blaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 16
28 I iEILSA
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 blaöiö
Andleg íhugun, dekkjaspænir, tvöfaldur olnbogalás
og eldheit súla í borðstofunni
Óhefðbundnar íþróttagreinar
Það er ekki fyrir alla að þrykkja
leðurbolta í mark eða synda skrið-
sund á mettíma. Sumum finnst
alls ekki gaman að etja kappi við
andstæðing í spretthlaupi eða gera
tilraun til þess að skáka kóng hans
á augabragði. Fyrir þá sem kjósa að
fara óhefðbundnari leiðir í íþrótta-
iðkun og almennri hreyfingu koma
hér nokkrar hugmyndir.
1.
Bardagalistir
Hinar ævafornu bardagalistir
hafa í gegnum tíðina verið
þjálfunaraðferðir stríðs-
manna, einkum asískra.
Bardagalistir eru allt í senn
hreystiæfingar, sjálfsvarn-
araðferðir, hugleiðsla,
sjálfsuppbygging og
skemmtilegar íþrótta-
greinar. Það eru til
fjölmargar undirgreinar innan bar-
dagalista og á fæstum þeirra hefur
almenningur stórkostlega þekk-
ingu. Kata, jiu jitsu, sambo, taekw-
ondo og kungfú eru aðeins nokkur
dæmi um bardagalistir. Heilsurækt
með sál og sögu.
n Súludans
Súludans á ekki lengur aðeins lög-
heimili á nektardansstöðum
heimsborga, því hann hefur
verið að flytjast í stórum stíl
inn á kjarnafjölskylduheim-
ili. Súlu er jafnvel komið
fyrir í borðstofu eða eld-
húsi. Súludans þykir sér-
lega hentugur, í fyrsta
lagi konum og í öðru lagi
þeim sem hafa óbeit á sveittri stemn-
ingu líkamsræktarstöðva. Súludans
eykur liðleika og almenna sveiflu-
getu, og hann þykir einstaklega
góður ef rækta á kynþokka og sína
innri manneskju í leiðinni.
Jóga
Jóga er upprunnið á Indlandi sem
líkamlegar æfingar samtvinnaðar
við andlega stjórnun. Jóga er frekar
flókið kerfi með ýmsum stigum
sem hafa engu að síður það sameig-
inlega markmið að frelsa iðkendur
frá veraldlegum þjáningum og ei-
lífri hringrás lífs og dauða. Hið nú-
tímalega jóga er aðallega líkamlegt
og iðkun þess eykur liðleika líkama
og hreyfigetu. Jóga þykir einnig
gott fyrir andlegu hlið mannskepn-
unnar þar sem íhugun er órjúfan-
legur hluti hennar.
Fallhlífarstökk
Fallhlífarstökk var fyrst stundað
seint á 18. öld og hefur íþróttin verið
vinsæl æ síðan, bæði sem keppnis-
grein og einnig sem afþreying. Fall-
hlífarstökk hefur verið notað við
að slökkva skógarelda og í hernaði
í heimsstyrjöldunum tveimur. Við
spennufíkla mætti mæla með þess-
ari íþrótt því fallhlífarstökkið er
talið frekar áhættusamt.
BMX-hjólreiðar
Heppinn telst sá aðili sem hefur
glæsilegt BMX-hjól á sínum snærum.
BMX-keppnishjólreiðar eru ekki að-
eins einstaklega spennandi íþrótta-
grein að fylgjast með heldur eru þær
líka ótrúlega góð líkamsrækt. Sá eða
sú sem ferðast á BMX-hjóli í mið-
borg Reykjavíkur á mikið hrós skilið,
í fyrsta lagi fyrir það að vera mjög
töff og í öðru lagi fyrir að ferðast á
umhverfisvænan hátt staða á milli.
BMX-hjólið er margnota tól; bæði er
það íþróttakeppnistæki og árspassi í
bilastæðahús, því BMX-kappar þurfa
aldrei að leita sér að stæði.
Klukkustund bætt við da.ginn
Tímastjórnun
Hinn einfaldi og óþægilegi
sannleikur er sá að sennilega
erum við uppteknari í dag en
við höfum nokkurn tímann verið.
Vísindin styðja þá staðreynd auk
þess sem sannanir þess má sjá
hvarvetna í kringum okkur. Fólk
talar of hratt, flýtir sér of mikið,
byrjar á hlutum en klárar þá
ekki og er endalaust upptekið
af þeirri hugmynd að það hafi
gleymt einhverju. [ örvæntingar-
fullri tilraun til að spara tíma er
fjárfest í vélum sem eiga að fela
í sér tímasparnað og vörum sem
eiga að gera líf okkar auðveldara.
Stanslaus skortur á tíma leiðir til
stress en þegar litið er á björtu
hliðarnar er auðvelt að bæta
klukkustund við sólarhringinn
með tímastjórnun.
Gerðu dagbók
Skoðaðu eina viku og skráðu
niður hvað þú gerir á hverjum
degi, heiðarleiki skiptir miklu máli.
Ef þú horfir á sjónvarp í 25 tíma
á viku skaltu skrifa það niður. Allt
er skrifað niður, tími sem er eytt á
klósettinu, í að borða, í símanum
og svo framvegis. Það getur verið
áfall að sjá hve litlum tíma við
eyðum í að sinna sjálfum okkur
en það er vonlaust að ákveða að
nota tímann betur ef þú veist ekki
í hvað þú eyðirtíma þínum.
Lærðu að segja nei
Slökktu á símanum einstaka
sinnum. Þegar einhver biður þig
um að gera eitthvað sem þú hefur
ekki tíma til skaltu segja það, kurt-
eislega en ákveðið. Ekki leyfa þér
að fá samviskubit því með þessu
ertu að einblína á þín markmið.
Þegar þú veist nákvæmlega hvað
þú hefur tíma fyrir, með hjálp
dagbókarinnar, er auðveldara að
segja nei við beiðnum sem passa
ekki inn í forgangsröðun þína.
Verkefnalisti
Gerðu verkefnalista og skrifaðu
niður nákvæmlega hve miklum
tíma þú munt eyða í hvert atriði.
Listar eru alltaf hjálplegir en
þegar þú setur nákvæman tíma
með þá áttu auðveldara með að
finna verkefni sem hentar tiltek-
inni stundu.
Leyfðu tölvunni að hjálpa
Tæknin kom þér í þennan vanda
til að þyrja með og þú getur
notað hana til að aðstoða þig út
úr honum. Notaðu forrit sem að-
stoðar þig við að halda utan um
skipulag, verkefnalista, símabók
og dagbók. Þannig losnarðu við
allan óþarfa pappír og drasl sem
er mjög mikilvægt.
Ekki vera með fullkomnunaráráttu
Það er ekkert að því að vera venju-
legur. Ef þú ert með fullkomnun-
aráráttu og tekur sérstaklega vel
eftir öllum smáatriðum eyðirðu
orku að óþörfu. Settu þér raunsæ
markmið og gerðu þitt besta.
Allt á einum stað
Skvass
Körfubolti
Spinning / Þrektímar
Golfhermir
Tækjasaiur
Ljós / Gufuböð
Aém
I x*n
20 ára 1987-2007
T
jZykvassC \ }J<utsHrtekt
tL .. ^
fðd 17. v. Gullinbrú • 577 5555 •Sl
www. veggsport; ís