blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 14
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 blaöið 26 I SKÓLAR 0G NÁMSKEIÐ Magnus Pálsson, kennari við Endurmenntun HÍ Skerptu skynfærin - hugsaðu skýrar ! Hagnýtar aðferðir við verkefnastjórnun Námskeiðið Verkefnastjórnun - Lykill að árangri verður haldið hjá Iðntæknistofnun 23. og 24.janúar frá kl. 09.00 til 13.00 báða dagana. • Verkefnishugmyndir og mótun þeirra. • Að hefja verkefni. • Hópvinna - mat á hagsmunaaðilum og óvissu. • Gerð framkvæmdaáætlana. • Eftirfylgni og mat á árangri. • Verkefni og fyrirlestrar. • Mannleg samskipti. Leiðbeinandi er Karl Friðriksson, hagfræðingur. Upplýsingar og skráning Hjá Impru nýsköpunarmiðstöð í síma 570 7100 hjá brynja@iti.is eða á www.iti.is. <?> impra nýsköpunarmiðstöð Iðntæknistofnun Wl NÁM ss SKEIÐ Iðntæknistofnun Brú milli háskóla og atvinnulífs Magnús Pálsson, framkvæmda- stjóri hjá hinum sameinaða Spari- sjóði (en nýlega voru Sparisjóður Hafnarfjarðar og Sparisjóður Vélstjóra sameinaðir), hóf síð- astliðið haust sitt 17. kennsluár sem stundakennari við Endur- menntun Háskóla Islands. Hann hefur kennt markaðsfræði með áherslu á stefnumótun og gæðamál sem er innan náms í rekstrar- og viðskiptafræði. Auk þess hefur Magnús einnig kennt í MBA-námi Endurmenntunar. Rekstrar- og viðskiptanámið er að sögn Magnúsar ætlað fólki sem vill öðlast þekkingu á þeim greinum er snerta rekstur fyrirtækja og stofn- ana. Markmiðið er að þátttakendur öðlist öryggi og getu til að takast á við hin ýmsu svið rekstrar og stjórnunar. Leitast er við að gefa nemendum fræðilega yfirsýn um leið og þeim eru kynntar hagnýtar aðferðir sem reynst hafa vel i rekstri fyrirtækja. Forgang að náminu hafa þeir sem lokið hafa háskólanámi, en ef pláss og aðstæður leyfa er tekið inn fólk með a.m.k. stúdentspróf eða sambærilega menntun, mikla reynslu af rekstrar- eða stjórnun- arstörfum og sem hefur með starfs- ferli sínum sýnt færni til að takast á við nám á þessu stigi. „Námið hefur notið mikilla vin- sælda frá upphafi, þegar HÍ ákvað að opna leið fyrir þá sem vildu styrkja sig á þessu sviði.“ Námið er metið til eininga og margir sem stunda það fara í frekara háskóla- nám í svipuðum greinum. Kennt er í fjóra tíma í senn, að kvöldlagi, tvisvar sinnum í viku yfir skólaárið, auk þess minnir Magnús á, að auðvitað séu fyrir utan það verkefnavinna og lestur. „Rekstrar- og viðskiptanámið byggir sterka brú milli háskóla og atvinnulífs þar sem nemendur geta unnið að raunverulegum verk- efnum úr sínu starfsumhverfi. Nem- endafjöldi er takmarkaður og hóp- vinnan skapar mikla nánd milli nemenda og kennara." Nemendur í þessu námi eru, að sögn Magn- úsar, gjarnan á aldrinum 30-50 ára, kynjahlutföll eru svipuð og mynda nemendahóparnir góðan þver- skurð af atvinnulífi landsmanna. „Ég tek eftir því hversu mikill samhugur myndast hjá fólki í svona námi er það lætur gamlan draum rætast og kynnir sér það nýj- asta á sviði menntunar í rekstri og viðskiptum og kynnist ekki síður sjálfu sér og öðru fólki. Mörg ævin- týralega góð verkefni og viðskipta- hugmyndir hafa sprottið upp úr þeim farvegi." Endurmenntun er að mati Magnúsar eitt skemmtileg- asta skrefið sem Háskóli íslands hefur stigið í þróun sinni til þess að tengjast atvinnulífinu á svo skilvirkan hátt sem raun ber vitni. Nemendurnir eru oft stjórnendur og millistjórnendur fyrirtækja og gestafyrirlesarar, sem eru frama- fólk á vinnumarkaðnum, koma í heimsókn. „Endurmenntun sýnir að menntun er ekki lengur það spretthlaup sem hún var gjarnan skilgreind áður, nú er meira hægt að líta á menntun sem langhlaup.