blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 11

blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ I 23 Námskeið fyrir konur Aldrei of seint að skipta um vinnu Það hefur oft verið sagt að eftir því sem maður eldist þá verði erfiðara að skipta um vinnu. Sumir standa ef til vill í þeirri trú að þegar fimmtugs- aldrinum er náð sé hreinlega orðið of seint að færa sig um set á vinnumark- aðnum og því sé allt eins gott að sætta sig við það sem maður hefur. Lísbet Einarsdóttir hefur ákveðið að þessu viðhorfi þurfi að breyta og mun fyrirtæki hennar, Lectura, bjóða upp á námskeið í febrúar fyrir konur yfir fimmtugt sem hafa hug á því að færa sig til á vinnumarkaðnum. Lísbet er félags- og atvinnulífsfræðingur að mennt og hún hefur um árabil starfað sem bæði starfsmannastjóri og ráð- gjafi hjá ráðningarskrifstofu. Hún segir að mikil eftirspurn sé eftir nám- skeiðum sem þessum. „Ég hef fundið þörf fyrir námskeið af þessu tagi. Ein- 7 KYNNING staklingar í atvinnuleit upplifa óör- yggi þegar þeir hugsa sér til hreyfings, hvað tekur við, á ég að leita til ráðn- ingarskrifstofu, hvernig á ég að útbúa ferilskrá, hvernig á ég að koma fram í viðtalinu og svo framvegis." Hún segir að hún hafi orðið þess sérstaklega vör hjá konum á miðjum aldri að þær búi við mikið óöryggi varðandi þetta. Það er viðhorf sem hún sættir sig ekki við. „Þessar konur eru flottar og frambæri- legar, búa yfir hellingsreynslu, langar til að skiptá um starf en þekkja ekki ferlið og finnst þær jafnvel ekki hafa upp á neitt að bjóða.“ Lísbet Einarsdóttir Hyggst hjátpa kon- um á miðjum aldri að skipta um vinnu. Lísbet segir að á námskeiðinu verði farið inn á marga þætti sem tengjast atvinnuleit. „Á námskeiðinu verður því farið yfir þætti sem svara öllum þessu spurningum og búa einstak- linginn undir atvinnuleitina, hvernig á að halda utan um hana sem og fyl- gja henni eftir, líkamstjáningu, fram- komu og klæðnað." Lísbet segir að á námskeiðinu verði einnig farið yfir það hvernig gera á ferilskrá. „Það er nauðsynlegt að ferilskrá sé vel gerð en sé gerð af þeim sem stendur á bak við hana og tapi ekki persónuein- kennum hvers og eins, því hún á jú að spegla það hver við erum. Það að gera ferilskrá fyrir einstakling en ekki leiðbeina við gerð hennar er eins og að kenna ekki barni að skrifa heldur skrifa alltaf bara fyrir það.“ Þess ber að geta að seinna á árinu verða haldin önnur álíka námskeið sem verða þá ekki eingöngu shiðin að þörfum kvenna. Áhugasamir geta kíkt á heimasíðu fyrirtækisins, www.lect- ura.is til að fræðast meira um þetta áhugaverða námskeið sem og önnur sem Lectura býður upp á. MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI Nám sem nýtist þér! Skrifstofubraut I Nokkur sæti laus!! Er tveggja anna braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar. Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Kennt frá 12:05 og hefst kennslan í byrjun janúar. Innritun stendur yfir núna! - sjá umsóknareyðublað á netinu. Upplýsingar veitir Inga Karlsdóttir, fagstjóri hagnýtra viðskipta- og fjármálagreina í síma 594 4000/824 4114. Netfang. ik@mk.is Þorsteins Gauta Frítt Píanónám! Vegna mikillar velgengni frá stofnun skólans 2002 þá bjóðum við fyrstu 50 nýjum nemendum sem skrá sig frítt nám í hóptímum á vorönn, Krakkatímar á laugardögum og eftir skólatíma. 5 ára og eldri velkomnir. Ármúli 38 / við Selmúla S:5516751/ 6916980 pianoskolinn.is pianoskolinn@pianoskolinn.is ÖíÖfil ..-.oÁú'.i l.lPYh

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.