blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 13

blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 SKÓLAROGNÁMSKEIÐ I 25 Myndlist rokkar! -með Ásdísi SifogRagnari Kjartanssyni í Myndlistaskóla Reykjavíkur er boðið upp á 40 listatengd námskeið á vorönn. Nemendur eru á sjötta hundrað og aldursdreifing er frá þriggja ára upp í áttrætt. Nemendur í fullu námi í skólanum eru um 40 talsins. Dæmi eru um að heilu fjöl- skyldurnar skelli sét saman á nám- skeið og hver meðlimur finni eitt- hvað við sitt hæfi en um auðugan garð er að gresja í námskeiðavali. Samkvæmt Ingibjörgu Jónsdóttur, skólastjóra myndlistaskólans, verður sífellt aukin þörf fyrir skap- andi fólk í íslensku samfélagi, fjör- ugt ímyndunarafl og hugmynda- auðgi eru mannkostir sem þarf að rækta. í Myndlistaskóla Reykja- víkur eru kennd námskeið um allt frá ljósmyndun til vatnslitunar og frá módelteikningu til námskeiðs sem ber heitið: Myndlist rokkar! Þessu forvitnilega námskeiði stýrir tvíeykið og parið Ásdís Sif Gunnarsdóttir myndlistarmaður og Ragnar Kjartansson, söngvari Trabants. Myndlist rokkar! leitast við að kanna þann áhugaverða bræð- ing sem skapast þegar tónlist og myndlist renna saman og úr verður ný sköpun. Blaðamaður náði tali af hinni glaðlyndu Ásdísi Sif sem gaf ýmsar upplýsingar um námskeiðið. „Við erum í raun að skapa tengingu milli tónlistar og myndlistar og leyfa þeim að hafa áhrif hvorri á aðra. Sýnd er myndlist og tónlist í framhaldi af því og pælt í því hvernig hvað hefur áhrif á annað. Við gerum myndlistina auðlesan- legri og búum til mjög skemmtilega stemningu um leið.“ Nú í janúar verður námskeiðið kennt í þriðja skipti þann 12. og 13. janúar og einnig helgina eftir, 19. og 20. janúar. „Á síðasta námskeiði prófuðum við að setja fjögurra geisla- diska tónverk með hljómsveitinni Flaming Lips af stað í hljómflutn- ingsgræjum og þátttakendur unnu á meðan með þær græjur sem þeir töldu henta sér best. Nokkrar vinnu- stöðvar eru settar upp; við eitt borð er til dæmis hægt að leira, síðan eru stórar málaratrönur og myndatöku- vélar.“ Öll listsköpun fer fram meðan eðaltónlist er blastað á fullu. „Einu sinni prófuðum við að hafa þema þannig að við settum eitt tiltekið lag á repeat í um það bil 20 mínútur og þátttakendur unnu sitt verk á meðan. Útkoma varð mjög skemmtileg og afar ólík milli þeirra sem bjuggu til listaverk." Myndlist rokkar! er án efa mjög frumlegt námskeið með skemmti- legum leiðurum sem áhugasamir ættu alls ekki að láta framhjá sér fara. Námskeið fyrir einkaþjálfara: Forvarnir í styrktarþjálfun [þróttaakademían í Reykja- nesbæ mun dagana 3. og 4. febrúar halda endurmenntun- arnámskeið ætlað einkaþjálf- urum og íþróttakennurum. Námskeiðið ber heitið Forvarnir í styrktarþjálfun og snýr nám- skeiðið að því hvernig einstak- lingar í þessum stéttum geta tekið á þeim málum sem snúa að eymslum og sársauka sem birtast oft þegar styrktarþjálfun er hafin. Rannsóknir hafa sýnt að það er allt að 40 prósent aukning á meiðslum þegarfólk byrjar styrktarþjálfun, hvort sem það æfir undir umsjón einkaþjálf- ara eður ei. Það er því tímabært að einkaþjálfarar og íþróttakenn- arar landsins kynni sér hvernig skuli höndla þessi mál. Um kennsluna sjá þeir Haraldur Æ Magnússon og Helgi Jónas Guðfinnsson og hafa þeir báðir mikla reynslu af þjálfun og hvers konar meiðslum sem og