blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 23
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 31
heimili
Lifandi heimili
Nú þegar jólaskrautið er komið ofan í kassa getur
íbúðin virst heldur tómleg. Það er því tilvalið að
lífga upp á hana með lifandi blómum, skemmti-
legum listaverkum eða nýjum púðum.
Raunveruleg
Það eru ekki allir með græna fingur og þá getur reynst erfitt
að halda blómum lifandi. Nú til dags ertil mikið úrval silki-
blóma sem eru mjög raunveruleg og auk þess má setja þau í
þotta með mold til að gera þau enn raunverulegri.
heirnili@bladicl.net
Skipulagt
þvottahús
Það má segja að það séu tvö lög-
mál sem gilda í þvottahúsinu; hið
fyrra er að smápeningar láta í sér
heyra í þvottavélinni og hið síðara
að sokkar eiga það til að hverfa
á undarlegan hátt í þvottahúsinu.
Sem betur fer er til góð leið til að
koma aftur á röð og reglu í þvotta-
húsinu en þá er gott að vera með
körfu og dollu á hillu í þvottahúsinu.
Um leið og þú ferð í gegnum þvott-
inn hendirðu öllum smápeningum f
dolluna en öllum stökum sokkum í
körfuna. Reglulega geturðu farið í
gegnum sokkakörfuna og eytt smá-
peningunum.
Aukið pláss
Flestir húsráðendur kannast við
þann dapra sannleik að það er
aldrei nóg pláss. Sama hve stórt
húsið er þá vantar alltaf aðeins
meira pláss fyrir alls kyns dót sem
safnast saman. Margir gleyma þó
plássinu undir rúminu en þar er
heilmikið pláss sem oftar en ekki er
ónotað. I mörgum verslunum má fá
þægilega kassa á hjólum sem má
renna undir rúmið og þá sjást þeir
ekkert. Eins er hægt að láta smíða
þægilegar skúffur undir rúmið sem
eru þá sýnilegar en geta geymt heil-
mikið af alls kyns dóti, til dæmis
rúmföt og rúmteppi. Þar með er
plássvandamálið leyst, að minnsta
kosti í bili.
Seríur allt árið um kring
Hlýleg birta í janúar
í kjölfar hátíðarhaldanna í síðasta
mánuði er janúar genginn í garð
með tilheyrandi skammdegi og
kulda. Jólaljósin eru farin að hverfa
úr gluggum og trjám og tilveran
virðist eilítið litlausari. Ingi Már
Helgason, lýsingarráðgjafi hjá Lum-
ex, ráðleggur fólki að hafa seríur
lengur uppi til að mynda skemmti-
lega stemningu í skammdeginu.
„Jólaljósin gefa einstaklega skemmti-
lega birtu og það er ekkert eitt sem
kemur í staðinn fyrir þau. Reyndar
hefur það aukist verulega að fólk
noti alls kyns seríur allt árið um
kring og það er mjög góður kostur.
Þá er best að halda eftir svokölluð-
um stemningsseríum en taka niður
þær seríur sem eru mjög jólalegar."
Hlýleiki og stemning
Ingi segir að ráðlegt sé að skoða
lýsinguna hjá sér þegar öll jólaljós-
in eru farin og kanna hvað vantar
upp á. „Oftast vantar bara einn
lampa eða eitthvað smávægilegt
til að ná þessari stemningu og hlý-
leika sem jólaljósin gefa. Þá er ég
meira að hugsa um lampa sem gefa
þægilega birtu neðarlega heldur en
standlampa sem lýsa upp í loftið,“
segir Ingi og bætir við að hann telji
að dimmerar séu nauðsynlegir til
að stjórna lýsingunni, sérstaklega
á þessum tíma. „Það er lykilatriði
að setja dimmera á lampa eða loft-
ljósin því þannig er hægt að búa
til enn meiri stemningu. Janúar er
frekar svartur tími og sérstaklega
ef það er ekki snjór og því er mjög
fallegt að sjá upplýsta garða. Það
er til dæmis mjög skemmtilegt og
einfalt að kaupa ljós sem er stungið
niður í jörðina og lýsir upp gróður
og tré. Þannig myndast afskaplega
skemmtileg stemning og það má
jafnvel velja smá lit á peruna. Ef það
er snjóföl á trjánum þá er þetta enn-
þá fallegra."
