið 18 Heilsurækt og tæknin 20 Náðu stjórn á stressinu 21 Lífrænt ræktaður matur 22 Dansað af krafti 24 Líkamsrækt Maður lifandi Hágæðamatur úr hollu hráefni 28 Óhefðbundin líkamsrækt AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Maður lifandi er allt í senn heilsu- vöruverslun, matstofa og fræðslu- setur. Verslunin býður upp á fjöl- breytt úrval af heilsusamlegum mat og má þar finna lífrænt ræktaða fæðu, tilbúna hollusturétti og ný- pressaða ávaxta- og grænmetissafa. Einnig má nálgast þar hágæðamat úr ölíurn fæðuflokkum, mjólkur- lausar, sykurskertar, glúten- og ger- lausar vörur sem og sérlega kókos- olíu til grenningar. Auk matar selur Maður lifandi fæðubótarefni og lífrænar snyrti- og hreinlætisvörur. Verslunin er opin frá 10-20 á virkum dögum og frá 10-17 á laugardögum. Maður lifandi miðar að því að miðla þekkingu varðandi mikil- vægi hollrar næringar og innihalds matvöru og bætiefna. Fyrirtækið býður einnig gott úrval bóka, geisla- diska og gjafavöru ýmiss konar sem tengjast góðri heilsu. Verslunin er tilvalin fyrir nútímafólk sem vill viðhalda góðri heilsu og vera með- vitað um það sem það lætur ofan í sig. Þessi hugmyndafræði á bak við Maður lifandi nýtur sívaxandi vinsælda vestan- og austanhafs, þar sem hraði og kröfur á einstakling- inn eru sífellt að aukast. Mikil fjölbreytni einkennir fræðslustarfið hjá Maður lifandi. Markviss kynningar- og fræðslu- starfsemi er hjá Maður lifandi þar sem fjallað er um ýmsa þætti lífs sem tengjast hollustu og betri líðan. Á vorönn verður úrval fyrirlestra og námskeiða þar sem sérfróðir ein- staklingar fjalla um ástæðu offitu og leiðir til úrbóta, heilbrigði og hamingju, mataræði og krabbamein í blöðruhálskirtli, matargerð úr hollari fæðu og fleira er tengist heil- brigðum lísstíl. Einnig verður farið af stað með matreiðslunámskeiðin „Heilsukostur" hjá Maður lifandi i Borgartúni 24. fimmtudaginn 18. janúar. Á því námskeiði munu fær- ustu sérfræðingar hjá Maður lifandi kenna og miðla af fróðleik um heil- brigt mataræði. Námskeið og fyrirlestrar hjá Maður lifandi eru ein og hálf til þrjár klukkustundir í senn og er kostnaði haldið í lágmarki. Hægt er að skrá sig á madurlifandi@madur- lifandi.is og í síma 585 8703. Hjá Maður lifandi hefur fagfólk í heilsumálum aðstöðu fyrir með- ferð og ráðgjöf og getur fólk leitað til þess með sín mál. Nánari upp- lýsingar er hægt að nálgast á: www. madurlifandi.is.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.