blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 9

blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 9
blaöió ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 Fríða Dögg og Micah Nicholls Hyggjast opna osteópatastofu ÍDanmörku. Osteópatanám: Spennandi en mjög erfitt Osteópati er starfsheiti sem er ekki á allra vörum. Má með sanni segja að megnið af íslendingum hafi ekki hugmynd um hvað osteópati gerir. Fríða Dögg Hauksdóttir er ung námsmey og einn þeirra íslend- inga sem vita um hvað heimur oste- ópata snýst því í sumar mun hún ljúka fjögurra ára námi við British College of Osteopathic Medicine í London og útskrifast sem osteópati. Það starf sem osteópatar inna af hendi er mjög margbreytilegt og hefur verið sagt að þessi starfsgrein sé eins og blanda af sjúkranuddara og hnykkjara. Osteópatía telst til samlækninga sem er sambland af hefðbundnum og óhefðbundnum lækningum. Fríða segir að námið í skólanum sé mjög víðfeðmt og komi inn á marga mismunandi þætti lækn- inga. „Þetta er rosalega skemmtilegt nám en mjög erfitt og það er mikið brottfall á milli ára. Námið bygg- ist á bóklegum, verklegum og klí- nískum fögum, þar sem við vinnum með sjúklinga. A fyrsta og öðru ári er lögð mikil áhersla á líffæra- og lífeðlisfræði, lífefnafræði ásamt því sem við fylgjumst með krufn- ingum og mætum í verklega tíma. Á seinni hluta annars árs og á því þriðja förum við í sjúkdómafræði, sjúkdómagreiningu, bæklunar- og barnalækningar, lyfjafræði, næring- arfræði, náttúrulækningar, lærum að lesa úr röntgenmyndum ásamt því sem við erum undirbúin fyrir klínísku vinnuna. Á fjórða árinu vinnum við mikið á kliníkinu ásamt því sem við lærum um höfuð- beina- og spjaldhryggsmeðferð sem er einmitt runnin undan rifjum osteópata." Fríða segir að hún hafi alltaf haft mikinn áhuga á heilsu en það var fyrir hreina tilviljun sem hún datt niður á osteópatanámið. „Ég var að spá í nuddnám, næringarfræðinám og hnykkjaranám en það fannst mér heldur ekki vera það sem ég var að leita að. Svo bara gerðist það einn daginn að ég var að lesa blöðin og þá sá ég auglýsingu frá Haraldi Magnússyni osteópata. Þá varð ég forvitin að fræðast aðeins um þetta starf osteópata og hringdi því bara í hann. Það var í rauninni hann sem kveikti mesta áhugann hjá mér á þessu námi.“ Þess ber að geta að Haraldur er annar tveggja osteópata sem starfa á íslandi um þessar mundir. Fríða og unnusti hennar, Micah Nicholls, kynntust í skólanum þar sem Micah lagði einnig stund á oste- ópatanám. Micah er nú útskrifaður og starfar sem osteópati fyrir ýmis bresk fyrirtæki ásamt því að kenna í verklegum tímum í gamla skólanum sínum. Þau hafa áformað að flytja til Danmerkur í haust og hyggjast opnaþar saman osteópatastofu sem mun sinna þjáðum Dönum. Auglýsingasimlnn er 510 3744 www.fjarkennsla.is _ 0 X UFiVA\L LJa\LJ3íí£1DA -auðveldasta leiðin til að laera 1. Grunnur % 01. Windows XP CSi 02. Outlook Express <& 03. Internetið 04. Matreiðslukennarinn ? 05. Brellur ofl brógð ^ 06. Flight Simulator 2004 -2i 07. Gulli Byggir 1. JL 08. Gulli Byggir 2. % 09. Netnanny áií 10 Nero Burning ROM fm 11. Vírusvarnír fjarkennsla 2. Grafík fð 1. Photoshop 6.0 2. Photoshop verkefni m 3. Premiere Pro 4. Premiere Elements ® 5. Flash MX (í vinnslu) & 6. Stafrænar myndavélar # 7. Photoshop CS2 E3 8. Acrobat 7.0 3. Skrifstofan S 01. Word 2003 ® 02. Word 2003 PRO S 03. Excel 2003 ffl 04. Excel 2003 PRO ÍM 05. Outlook 2003 25 06. Outlook 2003 PRO P 07. FrontPage h£l 08. PowerPoint 2003 09. Word 2007 {væntanl.} 10. Excel 2007 {væntanl.} 11. Outlook 2007 {væntanl.} 12. Powerpoint 2007 {væntanl,} 13. Windows Vista {væntanl.} Pa Office 2007 Kostur þess að tryggja sér árs aðgang að kennsluefni Fjarkennslu er sá að geta stjórnað námshraðanum sjálfur og einnig rifjað upp eða glöggvað sig á einstökum atriðum hvenær sem er. Þannig nýtast námskeiðin bæði sem heilsárs skóli og uppflettirit um tölvuna þína og allt sem þú vilt að hún geri fyrir þig. Áskriftin fæst í öllum BT versiunum III FERÐAMÁLASKÓLINN ICELAND SCH00L 0F TOURISM Ferðamálaskólinn í Kópavogi hefur starfað í 20 ár og hefur á þeim tíma búið nemendur undir alhliða störf í ferðaþjónustu. Lögð er áhersla á hagnýtt nám og er skólinn í góóum tengslum vió atvinnulífið. Starfstengt ferðafræðinám www.mk.is Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja starfa í feróaþjónustufyrirtækjum Hagnýtt ferðafræðinám Flugþjónustunám Hagnýtt og hnitmiðað nám sérsniðió fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni Undirbúningsnám fyrir þá sem vilja starfa í farþegarými flugvéla Getum bætt við nýjum nemendum á allar brautir KENNSLA HEFST UM MIÐJAN JANÚAR Ferðamálaskólinn við Digranesveg - Sími: 594 4020 | fsk@mk.is | www.mk.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.