blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 8
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03 YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunar- æfingar, slökun og hug- leiðsla. Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar. Sértímar fyrir byrjendur og — barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is NÝTT! Astanga yoga ] Norsk Rosenrot Rosenrot ORosenrotl ~kraftur' orka,andlegtálag - unnið úr Rosenrot Rosenrot Norge AS framleiðir vörur sínar úr norskri burnirót, Rosenrot er þekkt fæðubótarefni. www.rosenrot.no Fæst í Árbæjarapóteki, Lyfjavali Álftamýri, Lyfjavali Hæðasmára, Lyfjavali Mjódd, Lyf & heilsu og Rimaapóteki. fulleldað, tilbúið á 5 mín. MOUSSt LARVDRN I skíðaferðir og á ströndina 20 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 blaðiö Hollur lífsmáti á nýju ári Að ná stjórn á slæmu dögunum Suma daga er afskaplega einfalt og þægilegt að lifa heilsusamlegu lífi. Aðra daga dreymir okkur um kökur og sætindi, við borðum á við heila íjölskyldu og ætlum okkur aldrei að yfirgefa sófann. Með því að læra að stjórna þessum löngunum og neikvæðu hugsunum er hægt að halda í hollt mataræði og hreyfingu. 1 landi allsnægtanna, eins og Island er í augum flestra, er hungur ein- ungis ein af fjölmörgum ástæðum fyrir því að við borðum. Stress, leiði, ásýnd matar eða lykt, veislur, ein- semd eða vani eru allt hvatar til að borða. Þessir hvatar geta orðið sjálf- virkir svo þér líður eins og þú getir ekki stjórnað því hvað þú borðar. Eitt stærsta vandamál margra, sérstak- lega þeirra sem eru of þungir, er að borða þegar þeir eru ekki raunveru- lega svangir. Að ná stjórn á löngunum Stundum virðist sem við höfum enga stjórn á löngunum en langanir eru ekki líkamleg fíkn. Langanir eru eðli- legar og lært viðbragð við ákveðnum aðstæðum. Hvernig við hugsum hefur áhrif á hvernig við hegðum okkur en afleið- i n g a r n a r geta líka haftáhrif á hegðun okkar. S e m d æ m i Freistingar alls staðar Suma daga er afskaplega einfalt og þægi- legt að lifa heilsusamlegu iífi en allir eiga sínu slæmu daga þar sem ffeistingamar eru alls staðar. að á slæmum degi gætirðu þráð stóra pitsu í hádegismat en þú hefur samt sem áður tíma til að ákveða hvort þú ætlar að borða hana eða ekki. Próf- aðu þessa æfingu: Ekki hugsa um hvernig pitsan mun bragðast heldur um afleiðingar þess að borða pitsuna eða gefa hana. Ef þú borðar hana, hvernig mun þér liða? Ef þú borðar hana ekki, hvernig mun þér líða? Hvora tilfinninguna kýstu frekar? Ef þú tekur meðvitaðar ákvarðanir eins og þessa þá er auðveldara að sigrast á löngunum og finnast þú stjórna því semþúborðar. Nokkur góð ráð til að sigrast á löngunum: Viðurkenndu fyrir sjálfum/ sjálfri þér að með réttri tækni.erhægtaðbreytahugs- unum þínum og viðbrögðum við löngunum. Ekki banna ákveðin matvæli því þig mun aldrei langa eins mikið í þau og þá. Ekki hafa matvæli sem vekja löngun á stað þar sem þú getur nálgast þau auðveldlega. Forðastu að versla þegar þú ert svöng/svangur og notaðu innkaupalista. Reyndu að endast lengur en löng- unin, flestar langanir vara ein- ungis í 20 mínútur eða svo. Það getur hjálpað að búa til lista yfir athæfi sem leiða hugann að öðru, göngutúr, skoða heima- síður, taka til eða fara í bað. Talaðu fallega við sjálfa/n þig. Hvað segirðu við sjálfa/n þig þegar þú átt vondan dag? Er það neikvætt á við: Ég er vonlaus og get ekki neitt? Eru það kannski jákvæðar hugsanir á þessa leið: Ég er búin/n að borða of mikið í dag en ég hef misst 5 kg og mun halda áfram ótrauð/ur? Þetta eru dæmi um hugsanir sem hafa áhrif á hvernig okkur líður og hvernig við hegðum okkur. Orð sem við beinum að sjálfum okkur geta haft uppbyggjandi eða niðurdrep- andi afleiðingar. Að stjórna félagslegum aðstæðum Flest okkar upplifum slæma daga þegar við þurfum að sækja einhvers konar félagslega viðburði, eins og veislur eða fara á veitingastaði. En það eru leiðir til að takmarka skað- ann og gera hann sem minnstan: Skipuleggðu