blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 HVAÐ FINNST ÞÉR? Ættum við að taka upp túrkmenskan manat? Ef við fáum að ráða hvaða myndir verða á seðlunum. folk@bladid.net blaðið Guðmundur Steingrímsson, frani&jóðandi á lista Samfylkingarinnar í Suðvcstlirkjördæmi. Miklar umræður hafa verið um stöðu krónunnar að undanförnu og hefur Guðmundur verið ötull talsmaður þess að íslendingar kasti krónunni og taki upp evru. Enginn hefur hins vegar enn rætt möguleikann á að taka upp opinberan gjaldmiðil Túrkmenistans, manat, í fullri alvöru. Aftur í Gettu betur HEYRST HEFUR... Q krif Björgvins G. Sigurðs- v3 sonar um nána samvinnu Samfylkingar og Framsóknar- flokks, jafnvel samruna, hafa vakið mikla athygli, alla vega í netheimum. Björgvin segir að kosningarnar í vor verði örlaga- ríkar fyrir Framsóknar- flokkinn og margir taka undir það og «•—» finnst það jafnvelvægt til orða tekið. Björgvin leiðir að því líkur að Samfylk- ingin og Framsóknarflokkur- inn muni jafnvel sameinast í einn flokk. Björgvin sér einna helstan kost við samrunann að fá Björn Inga Hrafnsson til liðs við sig og flokkinn, enda hefur hann góðar minningar um samskipti við hann frá dögum stúdentapólitíkur. Ekki er víst að það sé mikill hljómgrunnur innan Samfylk- ingarinnar fyrir þessum óræða samruna við Framsókn og Björn Inga. Spurningakeppnin Gettu betur er nú hafin í ár og útsláttarkeppnin fer fram í út- varpinu á næstu vikum. Stefán Pálsson, fyrrverandi spurninga- smiður og dóm- ari, bloggar um keppnina á heimasíðu sinni. Hann hrósar Davíð Þór, nýjum spurningasmið, fyrir spurn- ingarnar en segir jafnframt að hann búist við meiru frá honum þegar keppnin færir sig yfir í Sjónvarpið. Reyndar er eitt sem Stefán setur út á Davíð og það er að hann þurfi að hafa aldur þátttakenda í huga þar sem þau eru fædd um 1990 og muna því ekki eftir sítt að aftan- hljómsveitum eins og Human League og hver hafi ritstýrt Þjóðviljanum 1985. Davíð Þór Jónsson er ekki alveg tilbúinn að taka undir það að spurn- ingakeppni sé ástríða sín í lífinu en hann játar því nú samt að þær séu sér hugleiknar, sérstaklega þessa dagana þar sem hann er spurn- ingasmiður og dómari í spurninga- keppni framhaldsskólanna Gettu betur sem nú stendur yfir. Davíð Þór hefur áður komið að Gettu betur-keppninni en það var fyrir tíu árum og þá var hann í hlutverki spyrils. Hann er tengdur fleiri spurningakeppnum og tekur vikulega þátt í spurningaleiknum Orð skulu standa á Rás eitt og hefur verið umsjónarmaður spurninga- keppni sem haldin er vikulega á Grand Rokk. „Það er ákveðin kaldhæðni að ég sé einhver táknmynd fyrir spurn- ingakeppnir. Það má segja að röð tilviljana hafi valdið því að ég er viðloðandi þetta spurningastúss. Ég myndi nú ekki segja að ég sé orðinn eitthvert spurningakeppn- isfrík en ég hef sjálfur tekið þátt í einhverjum spurningakeppnum og finnst alveg gaman að spila Trivial. Gettu betur-keppnin var annars ekki til þegar ég var í menntaskóla og ég er ekki viss um að ég hefði komist í liðið á sínum tíma,” segir Davíð um spurningakeppnisstússið. Sanngjarn og samkvæm- ur sjálfum sér „Það hefur gengið ágætlega að semja spurningar en að sama skapi er maður að renna dálítið blint í sjóinn með þetta. Fyrsta kvöldið gekk vel en það var ekki svarað alveg eins miklu og ég hefði viljað og það má segja að ég er enn að átta mig á aldri keppenda." Davíð Þór segir að spurningarnar séu nokkuð staðlaðar en hver spurn- ingahöfundur komi þó með sínar áherslur og sitt áhugasvið inn í þetta. „Ég leitast við að hafa spurning- arnar eins fjölbrey ttar og hægt er en ég gæti trúað því að í ár sé áherslan á menningu og bókmenntir. Ég skal al- veg viðurkenna að ég hef tekið þann pól í hæðina að spyrja um íslenskt mál. Ég veit að keppendur reyna að sjá fyrir hvað dómarinn spyr um og ég hef það alls ekki að markmiði að vera óútreiknanlegur þegar kemur að spurningunum heldur reyni ég að vera sanngjarn og samkvæmur sjálfum mér,“ segir Davíð og bætir við að hann voni sannarlega að að aðkoma sín að Gettu betur hafi það í för með sér að ungt fólk fari að kynna sér betur íslenskt mál og læra orðtök og rétta meðferð á þeim. ,Þá get ég glaður við unað. Það eru samt spurningar um Tinnabæk- urnar þannig að krakkarnir þurfa ekki bara að lesa orðabækur.” Einn vinsælasti þátturinn í íslensku útvarpi Sem fyrr segir tekur Davíð Þór vikulega þátt í spurningaleiknum Orð skulu standa sem hlustendur Rásar eitt kannast eflaust við. Þátt- urinn sem er í umsjón Karls Th. Birgissonar fjallar um íslenskt mál og bókmenntir. „Karl fékk mig til að taka þátt í þættinum og upphaf- lega áttu þættirnir einungis að vera tíu en í vetur er fjórði veturinn sem hann er í loftinu. Þátturinn hefur á lúmskan og ófyrirsjáanlegan hátt haslað sér völl í íslensku útvarpi og er uppáhaldsþáttur margra sem kom mér skemmtilega á óvart. Ég hef líka kynnst hlustendahópi Rásar eitt í gegnum þetta og hef komist að því að hann er á öllum aldri og til- heyrir öllum sviðum þjóðfélagsins.“ Næstu tvær vikurnar munu 29 skólar mætast í útvarpinu í Gettu betur og í febrúar munu átta skólar keppa til úrslita í sjónvarpinu og að vanda eru margir sem bíða spenntir eftir þeim viðureignum. SU DOKU talnaþraut 7 4 8 5 1 6 9 3 2 1 2 6 4 3 9 5 7 8 9 3 5 2 7 8 1 6 4 8 9 3 6 4 5 2 1 7 2 5 4 7 9 1 3 8 6 6 7 1 3 8 2 4 9 5 3 1 2 8 5 7 6 4 9 4 6 7 9 2 3 8 5 1 5 8 9 1 6 4 7 2 3 Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 8 9 2 4 6 1 5 5 3 8 9 7 6 5 3 2 1 5 7 4 3 6 9 4 9 2 3 6 3 1 8 Lilja, ertu til í að hlaupa upp og gá hvort gasgrillið hans sé inni í svefnherbergi A förnum vegi Hver er uppáhalds- sjónvarpsþátturinn þinn? Hallfríður Tryggvadóttir, nemi The O.C.! Sigrún Inga Gunnarsdóttir, nemi The O.C. og Desperate House- wives. Lilja Rut Gunnarsdóttir, nemi Grey’s Anatomy. Berglind Anna Bjarnadóttir, nemi The O.C. Hjalti Geir Erlendsson, nemi Sigtið.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.