blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 20
blaðið
28
MIÐ'
'AGUR 10. JANUAR 2007
Ekki missa af Little Miss Sunshine sem sýnd er í Regnboganum. Hugljúf og fersk
kvikmynd um skrautlegt fjölskyldulíf þar sem fegurðarsamkeppni fyrir ungar stúlkur er
í aðalhlutverki. Það er Græna Ijósið sem stendur að sýningum á myndinni en fyrirtækið
ætlar á næstunni að standa fyrir sýningum á fleiri óháðum kvikmyndum.
L-I
k-
\\r
Lisa væxitanleg
Lisa Ekdahl heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 1. mars og föstudaginn 2. mars á Græna
hattinum á Akureyri og laugardaginn 3. mars í Víkurbæ, Bolungarvík. Lisa Ekdahl sló í
gegn með hljómplötunni Vem vet árið 1994 en það var hennar fyrsta plata. Sú plata er ein
sú söluhæsta á Norðurlöndunum til þessa dags. Miða má nálgast á www.midi.is.
TIHiIDIÍTi
Sinfónían í
skammdeginu
Ljúf tónlist léttir luníina í myrku
skammdeginu og Sinfóníuhljóm-
sveit (slands lætur svo sannar-
lega ekki sitt eftir liggja í þeim
efnum. Hér má sjá nokkur dæmi
úr dagskrá hljómsveitarinnar á
næstu vikum.
Rússland í aðalhlutverki
Unnendur rússneskrar tónlistar
ættu að kætast í mars
því þann 15. mun
sveitin flytja verk
eftir Stravinskíj,
Rachmaninov og
Sjostakovitsj.
Einsöngv-
arar eru
þau Tatiana
Monogarova
og John Tom-
linson.
f
Fiðlukonsertar
Guðný Guðmundsdóttirfiðlu-
leikari stígur fram
í sviðsljósið og
leikur einkleik
með sveitinni
í apríl. Á
efnisskránni
eru verk
eftir Rossini,
Dvorák og
Rachmaninov.
Owain Arwell
Hughes
heldur um
tónsprot-
ann.
Sellókonsert
Þann 1. mars leikur Gunnar
Kvaran sellóleik-
konsert eftir
John Spe-
ight, Þriðju
sinfóníu
Beetho-
vens og Le
Corsair eftir
Hector Berlioz
Hljómsveitar-
stjóri er Lawr-
ence Renes.
Ashkenazy
Búast má við fjölmenni á tónleik-
ana 12. apríl en þá mun
hinn ástsæli Vladimir
Ashkenazy sveifla
tónsprotanum
af sinni alkunnu
snilld. Á efnisskrá
eru verk eftir Mend-
elsohn, Schumann,
og Berlioz.
* Mótettukór
Hallgríms-
kirkju Páskatónleikar Sinfóníunn-
ar verða að þessu sinni haldnir
29. mars og verða einkar veg-
legir. Mótettukór Hallgrímskirkju
mun stiga á stokk með sveitinni
og flytja Paulus eftir Felix Mend-
elsohn. Stjórnandi er Hörður
Áskelsson.
I leit að fullkomnun
að dró til tíðinda í
íslensku leikhúslífi í
byrjun vikunnar en á
mánudag var tilkynnt
um úthlutanir styrkja
Leiklistarráðs til atvinnuleikhópa.
Tíu verkefni hlutu styrk að þessu
sinni en styrkumsóknir voru alls 69
talsins. Halldóra Malín Pétursdótt-
ir var ein þeirra sem höfðu ástæðu
til að kætast en hún hlaut styrk til
uppsetningar á verki sínu Power
of Love (Hið fullkomna deit) sem
frumsýnt verður sunnudaginn 14.
janúar í Austurbæ. „Ég var svo æst
þegar ég fattaði hvað stóð í bréfinu
að það sprakk æð í auganu á mér,“
segir Halldóra Malín hlæjandi. „Ég
er auðvitað alveg í skýjunum enda
breytir þetta miklu fyrir verkefnið."
Ástin í aðalhlutverki
Halldóra Malín Pétursdóttir út-
skrifaðist frá Listaháskóla íslands
vorið 2006 með BFA-gráðu í leiklist.
