blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 blaðiö Olmert í heimsókn Ehud Olmert, forsætisráöherra israels, hóf í gær þriggja daga heimsókn sína til Kína þar sem hann hyggst vinna að því að efla viðskiptatengsl ríkjanna og ræða kjarn- orkuáætlanir írana. Olmert mun meðal annars ræða við nokkra ráðherra og Hu Jintao, forseta Kína. RÚMENÍA Drakúla-kastali til sölu Bran-kastali í Rúmeníu, sem oft ertengdurvið söguna um Dra- kúla greifa eftir Bram Stoker, er til sölu fyrir um fimm og hálfan milljarð króna. Kastalinn er nú í eigu afkomenda Habsborgara- ættarinnar. Talið er líklegt að rúmensk stjórnvöld muni kaupa kastalann, en hann er vinsæll áfangastaður ferðamanna. FRAKKLAND Félagar í ETA handteknir Lögregla í Frakklandi handtók tvo grunaða meðlimi ETA, frelsishreyfingar Baska á Spáni, í suðurhluta Frakklands í gær. Handtökurnar eru þær fyrstu frá því að bílsprengja sprakk við Madrídarflugvöll þann 30. desemþer þar sem tveir létust. Spænsk stjórnvöld sökuðu ETA um verknaðinn. 3 FYRIREINN Hátíðisdagar heiisunnar - tveir fyrir einn á Salatbarnum 10., 11. og 12. janúar. 50 rétta salatbar, ásamt heitum réttum - allt innifalið! Opið frá kl. 11.30 - 20.30. Miðvikudagur: Gunni og Júlli í hádeginu og hljómsveitin Jón forseti um kvöldið. Fimmtudagur: Hljómsveitin Palindrome í hádeginu og Spútnik um kvöldið. Föstudagur: Hljómsveitin Mímósa í hádeginu og Greifamir um kvöldið. HDŒÐCTnUDtfT) Salatbarinn Faxafeni 9 • Sfmi 588 0222 www.salatbarinn.is nsp starfsfólk? Frábært viðskiptatækifæri: Heilsulind í ríki Vatnajökuls ■ Vilja viðhalda baðhefð Þórbergs ■ Hornfirðingar áhugasamir Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Heilsulind í ríki Vatnajökuls er frá- bært viðskiptatækifæri." Þetta segir Stella Sigfúsdóttir, markaðs- og ferðamála- fræðingur, sem á sæti í stjórn alþjóð- . legra samtaka um heilsulindir. Fyrir um t tveimur árum var Stella verk- efnisstj óri við Háskóla- I setrið á Höfn í Hornafirði í fjölþjóðlegu | verkefni sem sneri að þróun ferðaþjónustu í og við þjóð garðaogvernduð svæði. „Ég fór þá strax að bera upp þá hugmynd að stofna heilsulind í ríki Vatnajökuls sem er innan marka væntanlegs Vatna jökulsþjóðgarðs. Þetta er kjörið svæði fyrir slíkan rekstur og það er gott lag núna þegar umræðan um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs er í gangi. Ég hef rætt þetta við nokkra mikla heilsulindafrömuði í Banda- ríkjunum ogþeim finnst þetta alveg stórkost- leg hugmynd,“ segir Stella sem er nýskipaður alþjóðlegur talsmaður samtakanna Day Spa Association í afsláttur af völdum hlýjum, mjúkum og góðum vörum í verslunum okkar NORÐUR Bandaríkjunum en hún hefur verið í stjórn þeirra í sjö ár. Til þess að gera forrannsókn á því hvort fýsilegt sé að fara út í rekstur heilsulindar fékk Stella frumkvöðla- styrk hjá IMPRU Nýsköpunarmið- stöð. „Ég tel að blönduð heilsulind yrði vænlegust til árangurs í ríki Vatnajökuls, blanda af svokallaðri dvalarlind annars vegar fyrir þá sem vilja til dæmis breyta um lífsstíl og svo hins vegar daglind." Heitt vatn hefur fundist ö við Hoffell og á Hala á Þór- bergssetrinu. „Við Hof- fell hafa menn mikinn áhuga á að koma upp baðlóni og á Hala vilja menn viðhalda hefð ; Þórbergs sem var mik- | ill baðaðdáandi,“ tekur 1 Stella fram. Hún segir gríðarlega mikilvægt að vanda vel valið við staðsetningu heilsulind- arinnar sem hún leggur til að verði kölluð Spa Vatnajökull-heilsulind. StellasegirHornfirðingahafa sýnt hugmyndinni mikinn áhuga. „Það er ánægjulegt að finna áhugann og þá miklu hugarfarsbreytingu sem hefur orðið frá því að ég bryddaði upp á þessari hugmynd fyrst fyrir tveimur árum. Næsta skref er að ræða við ýmsa aðila og gera viðskipta- áætlun verði áhuginn nægilegur." Þéttbýliskjarni nálægt Höfn meö Öræfajökul i baksýn. Nú BÝÐUR Blaðið UPP Á ATVINNUAUGLÝSINGATILBOÐ TIL FYRIRTÆKJA blaöi Auglýsingasíminn er 510 3737 íslensk leyniþjónusta: Rannsókn á leka án niðurstöðu „Rannsókmn hetur ekki skilað ne- inni niðurstöðu í sjálfu sér og óvíst hvort henni verður haldið áfram. Slíkt er þó ekki hægt að útiloka,“ segir Grétar Már Sigurðsson, ráðu- Afrit af bréfunum Utanríkisráðu- neytið hefur rannsakað án niður- stöðu hvernig bréfin bárust Blaðinu. neytisstjóri utanríkisráðuneytisins. Ákveðið var að rannsaka innan ráðuneytisins hvernig upplýsingar og afrit af bréfaskriftum Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, komust til fjölmiðla. Blaðið birti fréttir af því að bréfin voru stíluð í nafni íslenskrar leyniþjónustu, skammstöfuð IIS Nato (Icelandic Intelligence Serv- ice - Nato). Rannsóknin á lekanum hefur ekki skilað niðurstöðu og ljóst að starfsmenn utan ráðuneytisins koma einnig til greina. Grétar Már lítur málið alvar- legum augum ef upplýsingar frá ráðuneytinu komust í hendur aðila utan þess. „Við höfum áhyggjur af þvi að upplýsingar láku út því slíkt á ekki að viðgangast í stjórnsýslunni," segir Grétar Már. Rannsóknin hefur ekki skilað neinni niðurstöðu Grétar Már Sigurðsson, Ráöuneytisstjóri mm m m mm .< wln.’IS IWro ■kki fleiri bréf frá njijónustumii i ■ Blaðið 21. desember sl.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.