blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 2007
blaöiö
VEÐRIÐ í DAG
Minna frost
Vaxandi suðlæg og síðar austlæg átt,
víða 10 til 18 síðdegis með dálítilli
snjókomu sunnantil, en annars þurrt
að kalla. Dregur úr frosti.
Á MORGUN
Léttirtil
Stíf norðan- og síðar norð-
vestanátt og snjókoma eða
él, en léttirtil sunnanlands.
Frost 0 til 10 stig, mildast við
suðurströndina.
VfÐAUMHEIM 1
Algarve 15 Glasgow 8 New York 3
Amsterdam 14 Hamborg 13 Orlando 10
Barcelona 16 Helsinki 5 Osló 8
Berlín 13 Kaupmannahöfn 10 Palma 20
Chicago 0 London 14 Paris 13
Dublin 10 Madrid 7 Stokkhólmur 6
Frankfurt 13 Montreal 0 Þórshöfn 0
Banaslys í Ástralíu:
Lést í
fallhlífarslysi
íslenski fallhlífarstökkvarinn
sem lést í Ástralíu á sunnudag
hét Benjamín Árnason. Hann
var tuttugu
og sjö ára
gamall og var
í heimsókn
hjá fjölskyldu
vinar síns sem
lést fyrir ári í
base-stökki.
Benjamín fór
ásamt móður
og systur þessa vinar síns á tón-
listarhátíð og stökk Benjamín úr
þyrlu í 2.500 metra hæð. Hann
opnaði fallhlíf sína of seint og
hrapaði til bana.
Benjamín var einn af reynd-
ustu fallhlífarstökkvurum lands-
ins og félagar hans hjá Fallhlífa-
klúbbi Reykjavíkur sjá mjög eftir
góðum vini.
Frakkland:
Borðaði
klefafélagann
Nicolas Cocaigne hefur viður-
kennt að hafa myrt klefafélaga
sinn og borðað líkamshluta
hans í fangelsi í Rouen í Frakk-
landi í síðustu viku.
Cocaigne, sem sat inni fyrir
kynferðisárás, segist hafa harið
klefafélaga sinn, stungið með
skærum og kæft hann áður en
hann reif út hjarta hans. Líkið
fannst illa farið í klefanum þar
sem hlutar af öðru lunganu
og vöðvar í kringum rifbein
mannsins voru horfnir. Coca-
igne, sem hefur greinst með
geðklofa, hafði áður beðið um
að fá einstaklingsklefa sökum
þess að hann taldi sjálfan sig
hættulegan. Fangelsisstjórinn
hafði þó hafnað beiðninni.
Kosið um stækkunina Á næstu
mánuðum greiða Hafnfirðingar
atkvæði um stækkun álversins í
Straumsvík.
Stækkun álversins í Straumsvík:
Varðar fleiri en
Hafnfirðinga
■ Skiptar skoðanir ■ Kosið um skipulagsmál ■
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Ég held að stækkun álversins í
Straumsvík snerti ekki eingöngu
hagsmuni Hafnfirðinga. Mér finnst
að sjálfsögðu að menn hér ættu
að fá að segja álit sitt og greiða
atkvæði. Rafmagnið verður jú
til hér hjá okkur,“ segir Sigurður
Jónsson, sveitarstjóri í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi.
Á næstu mánuðum munu Hafn-
firðingar greiða atkvæði um
stækkun álversins í Straumsvík.
Landsvirkjun hefur skrifað undir
samning við Alcan um sölu á orku,
sem fæst við virkjun neðri hluta
Þjórsár, vegna mögulegrar stækk-
unar álversins. Margir bændur sem
eiga jarðir á svæðinu eru andvígir
framkvæmdunum sem leiða til þess
að hluti af ræktuðu landi þeirra fer
undir vatn. Semja á við bændur um
bætur þegar hönnun lýkur.
ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar-
stjóri í Hrunamannahreppi, er ekki
sömu skoðunar og Sigurður. „Eftir
því sem ég skil málið rétt eru Hafn-
firðingar að kjósa um skipulags-
málin hjá sér. Mér finnst ekki að við
ættum líka að fá að greiða atkvæði
um stækkun álversins. Hins vegar
þætti mér ekki óeðlilegt að heima-
menn á okkar svæði fengju að segja
álit sitt í kosningum um hvort þeir
vilja virkjanir og svo framvegis."
