blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 18
34 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007
blaðið
» Vegvísir að íbúðinni minni
Lára Rúnarsdóttír
tónlistarkona býr í Hafnarfiröi. Hún
dansar tangó í stofunni við fagran mann innan
um mýs og drauga sem stela fjarstýringum og
er hætt að tossast með uppvaskið.
ygpp
Hvernig kemst
maður í svona
Duran Duran-partí?
Hvernig kemst maður í svona partí
eins og Kaupþings-gaurinn hélt í
London um daginn? Ég hefði alveg
verið til í að sjá
Duran Duran aftur;
ég er samt ekki
í viðskiptum við
Kaupþing en ég
efast um að það
eitt hefði veitt mér
inngöngu.
En hvernig fólk
fær að mæta í þessi partí? Ætli maður
þurfi ekki að vera ógeðslega ríkur og
helst frekar frægur. Ætli maður þurfi
ekki að þerra tár sín með fimmþús-
undköllum og bursta í sér tennurnar
með hlutabréfum í Marel áður en
maður hoppar upp í Land Roverinn á
morgnana og keyrir áleiöis í vinnuna í
Kauphöllinni? Ég trúi samt ekki að það
sé svona einfalt. Það eru svo margir
milljónamæringar á fslandi í dag. Ríka
fólkið hlýtur að finna sér vini utan
hópsins.
Kannski þarf maður að vera fárán-
lega skemmtilegur - svo skemmtilegur
að í hvert skipti sem maður labbar inn
í herbergi standi viðstaddir upp og
klappi. Kannski þarf maður að vera
svo skemmtilegur að maður þurfi
ekki nema að blikka augunum og þá
springi fólkið í kringum mann úr hlátri.
Það getur samt ekki verið málið. Það
er ekkert gaman að vera með fullt af
skemmtilegu fólki í partíinu sínu. Þá
myndi greyið Kaupþings-gaurinn þurfa
að hanga í eigin partíi með fólki sem
væri stöðugt að reyna að stela þrum-
unni hans.
Kannski þarf maður að vera ótrúlega
fallegur til að fá inngöngu Duran Duran-
partíin. Kannski þarf maður að vera
svo fallegur að þegar maður gengur
inn í matvörubúð sé ekki nóg með að
hurðin opnist sjálfkrafa fyrir þér, heldur
hneigi hún sig líka og bjóði góðan
dag. Kannski þarf maður að vera svo
fallegur að fólk gráti af hamingju þegar
maður hittir það og fái auk þess ofbirtu
í augun af yfirþyrmandi fegurð. Það
getur samt ekki verið að það sé málið,
ekki myndi Kaupþings-gaurinn vilja
vera fastur í eigin partíi með fólki sem
erfallegra en hann sjálfur.
Kannski er málið að maður þurfi
að vera fátækur til að fá að mæta.
Fátækur, leiðinlegur, Ijótur og ekkert
frægur. Kannski vildi Kaupþings-gaur-
inn láta þetta partí vera sitt móment og
ekki neins annars. Kannski vildi hann
að Simon LeBon í Duran Duran myndi
horfa yfir salinn og sjá strax hver væri
ríkastur, frægastur, skemmtilegastur
og fallegastur. Kannski dreymdi hann
um að LeBon myndi kalla nafn hans
í hljóðnemann svo allir myndu líta á
hann og klappa fyrir honum vegna
þess hve ríkur, frægur, skemmtilegur
og fallegur hann virkilega væri - miðað
viö gestina, sem allir voru skömm fyrir
samfélagið. Kannski hef ég rétt fyrir
mér, en kannski er ég bara öfundsjúkur
vegna þess að ég er ekki vinur Kauþ-
þings-gaursins sem fékk Duran Duran
til að sþila í partíi fyrir vini sína.
atli@bladid.net
Hárið puntað
Lífgið upp á hárgreiðsluna með skemmti-
legu hárskrauti. Hvort sem það er litríkt og
skemmtilegt eða fínlegt og fágað þá er nóg
til í verslunum borgarinnar og um að gera
að punta sig svolítið á nýja árinu.
Man Skills er bókin sem alvöru karlmenn ættu að eiga en þar er farið í
gegnum ýmis atriöi á einfaldan hátt. I bókinni eru stuttir kaflar þar sem
fjallað er um hvernig skal kasta sér út úr lest á fleygiferð, hvernig velja
á blóm, hvernig á að skipta um dekk, hvernig skal veiða fisk og þrífa
gluggana almennilega ásamt ótal öðrum þörfum atriðum.
Alvöru karlmenn
Hvenær er hentugt að ferðast
Hvenær sem er, er samt lítið heima þannig að
best er að hringja. Annars finnst mér gaman
að fá fólk í heimsókn ef það hefur frá einhverju
áhugaverðu að segja.