umfangsmikla menntun á þessu sviði. Haraldur er einn tveggja starfandi osteópata á landinu og Helgi Jónas hefur um árabil getið sér gott orð sem einn af betri körfuboltamönnum landsins ásamt því sem hann hefur menntað sig á sviði styrktarþjálfunnar með áherslu á stoðkerfaendurhæfingu. Haraldur segir að markmið nám- skeiðsins sé einfalt. „Við viljum gefa einkaþjálfurum kost á því að víkka út starfssvið sitt og verða öruggari þegar kemur að vægum stoðkerfavandamálum." Á meðal þess sem kennt er er fræðilegur grundvöllur meiðsla, hvernig á að aðlaga líkamsstöðu viðskiptavinar að æfingum, hvernig á að byggja upp æfinga- áætlanir með meiðslaforvarnir 1 huga. Einnig hvernig hægt er að aðlaga þær til að forðast meiðsli. Að loknu námskeiðinu ættu þátttakendur að geta aðlagað æfingakerfi að fólki sem er með léttvæg stoðkerfisvandamál. Einnig ættu þeir að geta, með þetri hætti en áður, komið í veg fyrir meiðsli viðskiptavina sinna. KYNNING Kíkið á heimasíðu Iþróttaaka- demíunnar, www.akademia.is, og aflið frekari upplýsinga. .oi;q iigsvíú tm Fjamám meö áherslu á starfstengt nám Byggingagreinar Efnisfræði, framkvæmd og vinnuvernd og grunnteikning. Tækniteiknun Húsateikning, raflagnateikning, innréttingateikning, vélateikning, AutoCad og grunnteikning. Tölvubraut Forritun, gagnasafnsfræði, vefsíðugerð, vefforritun, netstýrikerfi og vélbúnaður. Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Allar greinar í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlabrautar; eins og myndbygging og formfræði, myndgreining, týpógrafía og grafísk hönnun, myndvinnsla og marg- miðlun, hljóðtækni, Ijós- og litafræði, inngangur að fjölmiðlun. Meistaraskóli Allar stjórnunar- og rekstrargreinar. Almennt nám Enska 212, ENS303, GRT203, STÆ202, algebra og föll, STÆ 303, stærðfræði, UTN103, notkun upplýsingatækni og tölva í námi. Rafiðnanám Rafiðnabraut GR06 (ný námsskrá). Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 18. jan. 2007 á www.ir.is. Kennsla hefst fös. 19. jan. 2007. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þáttöku. Allar frekari upplýsingar ísíma 522 6500 eða á vefskólans www.ir.is. Kvöldskóli i® Bygginga- og mannvirkjagreinar Verklegt og bóklegt grunn- og framhaldsnám. Rafiðnanám Grunnnám rafiðna 2. önn. Rafvirkjun 3.-7. önn. Listnám Ýmsir áfangar í kjarna og á kjörsviði almennrar hönnunar. Öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun. Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Undirbúningur fyrir nám í grafískri miðlun, vefsmíð, Ijósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi.. Tækniteiknun TTÖ103 Tölvuteikning - AutoCad. Meistaraskóli Allar rekstrar- og stjórnunargreinar. Faggreinar byggingagreina. Almennt nám Bókfærsla, danska, eðlis- og efnafræði, enska, félagsfræði, fríhendisteikning, íslenska, grunnteikning, spænska, stærðfræði, þýska, notkun upplýsingatækni og tölva. Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 14. jan. 2007 á www.ir.is. Innritun með aðstoð verður í matsal skólans, þri. 2. 0g mið. 3. jan., frá kl. 16.30-19. (Hægt er aðgreiða meðpeningum, debet- eða kreditkorti). Kennsla hefst þri. 9. janúar 2007. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þátttöku. IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK CillCMtl OU)vlbtbjj)Ob1

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.