blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 21
blaðiö
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 29
Menniitg og mtsnnleg geymd
Nigel Watson flytur erindi á vegum Félags þjóðfræðinga á (slandi í húsi
Sögufélagsins við Fischersund, fimmtudagskvöldið 11. janúar klukkan
20. Erindið nefnist Menningareign og munnlegar frásagnir og verður
flutt á ensku. Allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Fimmtudaginn 11. janúar klukkan 17:00 verður opnuð í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, málverkasýningin Einsýna
List, en sýningin er sett upp í samvinnu við Norðuriandahúsið í Færeyjum,
Listasafnið í Þrándheimi og Nordatlantens Brygge i Kaupmannahöfn.
Ömur framtíöar
Á hverju ári gefst þeim tón-
listarnemum sem skarað hafa
fram úr í sérstakri forkeppni á
vegum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands og Listaháskóla Islands,
einstakt tækifæri til að spreyta
sig með Sinfóníuhljómsveitinni.
Fimmtudaginn n. janúar munu
þrír nemendur stíga á stokk með
hljómsveitinni en tveir þeirra
koma úr Listaháskóla fslands og
einn úr Söngskóla Reykjavíkur.
í ár eru það þau Eygló Dóra
Davíðsdóttir fiðluleikari og
Grímur Helgason klarínettuleik-
ari úr Listaháskólanum og Egill
Árni Pálsson tenór úr Söngskól-
anum í Reykjavík sem munu
troða upp.
Á tónleikunum, sem hefj-
ast klukkan 19.30, mun Egill
syngja aríur úr I Lombardi,
Rigoletto og La Traviata eftir
Verdi, Grímur mun leika klarí-
nettukonsert eftir Gerald Finzi
og Eygló Dóra leikur fiðlukons-
ert eftir Max Bruch. Auk þess
mun Sinfóníuhljómsveitin leika
forleikinn vinsæla úr Vilhjálmi
Tell. Hljómsveitarstjóri er Esa
Hakkila. Tónleikagestir geta
reiknað með eftirminnilegri
túlkun enda er hér um að ræða
framtíðareinleikaraþjóðarinnar
sem án efa eiga eftir að gera
stóra hluti í framtíðinni.
Á náttborðið
Eftir miskunnarlausa, íslenska jóla-
bókaflóðið er gott að leita skjóls
fyrir utan landsteinana og kanna
hvað er á boðstólum í girnilegum
rekkum erlendra bókaverslana.
MARY '
MAGDALEN
Fráliðnum öldum
María Magdal-
ena og samband
hennar við Jesú
Krist sjálfan
hefur orðið
mörgum hug-
leikið í gegnum
tíðina og ekki
síst undanfarin
misseri í kjölfar
útkomu Da Vinci lykilsins eftir Dan
Brown árið 2004 þar sem viðraðar
eru hugmyndir um að María og
Jesú hafi jafnvel gengið í hjóna-
band og átt barn saman. Nú er
hægt að fræðast meira um þessa
dularfullu konu en í lok ársins
kom út hjá Random House bókin
Mary Magdalene eftir sagnfræð-
inginn Susan Haskins. Bókin fékk
prýðilega dóma í Times Literary
Supplement á dögunum og þykir
Haskins hafa tekist vel upp að
skrifa skemmtilega sögu sem rís á
traustum grunni heimilda.
London á 19. öld
Fyrir þá sem hyggja á að heim-
sækja Lundúnir á næstu vikum
er tilvalið að næla sér í bókina
London á nítjándu öld eftir Jerry
White og lúra yfir henni í flugvél-
inni. White dregur upp spennandi
mynd af borg-
inni á miklu
breytingaskeiði.
Fólksfjöigun
var gríðarleg,
vaxtarverkirnir
miklir og það
gat verið erfitt
að koma reglu
á borg í hverf-
ulum heimi.
L.ONDO
Nýtt frá Grisham
John Grisham á sér dyggan aðdá-
endahóp hér á landi sem annars
staðar. I október á síðasta ári
sendi hann frá sér sína síðustu
bók og ber hún titilinn Saklausi
maðurinn. Bókin byggir á sögu
hafnaboltastjörnunnar Ron Willi-
amsson sem ákærður var árið
1982 fyrir morðið á Debru Sue
Carter. Eftir löng og ströng réttar-
höld hlaut Williamson dauðadóm
þótt ýmsum
þætti sá dómur
á veikum
grunni reistur.
Eftir sautján
ára fangelsis-
vist var honum
sleppt, enda
þóttu ótal
maðkar vera í
mysunni. í bókinni kafar Grisham
djúpt í þessa uggvænlegu sögu
og dregur upp mynd af manninum
sem bandaríska réttarkerfið rændi
lífinu.
www. hotelselfoss. i s
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 480 2500 og info@hotelselfoss.is
Ráðstefnur - Fundir - Árshátíðir -Veislur
HotelSelfoss