blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 5
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007
Tungumálaskólinn Lingva
Vikunámskeið
í tungumálum
Tungumálaskólinn Lingva
flutti fyrir skömmu í ný og
glæsileg húsakynni að Faxafeni
10. Framkvæmdastjóri skólans,
Paolo Turchi, komst þannig að
orði að „loksins væru þau komin
heim“. í sama húsi hafa einnig að-
stöðu Menntaskólinn Hraðbraut
og Tölvuskólinn Þekking. I Lingva
má fá kennslu í ío erlendum
tungumálum.
Lingva fer ótroðnar slóðir í
tungumálakennslu og kennir það
sem nefnist örnámskeið en það er
vikunámskeið í tilteknu tungumáli.
Örnámskeiðin miða að því að upp-
fræða fólk nægilega til þess að það
geti bjargað sér á erlendri grund til
skamms tíma. Einnig er hægt að
sækja ítarlegri tungumálanámskeið
hjá Lingva þar sem ítarleg málfræði
er kennd.
„Lingva-námskeiðin hafa
verið fjölmenn og skemmtileg,
kennslan er lifandi, nemendur
læra strax að tjá sig og bjarga
sér á framandi tungumálum. Ör-
námskeiðin höfða líka til þeirra
sem ekki vilja leggja á sig þá
vinnu sem þarf í stíft málfræði-
nám,“ segir Paolo kátur í bragði.
„Nemendur fíla skólann í botn og
segjast læra nægilega mikið á ör-
námskeiðum okkar til að bjarga sér
í sumarfríum erlendis. Við höfum
frábært starfslið og mórallinn í skól-
anum er mjög góður. “
Tungumálaskólastjórinn Paolo
hefur dvalið á íslandi í 20 ár og er
hann að eigin sögn einn af eldri inn-
flytjendum landsins. „Mig langar að
endurgreiða þá velvild sem ég hef
notið hér á Islandi og ætla þess vegna
að halda ókeypis íslenskunámskeið
fyrir útlendinga búsetta hér í febrúar.
Það verður örnámskeið sem kennt
verður í febrúar.“ Paolo hvetur Is-
lendinga til þess að greina erlendum
vinum sínum frá þessu ókeypis ís-
lenskunámskeiði en hann býst við
miklum fjölda. Skráning á námskeið
Lingva er á www.lingva.is eða í síma
561-0315/ 663-7163. Venjulegt verð
fyrir örnámskeið er 12.500 krónur.
Fjarkennsla
Víðtæk tölvukennsla
gegnum
Nú þegar tölvufjöldi íslands er lík-
legast á við íbúafjölda landsins væri
ekki úr vegi að kunna almennilega
á þessi ólíkindatól. Ýmis fyrirtæki
sérhæfa sig í tölvunámskeiðum sem
miða að því að kanna margbrotna
og mörgum hulda heima tölvunnar.
Fyrirtækið Fjarkennsla var
stofnað með það markmið að þróa
vandað kennsluefni í margmiðlun-
arformi og í dag býr fyrirtækið yfir
mikilli þekkingu og reynslu á því
sviði. Fjarkennsla hefur sérhæft sig
í tölvukennslu og upplýsingum um
heima Internetsins og heldur úti
mjög áhugaverðri vefsíðu, www.fjar-
kennsla.is.
Fyrirtækið býður í dag upp á 27
tölvutengd námskeið sem innihalda
gríðarlegt magn hagnýtra upplýs-
inga. Meðal annars má fá kennslu
í forritum eins og Word, Excel,
Outlook, Frontpage og Power Po-
int. Þá má einnig læra á Photoshop,
Flash MX og stafrænar
myndavélar. Nýjustu
námskeið Fjarkennslu,
sem er hægt að fylgjast
með gegnum videó á
Netinu fjalla annars
vegar um Windows
Vista og hins vegar Off-
ice 2007.
Ýmis önnur net-
tengd námskeið
má sækja hjá Fjar-
kennslu. I þeim
flokki má
Netið
KYNNING
nefna Netnanny sem er forrit út-
búið í þeim tilgangi að gera Netið
að öruggari stað fyrir börn og
unglinga og útiloka heimsóknir á
óæskilegar vefsíður. Þá er hægt að
fljúga í flughermi, læra að matreiða
með Ragnari Ómarssyni landslið-
skokki, skrúfa ofna af vegg, par-
ketleggja og sinna öðrum þörfum
heimilisstörfum.
Vefurinn fjarkennsla.is er í raun
bæði kennslu- og afþreyingarvefur
og eru notendur hans um 4.600
talsins. Ekkert lesefni er á námskeið-
unum og nemendur ráða algerlega
ferðinni sjálfir. Vefurinn hentar vel
heimilum landsins, þeim sem telja
sig þurfa á aukinni tölvuþekkingu
að halda eða vilja einfaldlega rifja
upp og viðhalda þekkingu sinni.
Mambó
Tjútt
Freestyle
Break
Salsa
Brúöarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
SérnámskeiÖ fyrir hópa
Nýjustu tískudansarnir
Börn - Unglingar - FullorÖnir
Ymis starfsmanna- stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
DANSSKÓU
Jóns Peturs og Köru
Dansráö íslands | Faglæröir danskennarar
Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
V\M
M MÍMIR
B ■ símenntun
Bæklingurinn kemur í hús 8. janúar
'