blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 4
16 I SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 blaAÍÖ Myndlistarskóli Kópavogs, Vorönn Myndlistarskóla Kópavogs hefst 18.Janúar. Kenndar verða helstu undirstöðugreinar myndlistar í byrjenda - og framhaldshópum Innritun sterndur yfir á skrifstofu skólans 15:00 -18:00 mán-fim Fannborg 6, 200 Kópavogi eða (síma: 564-1134, 863-3934 og 564- 1195. www.mmedia.is/myndlist myndlist@mmedia.is “Á Þriggja vikna námskeiðí fimmfaldaði ég lestrarhraða minn. Takk fyrir mig!" Karólína Finnbjörnsdóttir, 22 ára laganemi. “Námskeiðið hvetur mann áfram. Eykur sjálfstraust. Eykur áhuga á námi.” Rakel Þorleifsdóttir, 26 ára Háskólanemi. “Loksins sé ég fram á að geta klárað bækur fyrir próf.” Elin Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi. \É?m til reiðu fyrir 0^5 ^ Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið: Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta. 6 vikna hraðlestrarnámskeið hefst 1. febrúar (20-22) 2 vikna námstækninámskeið hefst 20. janúar (10-13) Skráning á hraðlestrarnámskeið er hafin á www.h.is og í síma 586-9400 » h^\i >i a 7-n i </\i ^k< >i irsx VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu. Fjölþjóðlegur hópur hjá ISF Áhugafólk um andleg málefni aflar sér fróðleiks. "< r- M ; T1 TTT 1 r I - T í I i r International Spiritualist Federation: Viltu styrkja miðilshæfileikann? Hvort sem fólk kýs að vera sam- mála eða ósammála um hin and- legu málefni þá er það staðreynd að mörg okkar trúa því að það sé meira fólgið í lifinu heldur en bara það sem gerist í efnisheiminum. Sumir trúa á líf eftir dauðann, sumir trúa á drauga og sumir trúa á endur- holdgun. Þannig hefur þetta verið frá landnámsöld þó svo að vissulega hafi trúin breyst á síðustu árum og aðrar áherslur orðið sterkari. The International Spiritualist Federation samtökin, eða ISF eins og þau eru kölluð, vilja stuðla að fræðslu og menntun um ýmis konar andleg málefni svo sem miðlun og heilun. Samtökin voru stofnuð í Belgíu 1923 og voru fyrstu þing sam- takanna haldin þar eða þangað til seinni heimsstyrjöldin batt enda á þetta fundarhald. Eftir stríð voru samtökin endurreist í Englandi og hafa samtökin haft sínar höfuð- stöðvar þar alla tíð síðan. Samtökin halda aðalfund annað hvert ár þar sem haldin eru námskeið og fyrir- lestrar en hitt árið eru bara nám- skeið, fyrirlestrar og önnur félags- starfsemi. Til gamans má geta að Sir Arthur Conan Doyle, höfundur Sherlock Holmes, var heiðursforseti samtakanna á árunum 1925-1930. Helgi Gunnarsson er tengiliður ISF- samtakanna á íslandi.Hann segir að þegar farið var á fyrsta þingið i Bret- landi hafi fólk ekki vitað hvers skyldi vænta. Hann segir að meðlimir hóps- ins hafi margir grínast með það að þau væru að fara í nornaskóla eða þá einhvern skóla á borð við hinn þekkta Hogwarts úr bókunum um galdrastrákinn Harry Potter, þar sem svifið er um á kústum og rottum er breytt í drykkjaráhöld. „Maður verður að geta gert grín að sjálfum sér og sínum áhugamálum. Annars er tilgangslaust að vera í þessu.“ Helgi segir að kennslan sem fram fari á þessum námskeiðum sé af ýmsum gerðum. „Það er verið að tala um miðlun og allar tegundir af miðlun. Miðlun getur verið spá- miðlun, transmiðlun, skyggnilýs- ingar og svo er náttúrlega heilun sem er á vissan hátt ein tegund miðlunar. Heilarinn er að hleypa í gegnum sig, eða við vonum það alla- vega, einhverri góðri orku og ég lít þannig á að heilarinn sé í raun og veru lítið annað en innstunga sem er að hleypa þessari orku í gegnum sig.“ Hann segir að það séu á bilinu 10-15 Islendingar sem eru duglegir við að sækja námskeið ISF og hann bætir við að þetta sé fyrir alla sem annað hvort telja sig hafa einhverja hæfileika á þessu sviði eða þá hafa bara mikinn áhuga á málum sem þessum. „Þetta er líka fyrir þá sem eru í þessu og þeir hitta þá aðra sem eru með svipuð áhugamál og kynnast fólki frá ótal löndum. Það er algengt að það séu um tuttugu þjóðfánar þarna, fólk er að koma frá Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja- Sjálandi og svo kemur megnið frá hinum ýmsu Evrópulöndum." TUNGUMALUM LÆRÐU ÍTÖLSKU, SPÆNSKU EÐA ENSKU Á EINNI VIKU MALASKOLINN LINGVA EHF. - FAXAFENI 10 WWW.LINGVA.IS S: 561-0315, 663-7163 MAUABKÚU N N LINGCV A ©

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.