blaðið - 05.01.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 05.01.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007 blaAiA INNLENT UTSKRIFTARNEMAR Vilja í fjármálafyrirtækin Útskriftarnemar úr hagfræöi og viðskiptafræði sækjast helst eftir að fá vinnu hjá fjármálafyrirtækjum og gera hærri launakröfur en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem er birt í nýjasta tölublaði Hags, tímarits Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Semja um listarannsóknir Listaháskóli íslands og menntamálaráðu- neytið hafa samið um styrki til skólans sem notaðir verða til að standa að rann- sóknum og uppbyggingu þekkingar á sviðum lista og listsköpunar. HVALFJARDARGONG Fimm þúsund á sólarhring Rúmlega fimm þúsund bílar fóru um Hvalfjarðargöng á hverjum sólar- hring síðasta árs að meðaltali. Alls voru farnar tæþlega 1,9 milljón ferðir um göngin á síðasta ári og er það níu prósenta aukning frá fyrra ári að því erfram kemur á vef Skessuhorns. Göngin voru hönnuð fyrirfimm þúsund bíla umferð á sólarhring og er umferðin í fyrra ofan þeirra marka. Hefta likamlegan þroska fatlaðrar dóttur: í barnastærð til æviloka Hart hefur verið deilt á foreldra níu ára gamallar fatlaðrar stúlku í Bandaríkjunum sem gáfu henni hormón og létu gera skurðaðgerð á henni til að hefta líkamlegan þroska hennar. Stúlkan hefur ekki sýnt neinar framfarir í andlegum þroska frá þriggja mánaða aldri og eru foreldrar hennar ekki vissir um að hún þekki þá í sjón. Faðir stúlkunnar lýsti aðgerðunum og ástæðum þeirra á bloggi sínu. Fyrir þremur árum fóru þeir að gefa henni hormón til að draga úr vexti hennar vegna þess að þeir óttuðust að hún yrði fljótlega of þung til að hægt væri að færa hana auðveldlega á milli staða. Við hormónagjöfina fór stúlkan að sýna merki um óvenju snemmbúinn kynþroska og ákváðu foreldrarnir þá að láta fjarlægja úr henni legið og fram- kvæma skurðaðgerð sem myndi hindravöxtbrjóstanna. Þettasegj- ast þeir hafa gert til þess að vernda hana gegn þeim óþægindum sem blæðingar og konubrjóst gætu valdið henni Lýsing foreldranna og grein um sama mál eftir tvo lækna við sjúkra- húsið þar sem aðgerðirnar voru framkvæmdar, hafa vakið hörð viðbrögð fólks um allan heim og vakið spurningar um siðferðislegt réttmæti þessa inngrips. Meðferðin hefur verið kölluð ómanneskjuleg og hafa sumir gengið svo langt að líkja henni við tilraun að hætti Frankensteins. Níu ára gömul og með andlegan þroska á við þriggja mánaða barn. Ashley litla á aldrei eftir að verða mikið stærri en þetta, aldrei meira en 135 sentimetrar á hæð og 35 kíló að þyngd. DU PareÍL Laugavegur 1 7 og Kringlunni Sími 552-6744 og 588-6750 ■ Happdrætti Háskólans fór aö lögum ■ Borgarstjóri óánægöur Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Vandinn er sá að borgaryfirvöld hafa aðra hugmynd um byggðaþróun í Mjódd heldur en gildandi skipulag felur í sér,“ segir Páll Hreinsson, lagaprófessor og formaður stjórnar Happdrættis Háskóla Islands. Hann var ásamt öðrum forsvarsmönnum happdrættisins kallaður á fund borg- arstjóra í gær til að ræða fyrirhug- aðan rekstur spilasalar Háspennu ehf. i verslunarkjarnanum í Mjódd- inni en Happdrætti Háskólans leigir fyrirtækinu happdrættisvélar. „Samkvæmt gildandi skipulagi borgaryfirvalda i Mjódd er leyfilegt að reka spilasali þar. Sá rekstur sem Háspenna hefur í hyggju að reka þar er því löglegur og hefur fyrirtækið hlotið öll tilskilin leyfi til rekstrar- ins. I þessu ljósi kemur það á óvart að borgaryfirvöld skuli vera óánægð með staðsetningu þessa rekstrar," segir Páll. Hann segir það vekja undrun að borgaryfir- völd skuli hafa beint spjótum sínum að Happ- drætti Háskóla íslands sem í einu og öllu hafi farið eftir lögum. „Það hefurgættþessaðhapp- ______ ______ drættisvélar séu ekki á öðrum stöðum en sam- §gH|: pHlff sTglÍ! rýmist lögum og skipu- s-~=Æ lagsákvörðunum borg- £§“ aryfirvalda á hverjum tíma.“ Páll segir það hafa komið fram á fundinum með borgarstjóra í gær að hann teldi staðsetningu spila- salarins engu að síður óheppilega. Gu|!fKurlmóti .Guilnamunni Blaðið 7. nóv 2006 „Það er þess vegna fyrir- hugað að ræða við for- svarsmenn Háspennu og kanna hvort finna megi lausn á málinu. Að öðrum kosti þurfa borgaryfirvöld að breyta gildandi skipu- lagi i Mjódd,“ tekur Páll fram. Hann telur málið nú komið í eðlilegan farveg og vonar að lausn fáist sem sátt verði um. Kaupþing fær jákvæða umsögn: Verslað með hlutabréf fyrir fjóra milljarða „Þetta eru jákvæð tíðindi fyrir bankann og hefur góð áhrif á mark- aðinn i heild,“ segir Karl Finnboga- son, forstöðumaður markaðsvið- skipta hjá VBS fjárfestingarbanka. I sérstakri úttekt greiningar- deildar Citigroup banka á Kaup- þingi sem birt var 1 gær var sér- staklega mælt með kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi. Umsögn greiningardeildarinnar er mjög já- kvæð og telur bankinn að hlutbréf í Kaupþingi geti vaxið um allt að 19 prósent á þessu ári. Mikið var verslað með hlutabréf í Kaupþingi í Kauphöllinni í gær og hækkuðu bréfin um 2,79 prósent. Alls námu heildarviðskipti með bréf í bankanum rétt rúmum fjórum milljörðum sem var um einn þriðji af heildarviðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Karl segir ljóst að fjárfestar hafi tekið þessum tíðindum vel og að fróðlegt verði að fylgjast með fram- vindu mála. „Við erum frekar bjart- sýnir á framhaldið. Við erum ekki að tala um einhvern mögulegan skyndigróða fyrir fjárfesta en það er greinilega áhugi.“ Hlutabréf hækkuðu um 2,79 prósent í gaer Greinilegur áhugi fjárfesta á Kaupþingi

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.