blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 10
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 blaöiö
Þú ert listamaður
- finndu nýjar víddir !
Framhaldsskólinn í
Austur-Skaftafellssvslu
á vorönn 2007
• Þriðja og fjórða árið á stúdentsbrautum.
• 30 rúmlesta skipstjórnarréttindi.
• Allir áfangar í WebCT.
• Námið kostar einungis 4250 krónur á
önn fyrir utan námsgögn.
• Skráning á vef skólans.
• Umsóknarfrestur til 11. janúar.
www.fas.is fas@fas.is
S: 470 8070
Skólameistari
ekillo
Ökunám í fjarnámi!!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjamánni. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni
heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra nám-
skeið til almennra ökuréttinda (Ö1) og þifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ekill ökuskóli. Sími 461 -7800 www.ekill.is ekill@ekill.is
22 I SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
Helga Braga Jónsdóttir leikkona
Notalegt daður og
skemmtilegheit
Hún er ekki aðeins leikkona, fóst-
systir, stórskemmtileg, bráðmyndar-
leg og ótrúlega hny ttin. Helga Braga
er nefnilega, í hjáverkum, daðrari
af guðs náð og námskeiðshaldari í
þeim efnum. Frá glamúr til dömu-
leika og þaðan yfir í daður og hug-
leiðingar um ást og jákvæða orku.
Blaðamaður kom ekki að tómum
kofanum hjá daðursnillingnum
síkáta.
Helga Braga hefur í nokkurn
tíma haldið úti þar til gerðum dömu-
námskeiðum. Einnig hefur hún
kennt islenskum, bláeygðum karl-
mönnum þá list að koma fram við
dömur. Að eigin sögn má hún ekki
heyra minnst á það að íslenskir karl-
menn kunni ekkert til verka. „Enn
er von með karlkynið,“ segir Helga
og hlær. Boltinn byrjaði að rúlla
þegar Helga var fengin í að útvega
nokkur glamúrráð fyrir sjónvarps-
þátt hér í bæ. Nú er Helga auðvitað
annáluð glamúrpía og hefur lesið
Cosmopolitan hægri, vinstri þannig
að hún var ekki í vandræðum með
að hrista nokkrar glamúrlegar ráð-
leggingar fram úr erminni, „einsog
til dæmis að ganga aldrei í úlpu og
svona.“ í framhaldi af því var hún
fengin til þess að halda dömunám-
skeið. Helga hélt nú i fyrstu að öfug-
mæli væru þar á ferð, því hún teldist
víst tæplega almennileg dama sjálf.
Annað kom á daginn og dömunám-
skeiðin nutu mikilla vinsælda hjá
íslenskum dömum á öllum aldri. Á
eftir dömunámskeiðunum tók hún
að predika yfir karlþjóðinni hvernig
koma ætti fram við dömur. í fram-
haldi af því komu stefnumótaráð-
leggingar og loks fór Helga að gefa
íslenskri þjóð daðurráðleggingar.
Helga hefur kynnt sér daður ræki-
lega og lesið sig til sigurs. Hún hefur
ferðast víða og leitað á náðir sér-
fróðra einstaklinga og verið í nokk-
urs konar æfingabúðum.
„Daður er það að senda góða orku
út til samferðafólks síns. Það að
hrósa, taka eftir. í raun notalegheit."
Helga segir að margir forðist daður
sem heitan eldinn, því það hafi kyn-
ferðislega vísun. „Það er alrangt,
daður er ekkert kynferðislegt, daður
er meira það að vera næs á skemmti-
legan hátt.“ Daður getur, að sögn sér-
fróðra einstaklinga, losað um stress
og bætt andrúmsloft til muna.
