blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007
blaðið
Kjarnorkukafbátur rakst á skip
Engan sakaði þegar bandarískur kjarnorkukafbátur
rakst á japanskt olíuflutningaskip rétt sunnan við
Hormuz-sund í Persaflóa í gær. Að sögn yfirvalda er
verið að fara yfir skemmdir en svo virðist sem þær hafi
ekki verið miklar.
Leitað að morðingjum
Þúsundir hermanna leita nú uppreisnarmanna
í Assam-héraði í norðausturhluta Indlands
sem bera ábyrgð á drápi að minnsta kosti sjö-
tíu manna um síðustu helgi. Talið er að Frelsis-
hreyfing Assam hafi staðið að morðunum.
Chavez vill aukin völd
Hugo Chavez, forseti Venesúela, sagði í ávarpi til þjóðar
sinnar á mánudaginn að hann vilji þjóðnýta stærstu orku-
og fjarskiptafyrirtæki landsins, auk fjölmiðlafyrirtækisins
CANTV. Chavez hefur ferið fram á að þingið veiti honum
sérstök völd til að hrinda áætlununum í framkvæmd.
Nýr bæjarstjóri á Akureyri:
Kristján lætur
af störfum
MUITI-VIT
Náttúruleg fjölvitamín
með steinefnum
VaUn bæticfni fyrir þarfn iifendinga
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
^bávo
heilsa
-haföu þaö qott
SMÁAUGLÝSINGAR
KAUPA
/SELJA
blaöiðn
SHAAUGLVSINQAR@BLADID.NET
Kristján Þór Júlíusson lét í gær
af starfi bæjarstjóra á Akureyri
en hann hefur gegnt því frá árinu
1998. Við stöðu hans tekur Sigrún
Björk Jakobsdóttir sem var í öðru
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
í sveitarstjórnarkosningunum
síðastliðið vor.
Kristján mun
leiða lista
Sjálfstæðis-
flokksins
í Norð-
austurkjör-
dæmi í
alþingis-
kosning-
unum sem
fram fara í
mai.
Kristján sagði í samtali við
Blaðið í gærkvöld að hann líti sáttur
til baka eftir rúmlega átta ára setu
á bæjarstjórastóli. „Þetta er búinn
að vera fínn tími. Þetta er lifandi
og gefandi starf og það er gaman
að vinna með góðu fólki. Það er
búið að vera mikill vöxtur í sam-
félaginu á öllum sviðum og
fullt af tækifærum í boði.
Ég get nefnt breytingar
og umbætur á sam-
göngumannvirkjum i
sveitarfélaginu og upp-
byggingu í atvinnu-
lífinu á þeim grunni,
uppbyggingu stofnana
á sviði mennta og menn-
ingar og ég get endalaust
haldið áfram.“
Kristján Þór Hættursem
bæjarstjóri á Akureyri. Sigrún
Björk Jakobsdóttir tekur við.
AFMÆLISTILBOÐ
/ tilefni af 20 ára afmœli Hótels Arkar bjódum við
viðskiplavinum okkar einstakt lilbod í janúar.
Við hverfum 20 ár aftur í límann í verðlagningu á gistingu og mat
Einungis 5.540 krónur (*USD 78) á mann
Jyrir gistingu í tvíbýli, þriggja rétla kvöldverð að hœtti
matreiðslumeistarans og morgunverð af hlaðborði.
Gildir alla daga til 31. janúar 2007
Lögð verður rík áhersla á tónlist frá vetrinum 1986-1987
Lifandi tónlist um helgar
Pantanir ísíma 483 4700
Hótel Ork í 20
skv. wrðskrá j’rá 1987 sem Junnsi ígeymslnm hólelsins. Reiknaó med gengi dollars 5. janúar
f a
t 1 j **. _ ur v j ■
mm*, / y
1 ^9 i 1 jmta ■ (
Lóðaúthlutanir ársins 2006:
Kópavogur
methafinn
■ Flestir vilja einbýli ■ Hafnarfjörður í öðru sæti
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Kópavogsbær úthlutaði flestum
íbúðum á síðasta ári eða rúmlega
fimm hundruð íbúðum. Mest eftir-
spurn er eftir einbýlishúsalóðum og
þvívartæp-
lega helm-
KÓPAVOGUR
Tegund fbúðir
Einbýli 227
Par/rað 53
Fjölbýli 234
Samtals: 514
o
HAFNARFJÖRÐUR
Tegund (búðir
Einbýli 121
Par/rað 118
Fjölbýli 204
Samtals: 441
0
íbúða sem bærinn úthlutaði af þeim
toga. Öfugt hlutfall var að finna hjá
Reykjavíkurborg sem úthlutaði tæp-
lega fjögur hundruð íbúðum og ríf-
lega helmingur þeirra voru íbúðir í
fjölbýli. Hafnarfjarðarbær úthlutaði
rúmlega fjögur hundruð íbúðum
og er tæplega helmingur þeirra í
fjölbýli. Engar úthlutanir voru hjá
Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ og
Garðabæ á síðasta ári.
Tegund Ibúðir
Einbýli 28
Par/rað 139
Fjölbýli 230
Samtals: 397
0
sæti
SELTJARNANESBÆR
Engin lóð
GARÐABÆR ^
Engin lóð
MOSFELLSBÆR
Engin lóð
Bankarnir yfirgefi kronuna:
Safna gjaldeyri
Mbl.is Greiningardeild Landsbank-
ans segir í Vegvísi sínum í gær, að
ljóst sé af tölum um gjaldeyrisstöðu
viðskiptabankanna þriggja, að þeir
séu enn að safna gjaldeyri af fullum
krafti. Erfitt sé að sjá annan tilgang
með jafn mikilli uppbyggingu
gjaldeyrisforða bankanna en að
þeir séu, einn eða fleiri, í alvöru að
undirbúa að yfirgefa krónuna sem
uppgjörsmynt.
Samkvæmt tölum Seðlabankans
var nettógjaldeyrisstaða bankanna
í lok desember jákvæð um 188,5
milljarða og hækkaði um 81,4 millj-
arða milli mánaða. Greiningardeild
Landsbankans segir, að þetta sé
langmesta hækkun gjaldeyrisstöð-
unnar í einum mánuði frá þvi að
Seðlabankinn hóf að birta tölur um
gjaldeyrisjöfnuðinn.
Bankarnir safna gjaldeyri
" Landsbankinn segir visbend
| ingar um að bankar ætli aó
I yfirgefa krónuna.