blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 1
Betra skipulag á nýju árí! e|!a
,með skrífstofuvörum frá Múlalundi
m
339kr. pr.stk.
Hátúni lOc • S: 562-8500 • Fax: 552-8819 • www.mu
158.-kr
SKOLAR OG NAMSKEIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2006
14
Bókband er
vinsælt
16
Nornaskóli í
Bretlandi
18
Tungumálanámskeið
19
KenntáSMS
• ••••••••••••<
24
Ferðamálaskóli
28
Myndlist rokkar
AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
A
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nám sem nýtist
Nemendur í sölu-,
markaðs- og
rekstrarnámi
Læra engan óþarfa
heldur bara það
sem þau geta not-
að í atvinnulífinu.
fólki í atvinnulífinu
Gerðar eru miklar kröfur til
þátttakenda í atvinnulífinu og nú
gengur ekki lengur neitt hálfkák.
Því er mikilvægara en nokkru sinni
áður að fólk sé vel undirbúið fyrir
þær kröfur sem atvinnulífið gerir
til þess. 1 Nýja tölvu- og viðskipta-
skólanum hefur undanfarin þrjú ár
verið kennt svokallað sölu-, mark-
aðs- og rekstrarnám sem hefur
vakið mikla lukku bæði meðal nem-
enda og vinnuveitenda.
Eva Eyþórsdóttir, skrifstofustjóri
hjá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum,
segir að námið sé alveg gífurlega vin-
sælt. „Þetta er eitt það vinsælasta hjá
okkur og hefur verið að skila rosal-
ega góðum árangri. Við erum með
mikið af ánægðum nemendum sem
hafa verið í þessu námi.“ Eva segir að
sérstaða skólans hvað þetta tiltekna
nám varðar sé gagnsemi námsins.
„Við reynum að sníða námið þannig
að þegar fólk hefur lokið því séþað til-
búið í vinnu. Við erum ekki að taka
neinn óþarfa inn í þetta. Við erum að
reyna að kenna það sem fólk fer bara
með beint út í atvinnulífið."
Námstíminn er tvær annir og er
kennt þrisvar sinnurn í viku, fjóra
tíma í senn. Námið er hægt að sníða
að þörfum hvers og eins því boðið
er bæði upp á morgun- og kvöld-
námskeið. Námið fer inn á marga
þætti sem tengjast störfum við sölu-
, markaðs- eða rekstrarstörf. „Um
það bil helmingur fyrri annarinnar
fer í tölvufræðslu þar sem kennt er
á þessi helstu tölvuforrit svo sem
Word, Excel, Powerpoint og Photos-
hop. Svo förum við líka inn á sölu-
og markaðsfræðina ásamt ýmsu
öðru sem hjálpar fólki í vinnu. Svo á
seinni önninni förum við í fjármál
og rekstur sem hentar fólki vel sem
KYNNING
er með fyrirtæki eða hefur áhuga á
að setja slíkt á stofn.“
Áhugasamir geta kynnt sér náms-
brautir skólans á heimasíðunni
þeirra, www.ntv.is, en einnig mun
skólinn standa fyrir opnu húsi
þann 13. janúar á milli klukkan 13
og 16. Þar munu áhugasamir geta
kynnt sér námið sem stendur til
boða, spjallað við kennara og starfs-
fólk skólans.
FJOLBRAUTASKOLINN
VIÐ ÁRMÚLA
wmmmmwm
Fjarnám á vorönn 2007
Skráning ferfram 5.-12. janúar.
á heimasíðunni www.fa.is/fjarnam