blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 12
Vor 2007
24 I SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 blaðiö
Söngskólinn
-V-.. ' • '
Domus vox
Innritun er hafin, aiiadagafráki.u:oo-i8:oo
Einsöngsdeild, Unglingadeild og Stúlknakór Reykjavíkur
Allar nánari upplýsingar er hægt aö nálgast á WWW.dOITIUSVOX.ÍS
Domus vox Laugavegi 116, 105 Reykjavik • simi 511-3737 • GSM 893-8060 • domusvoxfBdomusvox.is
NAMSKEIÐ VOR 2007
Fræðslunámskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar rikisins eru
ætluð þeim sem vinna með börnum með þroskaraskanir og
eru jafnframt opin aðstandendum. Námskeiðin eru bæði
fræðileg og hagnýt.
Meðal námskeiða í boði á vormisseri 2007 eru:
• Ráðagóðir foreldrar - Námskeið í hegðunarstjórnun fyrir
foreldra barna með þroskaraskanir.
• Leikur og félagsfærni 1, 2 og 3 - Námskeiðaröð um aðferðir
hagnýtrar atferlisgreiningar.
• Einhverfa og skyldar þroskaraskanir.
• Skipulögð kennsla.
• Atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu.
• Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi.
• Snemmtæk íhlutun fyrir börn með þroskahömlun.
Upplýsingar og skráning á námskeið er á www.greining.is
Greiningar- og
ráðgjafarstöö rlkisins
Anita Richardsdóttirflugfreyja um Ferðamannaskólann
Góð reynsla fyrir
flugþjónustustörf
Árið 2007 má búast við því að
fjöldi ferðamanna sem bregði sér
í heimsókn til Islands verði um
400.000. Sú mannmergð kallar að
sjálfsögðu á aukna þekkingu íslend-
inga í ferðamálum og túristageir-
anum. Hjá Ferðamálaskóla íslands
er hægt að skella sér á 14 vikna nám-
skeið sem er í raun hálfgert fornám
fyrir flugfreyju og -þjónastarf.
Anita Richardsdóttir, starfandi
flugfreyja, er ein þeirra sem setið
hafa áðurnefnt námskeið og ber
hún því vel söguna. Námskeiðið
inniheldur 24 áfanga en einn
áfangi er kenndur í senn og prófað
úr honum í lokin. „Við förum í
áfanga á borð við áhafnarsam-
vinnu, agareglur og stjórnun um
borð í flugvél. Einnig er kennd flug-
eðlisfræði, veðurfræði og íslensk
og útlend ferðalandafræði." Ferða-
landafræði svipar mjög til landa-
fræði þar sem áhugaverðir staðir
hvers lands eru skoðaðir gaumgæfi-
lega. „Lokaprófið í íslenskri ferða-
landafræði var til dæmis þannig
að nemendur áttu að skipuleggja
fimm daga ferð með erlendum
ferðamönnum um Vestfirði." í þess
konar prófi er brýnt að hafa landa-
fræðina á hreinu. Áfanginn um
áhafnarsamvinnu var að sögn An-
itu einstaklega áhugaverður en þá
leituðu nemar á vit leiklistargyðj-
unnar. „Við brugðum okkur í hlut-
verk; sumir léku flugþjónustufólk
og aðrir flugdólga og við spunnum
upp allskyns aðstæður sem upp
kunna að koma í háloftunum."
Nemendur Ferðamálaskólans
fóru um víðan völl í námi sínu og
heimsóttu meðal annars Icelandair,
fengu að prófa flughermi, lærðu á
björgunarbáta og flugrennu auk
þess sem slökkviliðsmaður kenndi
nemunum nokkur nýtileg handtök.
Ferðamálaskólinn er eins og
áður sagði mjög góð reynsla fyrir
þjónustustörf í háloftunum og fékk
Ánita starf sem flugfreyja fljótlega
eftir útskrift. Ferðamálanámið er
kennt við Menntaskóla Kópavogs
að kvöldlagi.
Miðstöð símenntunar Hafnarfirði
Hláturjóga og
kaffismökkun
Miðstöð símenntunar er staðsett
í fallegu og fornu húsnæði við Læk-
inn í Hafnarfirði. Miðstöðin er þrjá-
tíu ára gömul og í dag miðast starf-
semin við það að fá fólk með hvers
kyns bakgrunn til þess að viða að
sér auknum fróðleik. Miðstöð sí-
menntunar hefur verið í samstarfi
við Háskólann á Akureyri og styrk-
ist sífellt það samstarf.
I Símenntunarmiðstöðinni er að
finna úrval námskeiða sem mörg
tengjast afþreyingu og skemmt-
unum en önnur miða að því að
uppfræða einstaklinga um nytsam-
legan fróðleik. Hægt er að leggja
stund á fjölda tungumála, meðal
annars rússnesku, sænsku, pólsku
og íslensku sérsniðna að þörfum
útlendinga.
Einnig má sækja námskeið í tré-
skurði, listasögu, hljóðfæraleik af
ýmsu tagi, goðafræði, hegðunar-
vandamálum dýra, töfrabrögðum,
bútasaum, fluguköstum
og -hnýtingum ásamt fjölmörgu
öðru. Matargerðarnámskeið Mið-
stöðvar símenntunar hafa notið mik-
illa vinsælda og þá eru nemendur
leiddir um ganga austurlenskrar
eða franskrar matargerðar. Einnig
er hægt að sækja kaffinámskeið en
það er haldið í samvinnu við Te og
Kaffi og lýtur að kaffismökkun og
sögu kaffis.
Hláturjóga Símenntunarmið-
stöðvar er námskeið sem þátttak-
endur hafa verið gríðarlega ánægðir
Míðstöð símenntunar er eins og
glögglega sést í glæsilegu umhverfi
£3® * »• 4 " Í
EaajJÍ -t
með. Þar er stemningin byggð upp
þannig að fólk geti ekki hamið
hláturtaugar sínar og stundi jóga í
leiðinni.
Samstarf við Háskólann á Akur-
eyri hefur aukist að undanförnu
og með hjálp nútíma-tækni er lítið
mál að sitja akureyrska fyrirlestra
þó einstaklingur sé staddur í Hafn-
arfirðinum og öfugt. Hægt er að
leggja stund á viðskipta- og rekstrar-
fræðinám frá Háskóla Akureyrar ogi
ýmsar greinar innan þess.
Samkvæmt Finni Þ. Gunnþórs-
syni, aðstoðarskólastjóra Mið-
stöðvar símenntunar, er fyrirtækið
ákveðinsamfélagsþjónusta.Þarmæt-
ast einstaklingar úr öllum þrepum
samfélagsins, með mismunandi
bakgrunn en það ku skapa mikla
gerjun og drifkraft. Ef sérlegar óskir
berast frá hópum um námskeið sem
lýtur að ákveðnu efni, segir Finnur
að Miðstöð símenntunar muni gera
það sem í hennar valdi stendur til
þess að útvega það.