blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 15
blaöiö
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 15
Ætlar framsókn virkilega
að svíkja Ríkisútvarpið
1 Blaðinu sl. fimmtudag er fróð-
leg frétt um frumvarp ríkisstjórnar-
innar um háeffun Ríkisútvarpsins
undir fyrirsögninni Málið í sama
hnút og áður. Rætt er við formann
menntamálanefndar Alþingis,
Sigurð Kára Kristjánsson, hinn
geðþekka og galvaska frjálshyggju-
mann, sem áður flutti frumvarp
um að ganga enn lengra og hreint til
verks og selja RÚV þegar í stað. Sig-
urður Kári er hinn ánægðasti með
gang mála: „Ég er bara hress. Málið
er þó í sama hnút og áður fyrr og
menn eru ósammála um rekstrar-
formið." Hér talar formaður mennta-
málanefndar Alþingis Islendinga.
Hann er hinn hressasti þótt málið
sé í bullandi ágreiningi. Einhvern
tíma þótti skipta máli að sátt væri
um útvarp allra landsmanna! Þykir
mönnum þetta vera ábyrgt tal og
það vera ábyrgur stjórnmálaflokkur,
Sjálfstæðisflokkurinn, sem stendur
svona að málum?
Þykir mönnum
þetta vera
ábyrgt tal?
Ögmundur
Jónasson
Blaðið ræðir einnig við fulltrúa
Framsóknarflokksins í mennta-
málanefnd Alþingis, Dagnýju Jóns-
dóttur. Hún segist eiga „von á því
að þetta verði fyrsta mál á þingi“,
þ.e.a.s. þegar það kemur saman
nú um miðjan mánuðinn. Alþingis-
menn geta vissulega átt sínar vonir
og drauma en verra er þegar rang-
lega er staðhæft um réttindamálin.
FulltrúiFramsóknarsegirnefnilega:
„Að okkar mati eru réttindamál
starfsmanna RÚV í góðum farvegi.“
Hvernig er eiginlega hægt að kom-
ast að þessari niðurstöðu þegar
samtök starfsmanna staðhæfa hið
gagnstæða og biðja um að frum-
varpinu verði visað frá? Háeffun
Ríkisútvarpsins sviptir starfsfólkið
mikilvægum réttindum, hunsar
gerða samninga um lýðræðislega að-
komuþess að stjórn stofnunarinnar
og tekur hana undan stjórnsýslu-
lögum sem tryggja eiga jafnræði
innan starfsemi sem fjármögnuð er
af almannafé. Fulltrúi Framsóknar
segir að málin séu í góðum farvegi!
Blaðið ræddi einnig við Kolbrúnu
Halldórsdóttur, fulltrúa Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs. Þar kveður við allt annan og
lýðræðislegri tón. Kolbrún vill víð-
tæka sátt um málið og furðar sig
á afstöðu stjórnarflokkanna, ekki
síst Framsóknar: „Framsóknar-
flokkurinn hefur ákveðið að standa
NÚ GETUR ÞÚ AUGLÝST
BÍLINN ÞINN HJÁ OKKUR
FYRIR AÐEINS 1500
KRÓNUR MEÐ MYND 0G
TEXTA (80 SLÖG)
Auglýsingasíminn er
510 3737
ótrauður við hlið sjálfstæðismanna
í þessu frumvarpi. Ég er ekki viss
um að flokkarnir tveir þoli mikla
rökræðu um þetta mál þegar
það verður komið í sal Alþingis."
Þetta er raunsætt mat hjá Kolbrúnu
Halldórsdóttur og tek ég undir það.
Kolbrún talar um mikilvægi rök-
ræðunnar. Spurningin er hins vegar
hvort stjórnarþingmenn treysti sér
yfirleitt í rökræðu um málið. Um
það hef ég miklar efasemdir. Sjálf-
stæðismenn fylgja sannfæringu
sinni um að stíga markviss skref
í átt að endanlegri einkavæðingu
Ríkisútvarpsins. Framsókn sem á
sínum tíma lofaði að standa vörð
um Ríkisútvarpið sem almanna-
útvarp mun hins vegar að öllum
líkindum svíkja gefin fyrirheit
í þá veru og elta sitt máttfarna
skott niður á milli fóta sér í fylgi-
spekt og undirgefni við þann
aðilann sem ræður í ríkisstjórn-
inni. Eða hvað, ætlar Framsókn
virkilega að svíkja Ríkisútvarpið?
Höfundur er alþingismaður
WWW.SVAR.IS
ÁRA ÁBYRGÐ
ÍAKÍMfWÐ MAGN!
Acer Aspire 3692WLMÍ
Intel Celeron M 1.6Ghz - Centrino tækni
1024MB DDR
80GB Harður Diskur
CD / DVD Skrifari
15.4“ skjár með 1280x800 upplausn
CrystalBrite tækni gefur dýpri liti og betri mynd
Innbyggð Acer OrbiCam 0.3MP vefmyndavél
Intel GMA 950 skjákort allt að 224MB
Windows XP MediaCenter
Kortalesari 5-í-l
3 ára ábyrgð
TILBOÐ: 89.900-
Aser Aspire 5102WLMÍ
Aser Aspire 9303WSMÍ
Logiíech X-210
WD MyBook 250GB
Acer 171617”
AMD Turion X2 TL-50 DuoCore örgjörvi
1024MB DDR2 5B3Mhz ( mest 4GB)
100GB SATA Harð diskur
CD / DVD Skrifari
15.4“ skjár meö 1280x800 upplausn
CrystalBrite tækni gefur dýpri liti og betri mynd
Innbyggð Acer OrbiCam 0.3MP vefmyndavél
ATI Radeon XI100 128MB skjákort
Kortalesari 5-í-l
Windows XP Home
3 ára ábyrgð araábvrqd
AMD Turion X2 TL-50 DuoCore örgjörvi
2GB DDR2 533Mhz
120GB SATA Harð diskur
CD / DVD Skrifari
Skjár: 17" meö 1440x900 upplausn
CrystalBrite tækni gefur dýpri liti og betri mynd
Innbyggð Acer OrbiCam 0.3MP vefmyndavél
nVidia GeForce Go 7600 SE 128MB skjákort
Windows XP Media Center
Kortalesari 5-í-l
3 ára ábyrgð ara abyrqd
11«
Flott hatalarakerfi frá Logitech
við fartölvur / borðtölvu.
Utanálíggjandi hysing með 250GB höröum
frá Western Digital USB og FireWire
disk
17 Acer LCD tölvuskjár viö fartölvu eða
borðtölvu með 3 ára ábyrgö, 1280x768
upplausn, 8 ms svartíma.
TILBOÐ: 26.900-
svan)
tækni
ALLAR NANARI UPPLYSINGAR A WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000