Ljós eykur orkuflæði
Ingi talar um að ljósið sé ekki
einungis gagnlegt til að lýsa okkur
heldur séu jákvæð áhrif þess sönn-
uð. „Það er margsannað að meira
ljós eykur orkuflæði í líkamanum
og því minna ljós sem einstakling-
ur hefur því slappari og sljórri getur
Ingi Már Helgason: „Það
er margsannað að meira Ijós
eykur orkuflæði ílíkamanum
og þvíminna Ijós sem ein-
staklingur hefur því s lappari
og sljórri getur hann orðið." W
hann orðið. Skammdegisþunglyndi
í janúar máað hluta til rekja tilbirtu-
skilyrða okkar. Það er því mikið at-
riði fyrir fólk almennt að auka ljósið
og ekki síst fólk sem þjáist af vanlíð-
an á þessum tíma. Hví ekki að prófa
að auka við sig ljós og sjá hvort það
hjálpar eitthvað,“ segir Ingi en tekur
fram að of mikil birta sé hins vegar
ekki af hinu góða. „Með of mikilli
birtu geturðu fengið hausverk, mí-
greni og sviða í augun. Það er ein-
staklingsbundið hve mikla birtu
fólk þarf og hver og einn þarf því að
átta sig á hvers konar áhrif ljós hef-
ur á hann.“
loa@bladid.net
svanhvit@bladid. net
Skemmtileg birta „Jola
Ijósm gefa emstaklega
skemmtilega birtu og
það er ekkert eitt sem
kemur í staðinn fyrir þau.
Afslappandi athvarf
Það er jafnan mikið um gestagang,
at og annríki í desember en janúar
er þá frekar notaður til að slappa af
og hafa það gott. Svefnherbergið er
tilvalinn staður til að slaka á enda
er svefnherbergið það herbergi sem
ætti að vera athvarf frá annríki
hversdagsins. Hins vegar gerist það
oft að svefnherbergið hefur horfið
frá því að vera það athvarf sem það
á að vera, sem getur leitt til svefn-
leysis og annarra vandamála. Þetta
má auðveldlega laga:
■ Færðu sjónvarpið úr svefnher-
berginu því áhorf á sjónvarp í rúm-
inu hamlar góðum svefni.
■ Færðu tölvuna úr svefnherberg-
inu svo álag og áhyggjur starfsins
festi ekki rætur í svefnherberginu.
■ Málaðu herbergið í svölum af-
slappandi litum en forðastu skæra
og bjarta liti sem æsa frekar upp
heldur en að vera afslappandi.
■ Ef mögulegt er skaltu ekki hafa
svefnherbergið við hlið fjölskyldu-
herbergisins, þar sem hljómtæki,
sjónvörp og aðrar háværar græjur
láta í sér heyra.
■ Notaðu lágværa vekjaraklukku
sem heyrist ekkert í fyrr en hún
vekur að morgni. Best er að vera
með klukku sem hentar viðkom-
andi og vekur ekki með skerandi
hávaða heldur jafnvel útvarpi.
■ Notaðu sólargluggatjöld. Jafn-
vel þó sólin skíni ekki er alltaf ein-
hver birta sem síast inn og truflar
svefninn.
■ Vertu viss um að hurðir og
gluggar séu vel þétt svo enginn
súgur myndist.
■ Notaðu rakatæki svo rakastig í
herberginu sé rétt. Þurrt loft getur
truflað svefn.
■ Skipuleggðu fataskápa og vertu
viss um að föt og aðrir persónu-
legir munir séu á réttum stað. Her-
bergi sem er óskipulagt og fullt af
drasli getur valdið álagi. Ekki reyna
að sofna með augun á fleygiferð
um herbergið. Sofðu vel þar sem
þú veist að allt er á sínum stað.
Gluggar
& hurðir
Ekkert
ii\av»aW
Gluggar, hurðir, og svalahurðir
úr viðurkenndu PVC-U hágæða
efnifrá
Kjamagluggar hafa einstakt
einangrunargildi og eru til i
mörgum gerðum.
íslensk framleiðsla og
áratuga reynsla
Sparaðu tíma • leitaðu tilboða
netfang: gluggar@vortex.is
c
Kjarnagluggar
Skemmuvegi 46 • 200 Kópavogi
slmi 564 4714 • Fax 564 4713
www.kjarnagluggar.is