blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 blaðið Ók á Ijósastaur Rétt eftir hádegi í gær ók maður á Ijósastaur á Kringlumýrarbraut. Bíllinn er óökuhæfur eftir slysið og var dreg- inn með kranabíl. Maðurinn er lítið meiddur eftir óhappið. Stal fartölvu í gær var brotist inn í íbúð á Leifsgötu og hafði þjófurinn á brott með sér fartölvu. Lögreglan lýsir eftir þjófnum sem er dökkhærður með stutt hár, líklega á milli tvítugs og þrítugs og var klæddur svartri úlpu með einhverju hvítu á hettunni, hugsanlega loðkraga. Rakst á strætó Fólksbifreið og strætó skullu saman á gatnamótum Sæbrautar og Dal- brautar um miðjan dag í gær. Engan sakaði en bíllinn skemmdist mikið í óhaþþinu. Gengur vel Sigurður Þorðarson segir vinnu ganga vel við skoðun á fjármálum Byrgisins og í hvað op- inbert styrktarfé hefur farið. Von er á niðurstöðum i lok vikunnar. Fjármál Byrgisins: Skilar nákvæmum niðurstöðum „Það er ekkert annað að frétta af rannsókninni en það að við erum að vinna á fullu í þessu,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Ríkisendurskoðun vinnur nú í því að skoða fjármál Byrgisins nokkur ár aftur í tímann og meðal annars verður njörvað niður í hvað opinbert styrktarfé hefur verið notað. Sigurður á von á því að ljúka þessari skoðun í vikunni eða um helgina. „Vinnan gengur vel og skilar okkur nákvæmri mynd af fjár- málum heimilisins og i hvað opin- Skilar okkur nákvæmri mynd af fjármálum heimilisins Siguröur Þórðarson, rikisendurskoðandi bert fé hefur farið,“ segir Sigurður. Byrgið hefur verið á fjárlögum síðustu ár. Yfirvöld vilja vita hvernig fénu var varið eftir að fréttaþátturinn Kompás á Stöð 2 fjallaði um meint kynlífssamband forstöðumanns þess við skjólstæðinga. Danskennsla Á laugardögum í vetur veröur boðið upp á danskennslu fyrir krakka á aldrinum 3-6 ára. Kenndir verða ýmsir barnadansar og freestyle dansar í takt við tónlist. Tímarnir verða brotnir upp með ýmsum leikjum og fígúrum sem munu taka virkan þátt í kennslunni. Kennslan hefst 13. janúar og fer fram í ísaksskóla. Innritun í síma 897 5040 Frekari upplýsingar á: www.danskennsla.is Málaferli undirbúin 101 Skuggahverfi og Eykt undirbúa málaferli vegna sam- starfs fyrirtækjanna í Skuggahverfinu og hugsanlegra galla á húsbyggingum. Deilt um frágang í Skuggahverfi: Eigendur íbúða hafa áhyggjur Óheppileg deila fyrir seljendur ■ Réttur kaupenda tryggöur Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Ég hef velt því fyrir mér að mála- ferlin koma náttúrlega upp á óheppilegum tíma fyrir mig. Aður en deilan kom upp var ég búin að ákveða að selja og mun því halda mínu striki,“ segir Magnea S. Bjart- marz gjaldkeri. Byggingafélagið 101 Skuggahverfi sakar byggingafy rirtækið Eykt um að hafa staðið ófullnægjandi að frágangi við fjölbýlishúsin í Skuggahverfinu og stefnir á að fara i mál. A móti und- irbýr Eykt málaferli vegna vanefnda en greiðslur hafa verið frystar og fyr- irtækin eru ósammála um viðskilnað- inn. Magnea er nýbúin að setja íbúð sína í Skuggahverfinu á skrá hjá fast- eignasölunni Eignamiðlun og hefur áhyggjur af því að deilan geti haft áhrif á sölu íbúðarinnar. Þorleifur Stefán Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, tekur undir og telur eðlilegt að eigendur íbúða í Skuggahverfinuhafiáhyggjurafdeil- unni. „Neikvæð umræða er alltaf slæm þegar kemur að sölu fasteigna, líkt og jákvæð umræða getur verið góð. Þessi staða er því líklega til hins verra fyrir þá sem eru að selja Neikvæð umræða er alltafslæm Þorleifur Stefán Guðmundsson, löggiltur fasteignasali eignir sínar þarna," segir Þorleifur. „í fljótu bragði virðist vera auðvelt að laga þá galla sem komið hafa fram og einhver handvömm orðið í frágangi. Hvort deilan verður notuð sem vopn gegn seljendum þarf ekk- ert endilega að vera en þetta getur dregið úr söluhraðanum.