blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007
blaðió
INNLENT
HÚSAVÍK
Eldsvoði í fjölbýlishúsi
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi á Húsavík í fyrra-
kvöld. Hann kviknaði útfrá potti á hellu. Tölu-
vert tjón varð á íbúðinni að sögn lögreglunnar á
Húsavík. Einn var í íbúðinni og komst hann út af
sjálfsdáðum og var fluttur til aðhlynningar.
ICELAND EXPRESS
Ferðin á tæpar 6500 krónur
Flugfélagið lceland Express býður fjölda flugsæta
á flugleiðunum til og frá London, Kaupmannahöfn,
Berlín og Friedrichshafen á verði allt frá 6.465 krónum
aðra leið, með sköttum og gjöldum, frá og með morg-
undeginum. Flugfélagið á fjögurra ára afmæli.
LANDSSPÍTALINN
Fjárdráttur rannsakaður
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar enn meintan
fjárdrátt á gervifrjóvgunardeild sem var á Landspítalanum.
Starfsmaður deildarinnar, sem vikið var úr starfi er málið kom
upp, er grunaður um að hafa á tveggja ára tímabili dregið að sér
tugi milljóna frá rúmlega 100 sem greiddu fyrir gervifrjóvganir.
Sealand:
Ríki til sölu
Smáríkið Sealand er til sölu
fyrir andvirði níu milljarða
króna. Ríkið er 550 fermetra stór
stálpallur í Norðursjó, ellefu kíló-
metra austur af strönd Englands.
Pallurinn var reistur árið 1941 og
var notaður sem lendingarstað-
ur í síðari heimsstyrjöldinni.
Árið 1967 settist majórinn
Roy Bates að á pallinum ásamt
fjölskyldu sinni og lýsti hann
skömmu siðar yfir sjálfstæði
Sealands og tók upp titilinn Roy
prins. Breskur dómari hefur úr-
skurðað að Sealand sé utan breskr-
ar lögsögu. Ríkið hefur eigin fána,
þjóðsöng, gjaldmiðil og stjórn-
arskrá, auk þess sem gefin eru
út sérstök vegabréf og frímerki.
Michael prins, sonur Roy,
segir að staðsetning og skatta-
umhverfi ríkisins sé tilvalið
fyrir starfsemi ýmissa erlendra
fyrirtækja. „Eyjan hefur verið
okkar í fjörutíu ár og faðir minn
er orðinn 85 ára. Það er orðið
tímabært að yngra fólk taki við.“
www.simnet.is/strond
SMÁAUGLÝSINGAR
GEFA/ÞIGGUA
blaðið
Gott ár hjá Byggðastofnun:
Mikil aukning í útlánum 11 Minnkandi afskriftir
.
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Viðsnúningur varð í rekstri Byggða-
stofnunar á síðasta ári og stefnir í
að starfsemin skili hagnaði í fyrsta
skipti síðan árið 2003. Á síðustu
árum hefur stofnunin tapað umtals-
verðum fjármunum en forstjórinn
þakkar það minnkandi afskriftum
og minnkandi útlánatapi að tekist
hefur nú að snúa rekstrinum við.
Alls voru veitt lánsloforð fyrir rúma
tvo milljarða á síðasta ári en vinnu
við ársreikninga stofnunarinnar er
ekki að fullu lokið.
200 milljónir í hagnað
„Það liggur fyrir að það verður
ágætis hagnaður af rekstri stofnun-
arinnar árið 2006,“ segir Aðalsteinn
Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofn-
unar. „Þetta eru mikil gleðitíðindi
fyrir okkur.“
Starfsemi Byggðastofnunar hefur
verið rekin með umtalsverðu tapi
síðan árið 2002 en aðeins einu sinni
á þessu tímabili hefur hún skilað
hagnaði.
Alls nemur tap stofnunarinnar
á síðustu fjórum árum rúmum 1,1
milljarði en mest var það árið 2002
þegar það nam tæpum hálfum millj-
arði. Árið 2003 varð hins vegar hagn-
aður af rekstri upp á sjö milljónir
króna.
I hálfsársuppgjöri stofnunarinnar
sem birt var í lok ágústmánaðar
nam hagnaður af rekstri stofnunar-
innar á fyrstu sex mánuðum síðasta
árs tæpum 200 milljónum króna.
Þá jukust útlán stofnunarinnar
verulega milii ára og hafa þau ekki
verið hærri síðan árið 2002.
