blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 7
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007
SKÓLAR 0G NÁMSKEIÐ I 19
Áhugavert námskeið hjá Mími:
Hvernig á að búa til SMS?
Hver hefur ekki heyrt hinn klass-
íska frasa: „Ég kann bara að svara í
hann og skella á“? Þetta er setning
sem heyrist oft frá eldri kynslóð-
inni þegar talið berst að farsímum.
Farsímavæðing landsmanna er nú
orðin svo mikil að nánast hvert
mannsbarn á í fórum sínum farsíma
og í sumum tilvikum kann fólk lítið
sem ekkert á þetta mikla þæginda-
og öryggistæki. Mímir símenntun
hefur nú undanfarin misseri, í sam-
starfi við Símann, boðið upp á nám-
skeið tvisvar á ári þar sem fólki er
kennt á farsímana sína.
Kennslan er í höndum þriggja
starfsmanna Símans, Jóhönnu Við-
arsdóttur, Marinós Kristinssonar og
Maríu Pétursdóttur. María er aðstoð-
arverslunarstjóri Símans í Kringl-
unni og hún hefur verið leiðbeinandi
á þessum námskeiðum í eitt og hálft
ár. Hún segir að kennslan sem fram
fari á námskeiðinu henti öllum sem
kunna ekki nógu vel á farsímann
sinn. „Þetta er fyrir alla og reynt er
að kenna undirstöðuatriðin með
GSM-síma. Hvernig hann virkar,
hvernig þú kveikir á honum, hvernig
þú sendir SMS og hvað allt þetta
þýðir sem stendur á skjánum.“ María
bætir við að þátttakendur á námskeið-
unum séu flestir í eldri kantinum, frá
fimmtugu og upp úr og þá séu kon-
urnar líka æstari í að læra á símann
sinn. „Konurnar eru mjög duglegar
og draga kannski mennina sína með
sér. Oftast er þetta þannig að fólk fær
sér nýjan síma, það vill læra á hann
og skráir sig þá á námskeiðið."
Þátttakendur koma með sína
eigin síma á námskeiðið og María
segir að það valdi nú yfirleitt
engum vanda hjá leiðbeinendum.
Því þótt margar mismunandi gerðir
síma séu til þá er þetta allt vant fólk
sem kennir á námskeiðinu. „Þegar
maður er búinn að vera að fikta í
mjög mörgum símum í gegnum
tíðina þá veistu alveg hvernig þetta
virkar. Þetta tekur kannski 5 mín-
útur en svo er þetta komið.“ María
segir að þetta sé mjög gefandi starf
að leiðbeina fólki með farsímana.
„Fólk verður svo ánægt að geta farið
að svara smáskilaboðum, sérstak-
lega ef börnin búa erlendis, eða
þegar það lærir hvernig það á að
eyða skilaboðum út úr innhólfinu á
símanum. Svo verður fólk oftast æst
í að læra meira undir lokin á nám-
skeiðinu. Þau vilja læra hvernig á
að senda myndir og nánast allt sem
tengist farsímum."
2 "
.í.uUúdy
.itid H Aclivr Ijcilc frrmcnb
<'ui Uy
K , 'Hal
:MaUúsSus iln.' OtpMliv Írt'Í^
l\v» ifiu UvJ) c; U,g VUllV
IKUYIIW.L MMNV/
ÚPSÍ Hvernig
er meltingin?
Blessaðar hátíðarnar eru svo
sannarlega álagstími fyrir
meltingarfærin. Margir eru nú
að eiga við allskonar meltingar-
vandræði, eins og uppþembu,
harðlífi, niðurgang, ristilkrampa
og vindgang svo eitthvað sé
nefnt. Hliðarverkanir þessa
ástands eru m.a. höfuðverkur,
flökurleiki, bjúgur og leiði en
þau líffæri og kirtlar sem starfa
í kringum meltingarfærin hafa
ekki undan að koma skikkan
á ástandið. Hvað er til ráða?
Númer eitt er að koma reglu
á mataræðið, borða hollan
mat og drekka nóg af vatni.
Og í öðru lagi er mikilvægt
fyrir flesta að koma meltingar-
flórunni í jafnvægi og skortir
okkur þá góðgerla svokallaða í
fæðuna en þeir eru meltingunni
afar hjálplegir. Einn vandi kemur
samt oft upp þegar við ætlum
okkur að taka góðgerla sem við
köllum oft í daglegu tali acidóp-
hílusa eða mjólkursýrugerla og
hann er sá að sýrustig líkamans
er of hátt og þeir nýtast því
ekki sem skyldi. Pro-Gastro 8
góðgerlarnir eru nú fáanlegir
og eru hylkin utan um þá sýru-
húðuð sem gerir það að verkum
að hylkið opnast ekki fyrr en
í smáþörmunum sem tryggir
hámarksnýtingu góðgerlanna.
Pro-Gastro 8 gerlarnir innihalda
8 tegundir af góðgerlum og eru
því mjög þreiðvirkir. Þeir inni-
halda m.a. eina og hálfa billjón
acidóphílus-gerla og sama
magn af L-Casei gerlinum sem
er afar hentugur þeim sem berj-
ast við kandíta-sveppasýkingu.
Pro-Gastro 8 inniheldur einnig
2 tegundir trefja (FOS) auk
papayja-meltingarensíms. Ráð-
legt er að taka inn 1 hylki 2svar
á dag fyrir helstu máltíðir dags-
ins. Þeir sem eru afar slæmir
eftir hátíðarnar ættu að taka
4-6 hylki á dag í 4 til 6 daga eða
þartil meltingarjafnvægi er náð.
Frakkar hafa sagt að Pro-Ga-
stro 8 sé leyndarmálið bak við
flatan maga en það er klárt mál
að það dregur úr uppþembu
og kemur jafnvægi á hægðir.
Hægt er að kaupa Pro-Gastro 8
í flestum heilsubúðum, héiisú-
hornum stórmarkaðanna og
apótekum.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Bóknám - Verknám
130 áfangar í boði
Stafræn myndvinnsla - Stafræn myndvinnsla fyrir byrjendur og léngra komna
Raungreinar - Náttúrufræði, efnafræði, eðlisfræði, landfræði og stærðfræði
Fjölmiðlafræði - Greinaskrif, myndvinnsla, ljósmyndun o.fl.
Rafmagnsfræði - Heiti og hugtök, útreikningar og raflagnir
Hjúkrun - Almenn aðhlynning, skyndihjálp og næringarfræði
Viðskiptagreinar - Bókfærsla, lögfræði og markaðsfræði
Myndlist - Teikning, skúlptúr og menningarsaga
Tungumál - Danska, enska, spænska og þýska
Tölvugreinar - Upplýsingatækni og ritvinnsla
Húsasmíði - uppbygging, smíði og burðarvirki
Lögfræði - Réttarfar, viðskiptalögfræði
íþróttir - Fjallgöngur
Innritun í FB
Miðvikudagur 10. janúar frá kl. 17:00 til 19:00
Fimmtudagur 11. janúar frá kl. 17:00 til 19:00
kinh'Æ .fibrtB:
ejtirnMÍtuná-www.fb.is (kvöidskóii