Þar sem Helga er víðförul kona er
ekki úr vegi að forvitnast um daður-
menningu ólíkra þjóða. „Guð hjálpi
mér. Mismunandi þjóðir daðra
misjafnlega." íslendingar í glasi
verða dálítið grófir og stundum
er eins og Neanderdals-maðurinn
komi fram í þeim að næturlagi. 1
Bandaríkjunum, til samanburðar,
eru mörkin í daðri skýrari og fólk
er með á hreinu hvað má og hvað
má ekki.
í daðri má að sögn Helgu ekki
senda kynferðisleg skilaboð, til
dæmis í jólaboði hjá frændfólki.
,Daðrið getur hins vegar hjálpað til
við margvíslegar aðstæður, ef þú ert
með yfirvigt að tékka inn hjá flugfé-
lagi gæti daðrið til dæmis komið að
góðum notum.“
Það þarf einnig að gæta þess
hvernig hlutir eru sagðir, ekki ein-
ungis hvaða orð eru notuð heldur
hvaða orka býr að baki.
Hægt er að leita á náðir Helgu
Brögu ef áhugi á daður- eða fram-
komunámskeiði er fyrir hendi.
,Ég hef verið með námskeið fyrir
menntaskólakrakka, endurskoð-
endur, lögfræðinga, leikskólakenn-
ara. Name it.“ Námskeiðin eru fyrir
alla mannlega sem hafa áhuga á því
að bæta samskiptahæfni sína.
Leið til betri árangurs
Leiðtoga- og sam-
skiptaþjálfun fyrir konur
Frá árinu 2001 hefur Dale Car-
negie á íslandi boðið upp á leið-
toga- og samskiptaþjálfun fyrir
konur. Námskeiðið hefur frá byrjun
fengið frábærar viðtökur og nú hafa
á fimmta hundrað kvenna farið í
gegnum þessa árangursríku þjálfun.
Námskeiðið stendur í 12 vikur og
fer kennsla fram einu sinni í viku
klukkan 18-22.
Þátttakendur á námskeiðinu eru
á öllum aldri, allt frá menntaskóla-
stelpum upp i konur sem komnar
eru yfir sextugt. Þetta eru konur úr
öllum stéttum þjóðfélagsins: heima-
vinnandi, verkakonur, skrifstofu-
konur, lögfræðingar, nemar svo eitt-
hvað sé nefnt. Það er einmitt þetta
sem gerir námskeiðið svo skemmti-
legt og árangursríkt - konum gefst
tækifæri til að kynnast reynsluheimi
annarra kvenna sem eru að mæta
áskorunum sem eru þeim kannski
ókunnar. Oft kemst maður svo að
því að það er sama hver starfstitill-
inn er, við erum allar að glíma við
svipaðar áskoranir og vandamál.
Til að.vita hvort þú átt erindi á
námskeiðið er mikilvægt að spyrja
sig eftirfarandi spurhínga:
• Viltu læra að setja þér raunhæf
markmið og náþeim?
• Þarftu að trúa betur á sjálfa þig
til að ná árangri og öðlast betri
lífsfyllingu?
• Viltu geta staðið fyrir framan
hóp og tjáð þig af .krafti án þess
að fá skjálfta í hnén og þorna í
kverkunum?
• Myndi það hjálpa þér ef þú gætir
selt hugmyndir þínar af meira ör-
yggi og sannfæringu?
• Áttu erfitt með að taka mikil-
vægar ákvarðanir í starfi og/eða
einkalífinu?
• Viltu minnka streitu, kvíða og
áhyggjur?
• Þarf að vera betra jafnvægi milli
starfs og einkalífs?
• Hefur þú staðið frammi fyrir
því að hafa ekki kjark til að láta
drauma þína rætast?
• Viltu láta meira að þér kveða og
ná betri árangri á fundum?
• Viltu komast innan um konur
sem eru að takast á við sömu
áskoranir og þú?
Ef þú svarar einni eða fleirum af
þessum spurningum játandi þá átt
þú erindi á námskeiðið.
Næsta námskeið hefst 24. janúar.
Skráning er hafin á www.dalecar-
negie.is eða í síma 555-7080.