Næturlíf
Næturlífið er ansi skemmtilegt. Ég dansa
mikið heima hjá mér þar sem ég get
algjörlega séð um lagavalið sjálf. Annars
verður tangó æfður stíft í stofunni næstu
mánuðina þar sem ég og unnustinn erum
að fara á tangónámskeið.
Samfélag & menmng
Skemmtileg og skaþandi menning heima
hjá mér. Mikið um góða tónlist, bóklestur
fyrir svefninn, bíómyndir og rómantík.
Hættur
Ef fólk er hrætt við drauga þá ætti það ekki
að koma í heimsókn. Ég á nokkra vini handan
við skilin miklu sem eiga það til að stela fjar-
stýringunni og öðrum tækjabúnaði.
Illlllll
Vert að sjá
Kærastann minn, hann er það
fallegasta á heimilinu.
Matur og menning
Ég elda mikið úr lifrænu hráefni og það sem er á boð-
stólum fyrir gesti er oftast sykurlítið bakkelsi þó að ég
lumi á ýmsu fyrir sykurfiklana. I augnablikinu er ég í
andspyrnu gegn stærstu skyndibitakeðjum á (slands og
þrjóskast þess vegna við og borða aldrei slíkan mat. Um
yielgar finnst mér best að fá mér steik og rauðvin með.
Heilsa
Ég stunda mína líkamsrækt utan við
heimilið að mestu leyti. Annars er gott að
hugleiða og gera jógaæfingar heima við þeg
ar nauðsynlegt er að hreinsa hugann.
Dýralíf
Mýs og andi Rönku
Siðir og venjur
Nýjasta venjan er að vaska ugp strax eftir
matinn. Ekki gott að bíöa meö það þangað
til seinna. (kjölfarið hef ég ákveðið að gera
alltaf hlutina strax, ekki tossast. Siðir mínir
eru breytilegir eftir þvi hvernig skapi ég er í.
Hvað þarf að hafa með í för
Væri fínt ef einhver gæti komið með
hrærivél, vigt og teketil. Eitthvað sem
mig vantar í búið.
Staðhættir
Ég bý í fallegu, gömlu timburhúsi i Hafnarfirði.
Fyrir einhverjum árum var þarna ekkert nema
náttúra i kring en alltaf er verið að byggja og
stækka svo Islendingar geti orðið ríkari. Maður
þarf samt ekki að fara langt til þess að komast i
náttúruna, hraunið og hestana. Ekki má gleyma
því að í götunni hef ég bæði Snæland video og
10/11 og nýja IKEA er í göngufjarlægð.
Tilboðsdagar
Opið mán-föst 9-18
laugardag 10-16
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar Laugavegi.
Enn ein hraðaþörfin
Þegar Need for Speed Undergro-
und kom út fyrir nokkrum árum
komst leikjaserían aftur á kortið
sem alvörubílaleikur. Leikurinn
gerði nokkuð út á vinsældir myndar-
innar The Fast and the Furious þar
sem keppt er á götum stórborga og
lögreglan er oft á hælum ökumanna.
En eftir vinsældir Underground
kom nóg af framhöldum, og þrátt
fyrir að vera tæknilega betri var
leikjaspilunin nokkurnveginn ávallt
sú sama, og er nýjasta útgáfa hans
Need for Speed: Carbon því miður
ekki undantekning á þeirri þróun.
Ein stærsta nýjungin i Carbon
er að spilarinn getur verið með sitt
eigið lið til að keppa með sér, þessir
liðsmenn geta til dæmis hjálpað spil-
aranum með því að keyra á undan
honum og segja frá styttri leiðum.
Þeir geta líka keyrt á undan spilaran-
Need for Speed: Carbon Playstation 2 1 1
n * *’■« r%f~ ~--rX; Nóg af bílum sem hægt er aö breyta
- Enn einn
Need for Speed
um til að ná upp hraðanum, eða - og
þetta er sennilega gagnlegast - þeir
geta truflað aðra keppendur, svín-
að á þá og komið í veg fyrir að þeir
komist fram úr spilaranum. Með
þessu á að gera út á götukappakst-
ursþemað sem er gegnumgangandi
í leikjunum.
Það sem einkennir líka Need for
Speed-leikina er að geta „pimpað”
upp bílinn sinn í bílskúrnum og
hefur sá fídus fengið viðbætur í
Carbon.
Fyrir marga er þetta frekar
óþarft á meðan öðrum þykir þetta
mikilvægasti hluti leiksins. En nóg
er af bílum í leiknum, allt frá smá-
bílum til dýrustu sportbíla. Þann-
ig að ekki er nóg með að hægt sé
að kaupa draumabílinn heldur er
hægt að breyta útlitinu á honum
umtalsvert.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá
er ekki mikið í þessum leik sem
ekki var i öðrum Need for Speed-
leikjum. Fyrir hörðustu bílaáhuga-
mennina er þetta þó góður leikur
til að spila.
elli@bladid.net