“ Dómkvaddir matsmenn hafa úr- skurðað að gólfplötur hússins hafi ekki sigið og að ekkert bendi til þess að burðarvirki þess sé ótraust. Engu að síður hefur lekið með- fram gluggum og fjöldi flísa hefur losnað. Framkvæmdastjóri 101 Skuggahverfis, Einar Halldórsson, segir félagið hafa þurft að bregðast sjálft við ýmsum göllum á húsbygg- ingum og að Eykt hafi ekki brugðist við athugasemdum sem þeim voru sendar. Gunnar Valur Gíslason, for- stjóri Eyktar, segir um hönnunar- galla að ræða varðandi lausar flísar og vísar því ábyrgðinni alfarið frá Skylt að tryggja að kaupendur verði ekki fyrir neinu tjóni Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri sér. Deilan er því algjörlega í hnút og málsaðilar vísa hver á annan. Grétar Jónasson, framkvæmda- stjóri Félags fasteiganasala, er þeirrar skoðunar að réttur kaup- enda verði ríkulega tryggður varð- andi eignir í Skuggahverfinu, ekki síst á meðan dómsmál sé hugsan- lega framundan. „Að svo komnu lítur ekki út fyrir að íbúðirnar sjálfar séu gallaðar og því ekki víst að þetta komi beint niður á eig- endum íbúðanna. Aftur á móti tel ég að við sölu allra íbúða Skugga- hverfisins verði sett sérákvæði inn í sölusamninga um tryggingu kaup- enda gegn hugsanlegum göllum,“ segir Grétar. „Nú er dómsmál framundan og ég á von á því að það yrði hnýtt inn í kaupsamninga. Fasteignasala ber að gæta hagsmuna beggja aðila og er skylt að tryggja að kaupendur verði ekki fyrir neinu tjóni.“ Bandarikjamenn gera loftárásir í Sómalíu: Óbreyttir borgarar létust Eftir Atla Isleifsson atlii@bladid.net Bandaríkjaher gerði nokkrar loft- árásir í suðurhluta Sómalíu í gær. Að sögn sómalísku bráðabirgða- stjórnarinnar létust og særðust fjölmargir í árásunum, þar á meðal óbreyttir borgarar. Árásirnar beindust gegn uppreisn- armönnum íslamista sem Banda- ríkjamenn saka um að tengjast Al Qaeda-hryðjuverkasamtökunum. Bandaríkjamenn gruna íslamista, sem voru nýverið hraktir frá höfuð- borginni Mogadishu, um að hafa skotið skjólshúsi yfir þá hryðju- verkamenn sem réðust á sendiráð Bandaríkjanna í Nairobi í Keníu og Dar es Salaam í Tansaníu árið 1998 þar sem 250 létu lífið. Flugvél Bandaríkjahers var send frá herstöð Bandaríkjamanna í Dji- bouti, nágrannaríki Sómalíu. Aðfara- nótt gærdagsins var meðal annars ráðist á þorpið Afmadow þar sem talið var að fjöldi íslamskra uppreisn- armanna hefðist við. Sjóher Banda- ríkjamanna hefur tekið sér stöðu undan ströndum Sómalíu. Islamistarnir náðu stærstum hluta Sómalíu á sitt vald um mitt síðasta ár, en fyrir hálfum mánuði tókst her- sveitum bráðabirgðastjórnarinnar í Sómalíu, með liðsinni Eþíópíuhers, að hrekja þá frá Mogadishu. Árásir gærdagsins voru fyrstu hernaðaraðgerðir Bandaríkjahers íslamistar leitaðir uppi Bandaríkja- menn gruna íslamista um að tengjast hryðjuverkasamtökunum Al Qaeda. í Sómalíu frá árinu 1994, ári eftir að átján bandarískir hermenn voru drepnir í höfuðborginni Mogadishu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.