blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 40

blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 40
UAGUR 6. JANUAR 2007 Flestir raðmorðingjar bandanskir 85% af raðmorðingjum heimsins koma frá Bandaríkjunum. Á hverjum einasta degi í landi hinna frjálsu eru 20 til 50 raðmorðingjar „starfandi" sem ekki hafa enn verið V borin kennsl á. V John Wayne Gacy jr. a. Einn hræðilegasti raðmorðingi allra tíma var hinn bandariski John Wayne Gacy jr. Hann drap og misnotaði 29 unga drengi og kom líkunum fyrir „ undir parketinu heima hjá sér. blaðiö Rokkarar í fangelsi Svo virðist sem það séu lög að rokkarar fylgi ekki lögunum. Hérna eru fangamyndir af nokkrum glæpamönnum úr rokkbransanum. ÞÖ GETUR ÞAÐ LÍKA! Valgeir Skögfjörð leikari, fyrnjm stórreykirrgarmaður, sagir hérfrá reynslu sinni af reykingum. Hann drap f fyrir fullt og alltcg heldur nú námskeið fyrir þá sem vilia taka þá ákvörðun. Eftir að hafa lesÖ þessa bök getur þú hætt líka .Þetta er stiffróðleg og skemrritileg bók. Hún logará milli fingranna og ég er víss um að hún oetur slökkt f stærri stubbum en mér’ Bnai MlrGuörwjrvdiKn, ithufuriíijr Nýtt líf ó nýju ári ÍUVj Skrifaði bréf þar sem hún sagöist óttast að eig- inmaður sinn myndi myrða sig. Deana Noddings átti í sjö ástar- samböndum á meðan hún var gift eiginmanni sínum, Colin Nodd- ings, og stuttu eftir að þau skildu. Hann var ennþá ástfanginn af henni eftir að hjónabandi þeirra lauk. Ástarfundir hennar með öðrum mönnum fóru ekki vel í Colin, sem á endanum brjálaðist og kyrkti hana. Þetta var reyndar sagan sem hann sagði lögreglunni. Ef Deana hefði lifað af gæti verið að hún hefði sagt aðra sögu. Hún hefði að öllum líkindum sagt frá hjóna- bandi þeirra sem var svo storma- samt að hún skrifaði bréf ári áður en hún var myrt þar sem hún sagði líklegt að eiginmaður sinn myndi á endanum myrða sig. Ári síðar upp á dag var hún myrt. Colin Noddings, 54 ára gam- all bifvélavirki, sagði við réttar- höldin að eiginkona sín, Deana, 46 ára, hefði verið með skrítnar kynlífshneigðir og vildi láta binda sig niður á meðan á kyn- lífi stóð. Hann sagði hana hafa sagt sér frá framhjáhöldum sín- um og að mennirnir sem hún naut ásta með væru miklu betri en hann. Þegar hún montaði sig af enn einu ástarsambandinu sagð- ist hann hafa fengið nóg og kyrkt hana. Colin og Deana áttu í löngu „haltu mér, slepptu mér“ sambandi áður en hann myrti hana. Þau slitu samvistum nokkr- um árum áður og hún flutti úr bænum sem þau bjuggu í. Þá réð hann einkaspæjara til að hafa uppi á henni og þegar hún fannst hóf hann að elta hana. Hann njósn- aði um hana á meðan hún naut ásta með hinum og þessum karl- mönnum og reiðin ólgaði innra með honum. Árið 1999 var Deana í slagtogi meðmilljónamæringi.Colináreitti parið þar til hún lét undan, hætti m e ð 6 millanum og hóf að vera með hon- um. Sambandið entist í nokkur ár, en árið 2005 fóru brestir að koma í ljós. Það var þá sem hún skrifaði umrætt bréf þar sem hún sagðist viss um að eiginmaður sinn myndi myrða sig. Deana hóf enn eitt ást- arsambandið, í þetta skiptið varð yfirmaður hennar fyrir valinu. Colin Noddings var ekki sáttur og hótaði að kyrkja hana „þar til augu hennar dyttu úr augntóftun- um“. Hún tilkynnti lögreglunni hótanirnar, en lítið var gert í mál- inu. Daginn eftir setti Colin upp skilti fyrir utan heimili þeirra sem auglýsti framhjáhald henn- ar. Á skiltinu stóð að eiginkona hans hefði haldið framhjá honum með þremur yfirmönnum sínum. Skömmu síðar, eftir að Deana hundsaði bón lögreglunnar um vernd, réðst hann á hana á heim- ili þeirra. Hann sagðist hafa kyrkt hana vegna þess að hann óttaðist að hún myndi slíta sambandi þeirra. Hann varð að vera fyrri til. Við réttarhöldin neitaði Colin Noddings að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi. Hann sagði ættingja hennar ljúga upp á sig og þessu trúði kviðdómurinn. Colin Nodd- ings slapp með átta ára fangelsi fyrir manndráp. atli@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.