“ Magnús hyggst halda áfram kennslu svo lengi sem hann getur, því hann sér glögglega ónumin gós- enlönd markaðsfræðinnar og hefur ánægju af því að miðla þeirri þekk- ingu sem þar er að finna. KVOLDSKOLI KOPAVOGS NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2007 Tungumál 10 vikna námskeið 20 kennslustundir Áhersla á talmál Kennt er í byrjenda -framhalds- og talaefingaflokkum ENSKA DANSKA SÆNSKA FRANSKA (TALSKA SPÆNSKA fslenskunámskeið 8 vikna námskeið 30 kennslustundir ÍSLENSKA fyrir útlendinga I ÍSLENSKA fyrir útlendinga II (SLENSKA fyrir útlendinga III Verklegar greinar BÓKBAND FRlSTUNDAMÁLUN GLERBRENNSLA LOPAPEYSUPRJÓN SILFURSMÍÐI SKRAUTRITUN TRÉSMlÐI ÚTSKURÐUR Tölvunámskeið FINGRASETNING VEFSÍÐUGERÐ Front Page TÖLVUGRUNNUR TÖLVUGRUNNUR Framhald: WORD Ritvinnsla Saumanámskeið BÚTASAUMUR CRAZY QUILT FATASAUMUR / BARNAFATASAUMUR AÐ ENDURSAUMA FÖT OG HANNA AÐ NÝJU ÞJÓÐBÚNINGUR - SAUMAÐUR SKRAUTSAUMUR Baldering Skattering Matreiðslunámskeið GÓMSÆTIR BAUNA - PASTA - OG GRÆNMETISRÉTTIR GÓMSÆTIR HOLLIR SUÐRÆNIR RÉTTIR FRÁ MIÐJARÐARHAFSLÖND- UNUM HRÁFÆÐI MATARMIKLAR SUPUR OG HEIMABAKAÐ BRAUÐ MATARGERÐ FYRIR KARLMENN I Grunnnámskeið MATARGERÐ FYRIR KARLMENN II Framhaldsnámskeið SPENNANDI BÖKUR Garðyrkjunámskeið GARÐURINN ALLT ÁRIÐ MAT-OG KRYDDJURTIR TRJÁKLIPPINGAR TRJÁRÆKT í SUMAR- BÚSTAÐALANDINU Ýmis námskeið BÓKHALD SMÆRRI FYRIRTÆKJA Grunnatriði í bókhaldi Innritun í síma 564 1507 8. - 18. janúar kl. 10 - 18 á vef skólans http:// kvoldskoli.kopavogur.is eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla Fyrstu námskeiðin hefjast 22. janúar Nánari upplýsingar eru einnig á vefsíðu skólans Vefsíða:http:H kvoldskoli.kopavogur.is Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is Þegar leitað er á Netinu eftir námskeiðum kemur margt fróð- legt og fjölbreytt í ljós. Stjórnendur fyrirtækja geta t.d. sótt hin ýmsu námskeið og lært hvernig þeir eigi að koma fram við starfsfólk sitt eða hvernig þeir eigi að tjá sig í erfiðum málum sem upp geta komið í fyrir- tækjum. Góður stjórnandi hlýtur að vera hverju fyrirtæki nauðsynlegur. Fyrirtækið Þekkingarmiðlun sér- hæfir sig í því að miðla þekkingu og styrkja einstaklinga og vinnustaði. Það er gert m.a. með námskeiðum, þjálfun, fyrirlestrum og einka- þjálfun. Á heimasíðu fyrirtækisins er hægt að glugga í hina ýmsu fyrir- lestra og kynna sér hvaða námskeið eru í boði. Þekkingarmiðlun hefur meðal annars einbeitt sér að vinnu- staðafundum þar sem fjallað ^r um streitu og álag í vinnu. Námskeið þar sem fjallað verður um erfið starfsmannamál verður nú í janúar en það hentar öllum þeim sem vilja auka færni sína í að ræða viðkvæm frammistöðumál og læra að færa slæm tíðindi á uppbyggilegan hátt. I janúar verður einnig námskeið þar sem kennt er að takast á við erf- iða einstaklinga en þá er farið yfir helstu atriðin sem varða samskipti við erfiða einstaklinga. Einnig eru í boði lengri námskeið hjá Þekk- ingarmiðlun en þar er unnið með fyrirlestra, einstaklingsverkefni, hópverkefni, hlutverkaþjálfun og umræður. Á lengri námskeiðum er þáttur þjálfunar mikill, eins og ráð- gjafarfærni, að stjórna fólki og að auka persónulegan árangur og færni. Það eru þau Eyþór Eðvarðs- ,son og Ingrid Kuhlman sem stofn- uðu Þekkingarmiðlun.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.