blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 13

blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 13
blaðið FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 I 25 Hreyfigreining býður upp á góð námskeið Leiðin til léttara lífs Nú er runninn upp sá tími þegar þorri landsmanna ákveður að segja bumbunni stríð á hendur og hóp- ast fólk því í líkamsræktarstöðvar landsins. En það er með líkamsrækt líkt og svo margt annað að það borgar sig að flýta sér hægt. Fólk sem hefur ekki stundað líkamsrækt í dágóða stund verður að passa sig að ofgera ekki líkama sínum svo að skaði hljótist af. 1 Hreyfigrein- ingu að Höfðabakka 9 er hugað að tveimur mikilvægum þáttum heilsu- ræktar, það er að segja líkamsrækt og sjúkraþjálfun. Gunnar Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Hreyfigreiningar, lýsir fyrirtækinu þannig að það bjóði upp á gott andrúmsloft, þægi- legt og hljóðlátt umhverfi fyrir við- skiptavinina; enginn hávaði eða læti. Aðalstarfsemin hjá Hreyfigreiningu er sjúkraþjálfun sem er allsherjar- viðgerð á kroppnum eftir sjúkdóma, slys, stress eða bara hreyfingarleysi. Gunnar segir að starfsfólk Hreyfi- greiningar vilji koma líkama og anda fólks í samt lag. „Við viljum auka hreyfifærni manna, liðka liði, minnka sársauka, auka blóðflæði og styrk og bæta líðan viðskiptavina." Hreyfigreining býður líka upp á hefðbundna líkamsrækt undir styrkri leiðsögn einkaþjálfara. „ Allir einkaþjálfararnir okkar eru sjúkra- þjálfarar eða nemar á fjórða ári í sjúkraþjálfun. I tækjasalnum sér menntað fólk um leiðbeiningar til viðskiptavina. Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu.“ Á nýju ári er boðið upp á mörg spennandi námskeið. Til dæmis er boðið upp á átta eða sextán vikna átaksverkefni sem eru sérsniðin að þörfum kynjanna. Konurnar hafa „I formi til framtíðar“-námskeiðið á meðan karlmenn geta skráð sig á „Bumban burt“-námskeiðið. 1 upphafi námskeiðanna er byrjað ró- Heilsurækt bætir svefn og hressir geð Svefn gegnir óneitanlega stóru hlutverki hjá hverjum einstak- lingi. Á meðalævi manneskju fer um þriðjungur líftíma hennar (svefn. Þá staðreynd hugsa ef til vill ekki margir um fyrr en hið óþolandi svefnleysi bankar á dyr. Læknar um heim allan hafa rann- sakað svefnleysi og komist að því að heilsusamlegt líferni auki líkur á góðum og nærandi næt- ursvefni. Regluleg líkamsrækt er talin hjálpa fólki að sofna fyrr, komast betur milli svefnstiga og hún stuðlar einnig að lengri tíma á dýpsta stigi nætursvefns. Hæfileg líkamsrækt stunduð í hálftíma 3-4 sinnum í viku ætti að auka orku og bæta svefn. Þá mæla sérfræðingar með því að útkeyra sig ekki líkamlega stuttu fyrir svefntíma, frekar er mælt með að stunda kaloríubrennslu á morgnana eða fyrri hluta dags. Það er ekki bara svefnmynstur sem batnar við aukna hreyfingu heldur hefur regluleg líkams- rækt áhrif á framleiðslu endor- fíns, eykur súrefnisstreymi til heilans og hefur eyðandi áhrif á stress, leiðindi og áhyggjur. Svo má alls ekki gleyma speki hins forna máltækis; heilbrigð sál ( hraustum líkama. lega en síðan er stígandi í námskeið- unum þannig að aðilar svitna pass- lega og brennsla er í fullum gangi. Einnig eru haldnir fyrirlestrar um lífsstíl, næringarfræðingur heldur fyrirlestur og gefur ráð. Stóra námskeiðið hjá Hreyfi- greiningu þetta árið er námskeið sem hefur hlotið nafnið Leiðin til léttara lífs. Þetta námskeið stendur yfir i 36 mánuði og er hugsað fyrir stórt og mikið fólk sem er með of háan BMI-stuðul. BMI-stuðullinn er fundinn með því að reikna hæð einstaklings í öðru veldi og síðan deila henni með líkamsþyngdinni. Ef útkoman er 25 til 29.9 er einstak- lingur yfir kjörþyngd en ef talan er 30 eða hærri glímir einstaklingur við offitu. Á námskeiðinu verður ekki bara treyst á sérhæft starfs- fólk Hreyfigreiningar heldur mun læknir vera með fullkomna lækn- isskoðun á tímabilinu, næringar- fræðingur og sálfræðingur munu vera með bæði einstaklings- og hóp- tíma og einnig mun sjúkraþjálfari meta ástand allra þátttakenda til - ;.S5 i® iLJr að tryggja að líkama þeirra sé ekki ofboðið. Gunnar er mjög spenntur fyrir þessu langtímaverkefni og hyggst sjálfur taka þátt í því. „Enda veitir mér ekkert af því.“ Nánari upplýsingar um Leiðina til léttara lífs sem og önnur námskeið Hreyfigreiningar er hægt að nálgast á heimasíðu Hreyfigreiningar, www. hreyfigreining.is. !! 11' '#£l 116 ár höfum við hjálpað þúsundum kvenna að léttast, auka likamlegt þrek og andlega veltíc Bestu meðmælin eru allar þær ánægðu konur sem náðu sínum markmiðum. Nú er komi" * * Skráðu þig strax f sima 414 4000 eða með tölvupósti á afgreidsla@hreyfing.is Morqunhópar Dagnópar Kvoldhópar Framhalashópar Barnagæsla Innifalið: • Þjálfun 3-5x i viku - frjáls aðgangur að tækjasal og opnum tímum. • Markviss leið að árangri með réttu mataræði. Fræðslufundur með Ólafi G. Sæmundssyni næringarfræðingi á Grand hótel í upphafi námskeiðs. • Vikuleg vigtun. Ummáls- og fitumælingar (upphafi og lok námskeiðs. • Markvisstfræðsluefni vikulega og mikið aðhald. • Lögmálin 9 um megrun - bókin sem opnar augu þín fyrir leiðinni að varanlegum árangri og hjálpar þér að viðhalda árangrinum eftir að námskeiðinu lýkur. BETRA F0RM x6 ÁRANGUR 1,2,3 PÍLATES TÆKJAÞJÁLFUN HJÓLAÞJÁLFUN SALSA TÆBÓ & PALLAÞJALFUN TEYGJUR

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.