blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 9

blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 9
blaðiö FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 I 21 Breytingar í matarmálum íslendinga Lífrænt ræktuð fæða er framtíðin Mnts&biU vmáfno Klipping bnrrt tektusíir ofi þykkblööungar -Jarbhitagmöur ■ Di!gþugs\iö iir Samkvæmt Rúnari Sigurkarls- syni hefur mikil vakning átt sér stað í neyslu lífrænt ræktaðra matvæla á undanförnum árum. Rúnar hefur, ásamt konu sinni, Hildi Guðmunds- dóttur, rekið verslunina Yggdrasil í liðlega 20 ár. I versluninni er mikið úrval fæðu, allt frá barnamat til kaffis og súkkulaðis og frá kornmeti til sultu. Hver einasta vörutegund í þétt setnum hillum búðarinnar er lífrænt ræktuð. „Lífrænt ræktuðu vörurnar hafa það fram yfir hefðbundnar vörur að við ræktun þeirra eru engin rot- varnar-, litar-, eða aukaefni notuð.“ Upphaflegt markmið Yggdrasils var að selja eingöngu lífrænt ræktaðar vörur og hefur það haldist æ síðan. „Fyrstu 15 árin voru viðskiptavinir Andleg slökun I þjóðfélagi þar sem mikið stress ríkir, hraði upplýsinga- flæðis er mörgum ofviða og allt þarf að gerast eins og skot verður andleg slökun mikil- væg. í seinni tíð hafa sprottið upp hvers kyns heilsulindir og andlegir heilarar með það sam- eiginlega markmið að huga að andlegu hlið mannskepnunnar. Slökunarnudd nýtur talsverðra vinsælda sem og andleg heilun sem miðar að því að byggja upp orkuforða einstaklinga sem þess þarfnast. Á símaskrá Netsins er einn heilari skráður þótt vafalaust séu þeir fleiri ( þjóðfélaginu. Hugleiðsla er góð slökunar- aðferð og hvetur fólk til kasta reiðinni á rásir fortíðar og taka á vandamálum með stófskri ró og jákvæðni. Lestur Ijóða hjálpar mörgum í baráttu við stress og læti og þau minna oft og tíðum á fegurð lífs og liðinna tíma. Á heimasíðunni www.ljod.is má nálgast fjölmörg Ijóð og þar hafa upprennandi Ijóðskáld látið til sín taka. Langir göngutúrar við strendur heimalands eða skóga ættu einnig að hvetja til slökunar og náttúruástar. Ekki væri verra að fá einhvern með sér í þær erindagjörðir og ræða þá jafnvel um lífsins listir og skilgreina hamingju í leiðinni. Freyðibað með rauðvínsívafi og sjávarnið á segulbandi hefur heldur engan svikið í leit að and- legri slökun. Áskriftarsími 586 8005 eða á www.rit.is r - 7) Sumarhúsib og garburinn ehf. -1—'Ql... Síhumúla 15, 108 Reykjavík SumarhúsM; og gorðurinn Sími 586 8005 • www.rit.is Gróandinn er kominn í nýjan búning Tryggðu þér eintak og lestu um eplarœkt, jarðhitagróður, jóga, safagerð, grœnmetisfœði, klippingu barrtrjáa, döglingsvið, kaktusa og margt fleira. groandinn gardyrkja - umhverfi - liellsa ■*> «W. 21. íqj. 2006 ki. ekki margir. Aðallega fólk sem hafði búið erlendis og kynnst lífrænt rækt- aðri fæðu þar. Fyrir 3-4 árum fóru hjólin þó að snúast allverulega." Heimsvitund virðist hafa átt sér stað, því ásamt aukningu hérlendis í líf- rænt ræktuðum matarmálum varð samhliða aukning erlendis. í raun varð ákveðin hugarfarsbreyting á heimsvísu. Lífræna matarbylgjan braust úr viðjum. Lífræn ræktun hefur verið stunduð frá örófi alda og er það margsannað að hún hefur mun betri áhrif á alla náttúru og jarðveg en hefðbundin ræktun sem og líðan neytenda. Þannig er lífræn ræktun í raun tvíhliða gróðatæki; bæði náttúra og neytendur græða til frambúðar. Yggdrasill er bæði verslun og heildsala, því vörur fyrirtækisins eru seldar í Fjarðar- kaupum, verslunum Hagkaupa og Blómavali svo fáein dæmi séu nefnd. „Almenningur hefur tekið mjög vel í vörur okkar og innkaupakörfur landsmanna innihalda smátt og smátt fleiri vörutegundir lífrænna vara.“ Eitt stærsta fyrirtækið sem Yggdrasill kaupir vörur af er hið þýska Rapunzel. Stefna þess fyr- irtækis, sem og flestra lífrænna ræktunarfyrirtækja, er að bera virðingu fyrir jörð og mönnum. Barnaþrælkun viðgengst ekki þar á bæ, mannsæmandi laun eru greidd öllum aðilum og hluti gróðans fer í uppbyggingarstarfsemi. Samkvæmt Rúnari hefur verð- munur milli lífrænt ræktaðra vara og hinna hefðbundnu verið að minnka á síðastliðnum árum en mun alltaf vera einhver. „Þjóðin virðist vera meðvitaðri um neyslu lífrænnar fæðu og í dag er fjöldi fs- lendinga sem kýs aðeins lífrænar vörur, enda eru þær framtíðin,‘ segir Rúnar og býður landsmenn velkomna í verslun sína, Yggdrasil, að Skólavörðustíg 16. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verslunarinnar: www, yggdrasill.is. Fjögur blöö á árt, sé greitt meö VISA/MASTERCARD. Áskrlftin gildir í eitt ár og endumý/ast þá sjálfkrafa sé Itentti ekki sagt upp fyrir þantt títna. Árgangur 2007 aftímaritinu Gróandanum á aðeins kr. 2.840.-

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.