Samkvæmt bráðabirgðatölu
Byggðastofnunar voru veitt lánslof-
Rekstrarafkoma
Byggðarstofnunar
I milljónum króna
+7
-480 -385 -272
2002 2003 2004 2004
Samkvæmt upplýsingum frá Byggðastofnun
ÚTB0RGUÐ LÁN
0G LÁNSL0F0RÐ
2002 - 2,1 milljaröur
2003 -1,6 milljarðar
2004-1,3 milljarðar
2005 -1,4 milljarðar
2006 - 2,5 milljarðar *
ALLS - 8,9 milljarðar
'Aætluð tala. Samkvæmt upplýsingum
frá Byggðastofnun
orð fyrir allt að tvo og hálfan millj-
arð í fyrra en útborguð lán árið 2005
voru um einn og hálfur milljarður.
Ekki heft útlánagetu
Aðalsteinn segir að þrátt fyrir tap-
rekstur á undanförnum árum hafi
staða stofnunarinnar ekki veikst.
,Við störfuðum af fullum krafti allt
síðasta ár. Tapreksturinn hefur
ekki á nokkurn hátt heft útlánagetu
okkar.“
Aðalsteinn segir hagnaðinn skýr-
ast fyrst og fremst af minnkandi af-
skriftum og minnkandi útlánatapi
stofnunarinnar. „Það varð viðsnún-
ingur á síðasta ári, Það hefur verið
að skila sér til baka sem lagt hefur
verið í á síðustu árum.“
Skilagjald fyrir
rafhlöður
Þingmenn Venstre og Jafnaðar-
mannaflokksins í Danmörku vilja
að almenningur fái gjald fýrir
að skila rafhlöðum í sérstakar
endurvinnslustöðvar til að draga
úr því að þeim sé hent í ruslið.
Eyvind Vesselbo, þingmaður
Venstre, mun ásamt öðrum þing-
mönnum leggja tillöguna fyrir
Connie Hedegaard umhverfisráð-
herra í þessari viku. Samkvæmt
tillögunni myndi almenningur fá
greitt fýrir að skila líkt og gert er
með flöskur og dósir og fengjust
um tuttugu íslenskar krónur fyrir
hverja raflilöðu sem skilað væri.
Tékkland:
Ríkisstjórn
mynduð
Vaclav Klaus Tékklandsforseti
hefur tilnefnt nýja ríkisstjórn
undir forystu Mireks Topolaneks,
formanns Hægri flokksins, sem
mun taka við embætti forsætis-
ráðherra. Samstarfsflokkar Hægri
flokksins eru Kristilegir demó-
kratar og Græningjaflokkurinn.
Samtds hafa flokkarnir
einungis hundrað þingmenn af
tvö hundruð í þinginu. Stjórnar-
kreppa hefur ríkt í landinu allt
frá þingkosningunum sem fram
fóru í júnímánuði síðastliðnum.
Útsala
útsala
50-90%
afsláttur af
öllum vörum
IMú er hægt að gera dúndur kaup
mikið úrval af eldri fatnaði
á 990 kr Nú 2 fyrir 1
Opið 10-18 virka daga
og laugardaginn 13 jan 10-16
Síðumúli 13 sími 5682870
friondfe'X
www.friendtex.is
Leiösögumenn hreindýraveiðimanna:
Skattstjóri vill gögn um tekjur
Nánast allir skráðir leiðsögu-
menn hreindýraveiðimanna fengu í
desember síðastliðnum bréf frá skatt-
stjóra Norðurlandsumdæmis eystra.
í bréfinu segir að þeim beri að leg-
gja fram afrit af öllum útgefnum
reikningum vegna leiðsögunnar og
telduskráningu.
„Eg reikna frekar með því að lítill
hluti leiðsögumanna hafi verið að
skila inn virðisaukaskatti. Veiði-
menn eru bara að veiða sem ein-
staklingar og hafa ekki not fyrir
virðisaukanótu," segir Aðalsteinn
Jónsson, sauðfjárbóndi í Klaustur-
seli á Jökuldal, sem er einn leiðsögu-
mannanna. Hann segir um 70 leið-
sögumenn með réttindi til að veita
hreindýraveiðimönnum leiðsögu.
.Hluti afþeim er í atvinnurekstri og
þess vegna með skyldu á virðisau-
kauDDeiöri. Svo stundar hluti leið-
sögumanna vinnu hjá öðrum. Þeir
mega hafa ákveðinn tekjustofn án
þess að skila inn virðisaukaskatti en
ég geri ráð fyrir að þeir telji fram til
tekjuskatts."
Á síðasta ári voru veidd um 900
dýr. Aðalsteinn segir misjafnt hvað
menn taki fvrir leiðsöeuna. Þeir hafi
ekki samráð þar sem það sé ólöglegt.
Samkvæmt heimildum Blaðsins
eru dæmi þess að leiðsögumenn fái
greiddar 20 til 30 þúsund krónur
fyrir hvert fellt dýr. Inni í þeirri upp-
hæð er þá fláningargjald og notkun
á bíl. Sumir leiðsögumenn taka
ákveðna UDnhæð fvrir daeinn.