Hún segir hugmyndina að verkinu
Power of Love hafa kviknað út frá
einstaklingsverkefni sem hún vann
undir stjórn Kristínar Eysteinsdótt-
ur þegar hún var í náminu. Power
of Love lýsir einu afrifaríku kvöldi
í lífi konu sem þráir fátt heitar en að
finna ástina. Þetta kvöld ætlar hún
að finna ástina og lifa hamingjusöm
til æviloka. Til þess að ekkert fari úr-
skeiðis skipuleggur hún allt í þaula
og reynir af veikum mætti að öðlast
fullkomnun á sem flestum sviðum.
„Þessi kona er nokkurskonar hallær-
isleg útgáfa af sjálfri mér. Ég fór að
skoða það sem ég skammaðist mín
fyrir í eigin fari og þá sprettur þessi
kona fram nærri fullsköpuð. Hún
er ekki beint vansæl í lífinu en hún
þráir ákaflega að verða ástfangin
og vera elskuð. Hún vill verða eftir-
sóknarverð kona í öllum skilningi,
hvort sem um er að ræða í starfi,
eldhúsinu eða svefnherberginu og
það gengur kannski ekki alveg upp
frekar en hjá okkur hinum.“
Gagnvirkt leikhús
Áhorfendur geta tekið þátt í að
móta kvöldið mikilvæga og segir
Halldóra árangurinn ráðast dálítið
af viðbrögðum salarins. „Kvöldið
getur lukkast vel en það getur líka
farið illa; það fer eiginlega eftir því
hvernig salurinn tekur við sér,“ seg-
ir Halldóra leyndardómsfull.
Hún segist ekki hafa hugsað verk-
ið sem ádeilu af neinu tagi. „Þetta
var ekki hugsað sem ádeila þótt það
sé auðvitað hægt að finna slíkt í öll-
um verkum. En ég lagði ekki upp
með pólitískt verk. Ef það er verið
að deila á einhvern þá er það helst
ég. Það er margt byggt á mínu eig-
in lífi og yfirleitt eru það einhverjir
fordómar sem ég hef fyrir umhverf-
inu. Ég var til dæmis með hræðilega
tásufóbíu sem kemur töluvert við
sögu í verkinu.“
Power of Love verður aðeins sýnt
í eina viku í Austurbæ en svo heldur
Halldóra i víking með verkið til Króa-
tíu og Slóveníu. „Þá er áætlað að æfa
tveggja manna hljómsveit sem mun
,performera live“ með mér á sviðinu,
og svo kem ég heim með bandið og
við munum að öllum líkindum sýna
nokkrar sýningar í bænum og svo á
að halda út á land, nánar tiltekið til
Egilsstaða og sjá hvað heimafólkinu
mínu finnst um verkið.“
Miðasala er í Austurbæ og á midi.
is.
hilma@bladid. net
Anna Karenína
í desember stóð MÍR fyrir skálda-
kvöldi þar sem Lév Tolstoj og verk
hans voru í aðalhlutverki. í fram-
haldi af þessari kynningu sýnir fé-
lagið kvikmynd Clarence Brown frá
árinu 1935 sem gerð er eftir skáld-
sögunni ástsælu um Önnu Karen-
ínu. Margir hafa gert áhugaverðar
tilraunir til þess að færa skáldsög-
una í kvikmyndaformið og þykir
Brown hafa tekist einstaklega vel
upp og Greta Garbo er heillandi
í hlutverki Önnu. Leikkonurnar
Vivien Leigh og Tatjana Samajlova
hafa báðar túlkað Önnu eftirminni-
lega og er gaman að bera saman
frammistöðu þessara þriggja goð-
sagnakenndu leikkvenna í hlut-
verki hinnar dularfullu Önnu. Að-
almótleikari Gretu í bandarísku
kvikmyndinni, sem sýnd verður á
sunnudaginn, er Fredrick March
en af öðrum gamalkunnum leikur-
um má nefna Freddie Batholomew,
Maureen O'Sullivan og Basil Rath-
bone. Ýmislegt fleira spennandi er
á dagskrá hjá MÍR á næstu vikum
og má sem dæmi nefna Bernsku
Gorkís frá 1938 í leikstjórn Marks
Donskoj sem byggð er á fyrsta af
þremur bindum sjálfsævisögu rit-
höfundarins Maxíms Gorkí. Einn-
ig má nefna kvikmyndirnar Jörð
eftir Alexander Dovzhenko og
Trönurnar fljúga í leikstjórn Mik-
haíl Kalatozov. Sýningar fara fram
í MÍR-salnum við Hverfisgötu 105 á
sunnudögum klukkan 15.
Garbo Túlkar önnu á eftirminnilegan hátt.