blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 blaöið 22 i Kara segir ennfremur að þeir sem stundi dansinn sem íþrótt upp- skeri mikið af því. „Dans er mjög mikil hreyfing og fólk sem stundar dans sem íþrótt byggir upp snerpu, liðleika og þol.“ Dansskólinn skipti nýverið um húsnæði, færði sig úr Bolholti yfir í stærra húsnæði að Borgartúni 6. Kara segir að hinir hefðbundnu samkvæmisdansar hafi hingað til verið vinsælir en með auknu rými muni skólinn geta boðið upp á meiri fjölbreytni í námskeiðum slnum. „Það sem er nýtt hjá okkur núna, þó svo að það sé ekki nýr dans, er að við erum i fyrsta skipti að bjóða upp á breakdans." Að auki er boðið upp á freestyle-nám- skeið þar sem kenndir eru dansar sem birtast í vinsælustu tónlistar- myndböndum. Kara segir að stelp- urnar sæki mun meira í freest- yle-námskeiðið en bindur miklar vonir við að strákarnir flykkist í breakdans-námskeiðið. En það er ekki bara yngri kyn- slóðin sem dansar í dansskólanum því Kara segir að nemendur séu á öllum aldri. Námskeiðin sem boðið er upp á endurspegla þessa miklu breidd sem er á aldri nemenda dans- skólans. Unglingarnir sækja freest- yle-námskeiðið, yngstu börnin læra léttari dansa á borð við fugladans- inn og fullorðnir læra hina hefð- bundnu samkvæmisdansa svo sem salsa, jive og mambó. „Yngstu nem- endurnir eru 4 ára og sá elsti sem hefur verið hjá okkur er áttræður. Það geta allir dansað, sama á hvaða aldri þeir eru.“ ýmsu gerðir dansa. Kara Arngrímsdóttir danskenn- ari segir að fæstir átti sig á því hversu mikil hreyfing felist í því að stíga sporin á dansgólfinu. „Fólk fer almennt ekki í dansskóla með það í huga að það sé að fara í ein- hverja heilsurækt. Yfirleitt fer fólk í dansskóla til þess eins að læra að dansa til að geta bjargað sér á dans- gólfinu. Það kemur fólki oft mjög mikið á óvart hvað dansinn er mikil hreyfing, þótt það gefi auga leið þá er það ekki fólki efst í huga.1' Það er fátt skemmtilegra en að dilla sér í takt við fjörlega tónlist. Margir muna eftir því hversu mikil gleði og ánægja fylgdi því að dansa fugladansinn á yngri árum og það er ekkert sem segir að dansinn geti ekki líka fært fólki gleði á efri árum. Það er alkunn staðreynd að hinar ýmsu gerðir dansa eru prýði- leg heilsurækt, enda gengur oft mikið á hjá þeim hressari. Dans- skóli Jóns Péturs og Köru hefur nú í tæp átján ár kennt íslenskum ung- mennum sem og fullorðnum hinar Jón Pétur og Kara Fólk áttar sig ekki á hversu mikil heilsu- rækt darts er. Dansskóli Jóns Péturs ogKöru Það geta allir dansað Með Angelicu færð þú tvenns konar virkni í sömu vöru. 1100 ára reynsla af notkun ætihvannar færð til nútímans studd rannsóknum. „Ég hef tekið Angelicu jurtaveig í meirn en þrjú ár. Áhrifín eru greinilega góð, meiri andlegur og líkamlegur styrkur til að vinna mitt skapandi starf í veflistinni. sagaMedica Angelica Hvönn Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl! Angelican er tvímælalaust aukin vörn gegn kvefí og umgangspestum". sagaMedica Fæst í lyfja- og heiisuvöruverslunum www.sagamedica.is Kjörþyngd, jafnvægi, orka og heilsa árið 2007 Nú er enn og aftur komið að því að horfast í augu við aukakiló sem mörgum okkar hafa áskotn- ast yfir jólahátíð- arnar, einnig þeir sem hafa þurft að burð- ast með þau í lengri tíma. Ekkert undra- lyf er enn til sem einhliða svarviðumfram- þyngd og þeim heilsufarsvand- ræðum sem oft hljót- ast af henni. En þó nokkuð mörg náttúruleg efni eru á markaði sem hafa veitt mörgum ágætis árangur. Síðastliðin 2 ár hefur verið fáanlegt Metasys þyngd- arstjórnunarefni og áætlun og hafa vinsældir þess efnis aukist jafnt og þétt og má ætla að hátt í 1500 Islend- ingar taki inn Metasys daglega sem góða aðstoð við þyngdarstjórnun ásamt því að vera mjög heilnæmt og orkugefandi. Innihaldsefnið í Metasys er grænt te-extrakt sem er unnið á einstakan máta með svokall- aðri vatnsmeðhöndlun sem gerir það að verkum að heilnæmu og virku efnin í græna telaufinu tapast síður miðað við hefðbundna verkun. Metasys er í hylkjum og eru tekin 4 hylki á dag ef maður þarf að losna við umframþyngd en þeir sem vilja viðhalda hinni góðu orkubreytingu og nýta heilnæmu efnin og eru í kjör- KYNNING þyngd taka 2 hylki á dag. Metasys heldur úti heimasíðu á www. metasys.is sem mun reyndar fá nýja ásýnd seinnipart- inn í janúar en þar er hægt að finna margar umsagnir fjölda ánægðra viðskiptavina auk hagnýtra upplýs- inga. 1 byrjun febrúar mun Metasys hefja mjög áhugaverða fyrirlestra og námskeiðaröð um þyngdarstjórnun og mataræði sem frekari aðstoð til að berjast við offitupúkann. Met- asys er einnig að leita að góðum nýjum umsögnum og er ánægju- legt að geta þess að Metasys er með eindæmum vinsælt á Akureyri og í Vestmannaeyjum og þeir sem hafa góða sögu að segja eru hvattir til að senda hana inn á metasys@simnet. is eða í pósti til: Metasys/Gengur vel, Óðinsgötu 1,101 Reykjavík.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.