Eydís Indriðadóttir, sveitarstjóri í
Ásahreppi, segir fleiri en eina hlið á
málinu. „Ef stækkunin hefur áhrif
úti i sveitarfélögunum er ekki óeðli-
legt að fleiri en Hafnfirðingar fái að
greiða atkvæði. Landsvirkjun hefur
hins vegar bent á að hægt verði að
selja orkuna til annarra verði ál-
verið í Straumsvík ekki stækkað.
Fleiri en ein hlið á málinu
Eðlilegt að kjósa
um virkjanir
Isólfur Gylfi Pálma-
son, sveitarstjóri í
Hrunamannahreppi.
Þar að auki hefði Alcan trúlega
leitað annað ef ekki hefðu náðst
samningar hér austurfrá.“
Örn Þórðarson, sveitarstjóri í
Rangárþingi ytra, telur ekki að
íbúar hreppanna fyrir austan eigi
að taka þátt í atkvæðagreiðslunni
um stækkun álversins. „Hafnfirð-
ingar eiga sjálfir að greiða atkvæði
um hana. Þar eiga ekki aðrir að
koma að nema hugsanlega íbúar
nágrannasveitarfélaga sem málið
varðar. Hitt er annað að okkur
finnst skorta að þessi orka verði
nýtt á Suðurlandi.“
Kína:
Fjögur ár fyrir
þrjár krónur
Kínverskur dómstóll hefur
dæmt Li Fushou, tvitugan Kín-
verja, í fjögurra ára fangelsi fyrir
að ræna andvirði þriggja króna
af tveimur tólf ára drengjum.
Dómarinn sagði glæpinn vera
svo svívirðilegan að hann krefð-
ist þess að dómurinn yrði harður.
Fushou rændi drengina þegar
þeir voru á leið heim úr skóla
sínum í Guangzhou í marsmán-
uði síðastliðnum. I niðurstöðu
dómsins segir að Fushou hafi
dregið drengina inn í húsasund,
hótað þeim barsmíðum og krafist
afþeim andvirðí tveggja hundr-
aða til að geta gengið í klíku.
Drengirnir létu Fushou fá aleig-
una og var maðurinn handtek-
inn skömmu síðar.
í flugslysi
Þrjátíu tyrkneskir verkamenn
fórust þegar flugvél brotlenti í
þoku um áttatíu kílómetra norð-
vestur af Bagdad, höfuðborg
íraks, um hádegisbil í gær.
Vélin var í eigu moldavísks
fyrirtækis og var af gerðinni
Antonov-26.1 vélinni var fimm
manna áhöfn auk verkamann-
anna, en vélin var á leið frá
Adana í Tyrklandi til íraks.
Verkamennirnir voru allir á leið
til vinnu í Irak. Tveir komust
lífs af úr slysinu.
Betra grip
Lágmúli 9, 108 Reykjavík, S. 533*3999
Loftbóludekkin eru fáanleg I öllum
stærðum, fyrlr allar gerðir blla og fást
á dekkjaverkstæðum um land allt.
Karlmaður dæmdur í níu mánaða fangelsi:
Barði fyrrum konu sína
37 ára karlmaður var í gær
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur
í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir stórfellda líkamsárás á fyrrum
eiginkonu sína. Auk þess var hann
dæmdur til að greiða henni 400 þús-
und krónur í miskabætur. Ákæru
fyrir tilraun til nauðgunar var hins
vegar vísað frá dómi.
Manninum var gefið að sök að
hafa reynt að þvinga konuna til sam-
ræðis að heimili hennar þann 1. maí
2005. Hann hafi gengið hart fram og
meðal annars þrengt að hálsi hennar
með taubelti en maðurinn neitaði
sök. Hann neitaði því jafnframt að
hafa reynt að nauðga konunni en
viðurkenndi að þau hafi rifist heift-
arlega og í kjölfarið hafi hann slegið
til hennar.
í dómsorði segir að árásin hafi
verið „fólskuleg og unnin innan
veggja heimilis fyrrverandi eigin
konu hans og barnsmóður, sem
átti sér einskis ills von frá hans
hendi. Þótt ekki hafi verið
sýnt fram á að kynferð-
islegar hvatir hafi búið
að baki árásinni verður
engu síður að líta til þess
að ofbeldi ákærða stóð
yfir í umtalsverðan
tíma.“
Hrottaleg árás
Árás mannsins á
konuna var fólsku-
leg. Konan átti
sér einskis ills
von frá hans
hendi.