hvað þú ætlar að borða áður en þú ferð út. Ef þú borðar á veitingastöðum reglulega er auðvelt að velja hollari kostinn en geyma fínni réttina fyrir sér- stök tilefni. Ef þér finnst erfitt að hafna mat og óttast að þú móðgir gest- gjafann skaltu æfa þig heima. Borðaðu eitthvað létt áður en þú ferð í veislur og haltu þig frá feitasta matnum. Ef þér finnst sem þú verðir að borða það sem er fyrir framan þig eða að þú getir ekki hfað án íss skaltu skil- greina þig upp á nýtt sem einstakling sem getur sleppt slíkum mat því þú hefur ákveðið að breyta venjum þinum og láta þér hða frábærlega vel. Að koma sér aftur af stað Ef það reynist mþrsamlega ómögu- legt að standast s&kulaðið í skálinni eða kökuna skaltu ekki hafa sam- viskubit eða kalla þig ljótum nöfnum. Ef þú notar neikvæðni er líklegra að þú gefist alveg upp og finnist sem þú hafir eyðilagt allt. Fyrirgefðu sjálfri/ um þér og hugsaðu um hvernig þú ætlar að bregðast öðruvísi við næst þegar freistingar verða á vegi þínum. Ekki sleppa næstu máltíð svo þú verðir ekki of svöng/svangur og borðir of mikið. Vertu jákvæð/ur og góð/ur við sjálfa/n þig því þannig nærðu árangri. ignar 20 ara almæli Veggsport fagnar tuttugu ára af- mæli sínu en stöðin opnaði þann 15. mars 1987. Veggsport var stofnað af tveimur íþróttakennurum, Hilmari H. Gunnarssyni, og Hafsteini Daní- elssyni, en Hilmar segir að margt hafi breyst í starfseminni á tuttugu árum. Stöðin snýst ekki lengur ein- göngu um skvass þó svo að það sé vissulega aðalatriðið. „Starfsemin hefur breyst töluvert. Við höfum bætt við tækjasal, spinning, eróbikk og öllu ööru sem er í almennum líkamsræktarstöðvum.“ „Við erum með fjóra skvasssali í gangi núna, við breyttum aðeins fyrir nokkrum árum og settum golfhermi inn í einn skvasssalinn og það er mjög skemmtilegt líka.“ Hilmar segir að fólk sæki mikið í að komast í skvass og séu allir salir oftast fullir í hádeginu. „Svo opnum við klukkan 6 á morgnana og margir sem mæta i vinnu klukkan átta koma fyrst hingað og æfa áður en þeir halda til vinnu. Svo er líka alltaf törn á kvöldin og alveg þangað til við lokum klukkan hálfellefu.“ Hann segir að mikið verði af spenn- andi námskeiðum í boði á árinu. „Við verðum með í boði námskeið sem ber heitið Líkami og sál og er A lokað námskeið fyrir konur. Við ■ bjóðum einnig upp á Rope Yoga ™ fyrir bæði konur og karla, Global Training, stöðvaþjálfun fyrir litla hópa svo fátt eitt sé nefnt.“ Hann bætir við að margir einkaþálfarar séu í Veggsporti, tilbúnir að koma •8MÖ * fólki í gott form, bæði í skvassinu og tækjasalnum. Hilmar segir ennfremur að það muni margt verða gert sér til gam- ans á afmælisárinu. „Við verðum til dæmis með Live spinning-tíma fyrripart ársins þar sem við fáum hljómsveit til að koma og spila fyrir okkur í spinning-tíma.“ Hann segir að þetta hafi verið gert áður í Vegg- sporti með góðum árangri, til dæmis hafi hljómsveitir á borð við Gildr- una, Buttercup og I svörtum fötum komið að spila að ógleymdum KK og Magnúsi Eiríks- syni sem riðu á vaðið hjá Vegg- sporti. Skvass- mót eru reglu- lega haldin í Veggsporti og afmælisárið verður engin undan- tekning. „I haust verða tvö alþjóðleg skvassmót hjá okkur, annars vegar smáþjóðaleikar í skvassi og svo verðum við með alþjóðlegt atvinnu- mót kvenna hjá okkur líka. Það getur orðið skemmtilegt að fá topp sextán stelpurnar í skvassi í heim- inum hingað til að spila.“ Skvass er vaxandi íþrótt og sem dæmi um það þá valdi hið virta tímarit Forbes skvass sem heilsu- samlegustu íþróttina fyrir nokkrum árum. Hilmar segir að þetta val komi þeim félögunum lítið á óvart. .Skvassíþróttin styrkir líkamann, gefur gott þol og snerpu, ásamt því að fá góða útrás. Það er bæði fyrir konur og karla, unga sem aldr- aða.“ Til gamans má geta þess að einn af M e 1 d r i skvass- spilur- unum fh j á Vegg- | Æ sporti er 60 ára. Hilmar og Hafsteinn í Vegg- sporti Fagna tuttugu ára afmæli Veggsports á árinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.