blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 1
6. tölublað 3. árgangur
miðvikudagur
10. janúar 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■ FOLK
Davíð Þór Jónsson segist ekki vera
neitt frík þótt hann komi viða við
í spurningakeppni. Hann semur
spurningar fyrir Gettu betur | sfÐAie
■ KOLLA OG KÚLTURINN
Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona
leikur eitt aðalhlutverkið í Degi vonar
eftir Birgi Sigurðsson og hlakkar til
frumsýningarinnar | síða2s
Karlmaður á Akureyri tælir börn:
Segist vera lögreglumaður
■ Tvö nýleg tilfelli ■ Nemendur meðvitaðir um hættuna
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net
Lögreglunni og skólastjóra Síðuskóla á Akureyri
hafa í tvígang borist kvartanir vegna manns sem
reynt hefur að lokka börn upp í bíl sinn í grennd
við skólann á undanförnum dögum. Maðurinn seg-
ist vera lögreglumaður og reynir þannig að nýta sér
traust barnanna á lögreglunni til að fá börnin upp
í bíl sinn. Það hafi tekist einu sinni erj í því tilfelíi
hafi maðurinn ekki leitað á barnið.
„Ég get ekki sagt annað en að málið er í rannsókn
hjá okkur og við teljum ástæðu til þess að foreldrar
brýni enn og aftur fyrir börnunum sínum að setjast
ekki upp í bíl hjá ókunnugum. Við höfum fengið
ýmsar upplýsingar í hendur sem við erum að skoða
sem vonandi leiða til þess að við finnum þennan
mann,“ sagði Daníel Guðjónsson, yfirlögregíuþjónn
á Akureyri, er hann var spurður út í málið.
„Það gerðist síðasta fimmtudag að móðir drengs
sem lenti'í þessu kom til mín og sagði mér frá þessu.
Ég benti henni á lögregluna og skrifaði í kjölfarið
bréf til kennara og bað þá um að fara yfir þessi
mál með krökkunum. Síðan hef ég fengið bréf frá
lögreglu varðandi málið og því bréfi var beint til
foreldra krakkanna," sagði Olafur B. Thoroddsen,
skólastjóri Síðuskóla.
Ólafur segir að vissulega séu foreldrar nem-
enda áhyggjufullir, líkt og alltaf þegar atvik á
borð við þetta gerist, en segir að krakkarnir séu
mjög vel meðvitaðir um hættuna.
„Það virðist vera búið að ræða við þau heima
og við gerum það einnig þegar skólinn byrjar
á haustin. Flest hafa þau hlaupið í burtu þegar
ókunnugir hafa nálgast þau, nema i undantekn-
ingartilvikum. Svona tilvik hafa ekki gerst áður
hér í skólanum en ég veit um einstök tilvik hér á
Akureyri, meðal annars í þessu hverfi, þar sem
svona lagað hefur gerst," segir skólastjórinn í
Síðuskóla.
Krefjast frávísunar
Núverandi og fyrrverandi forstjórar olíu-
félaganna Essó, Skeljungs og Olís hafa
krafist þess að máli ríkissaksóknara á
hendur þeim verði vísað frá dómi.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær en forstjórarnir eru ákærðir
fyrir margvísleg brot á samkeppnis-
lögum vegna ólögmæts samráðs olíufé-
laganna. Hámarksrefsing getur verið allt
að fjögurra ára fangelsi.
Hinir ákærðu kusu að tjá sig ekki efnis-
lega um málið fyrir dómi í gær en fram
hefur komið í máli Ragnars H. Hall, verj-
anda Kristins Björnssonar, að hann telji
einstaklinga ekki geta borið refsiábyrgð
í samráðsmálum af þessu tagi.
Ákæra ríkissaksóknara á hendur forstjór-
unum þremur var gefin út 13. desember
síðastliðinn og er forstjórunum gert að
sök að hafa með ólögmætu samráði,
ýmist sjálfir eða fyrir milligöngu undir-
manna, komið í veg fyrir samkeppni á
olíumarkaði.
Yfir 80 manns hafa verið yfirheyrðir.
Frávísunarkrafan verður tekin fyrir í hér-
aðsdómi föstudaginn 26. janúar.
Dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason, heimsótti lögregluna i Reykjavík. Starfsmenn lögregluembættis höfuðborg-
arsvæðisins opnuðu nýja kynningarsíðu þess á Netinu síðdegis í gær. Nýtt skipurit embættisins var þá einnig staðfest. Stefán Eiríksson er
nýr lögreglustjóri. Jón H.B. Snorrason og Hörður Jóhannesson eru aðstoðarlögreglustjórar.
SÍÐUMÚLA 37-SÍMI 510 6000
Bónuspotturinn
nálgast það að
verða sá stærsti
frá upphafi.
Potturinn stefnir í 50 milljónir.
Ofurpotturinn stefnir í 80
milljónir og bónusvinningurinn
í 27 milljónir sem er að nálgast
það að verða sá stærsti frá
upphafi.
0RÐLAUc
» síða 34
KEA-stelpan
Stefanía Benónísdóttir er ung
háskólastúlka, rétt skriðin yfir
tvítugt. Kynþokkinn hefur lengi
lekið af henni enda hefur hún
státað, í mörg ár, af ekki ómerk-
ari titli en KEA-skyrstúlkan.
VEÐUR
Dálítil snjókoma
Vaxandi suðlæg og síðar
austlæg átt, víða 10-18
síðdegis með dálítilli
snjókomu sunnantil, en
annars þurrt að kalla.
Dregur úr frosti.
SERBLAÐ
Sérblað um
bíla fylgir með
Blaðinu í dag
»siður 17-24
LðTTf
Alltaf á miðvikudögum!
lotto.ls
Opið: VIRKA DAGA 10-18
LAUGARDAG 10-16
ulpur kápur , jakkar SUNNUDAG 12-16
20-50 % AFSLATTUR Mörkinni 6, sími 588 5518