blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 24

blaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 24
32 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 blaðið íþróttir ithrottir@bladid.net Tiger langríkasti kylfingur i heimi Tiger Woods er enn og aftur tekjuhæsti kylfingur heims þegar tekið er tillit til verölaunafjár og tekna frá styrktaraðilum, samkvæmt golftímaritinu GoifDigest. Alls þénaði Woods yfir 7 milljarða íslenskra króna á nýliðnu ári en á þeim 11 árum sem Woods hefur leikið sem atvinnu- maður hefur hann halað inn tæplega 46 milljarða króna. Næstur á eftir Woods var bandariski kyifingurinn Phil Mickelson en tekjur hans á síðasta ári námu rúmum 3 milljörðum króna. Skeytin inn Peter Kenyon, stjórnarfor- maður Chekea, segir að ekkert sé til í fréttum þess efnis að Jose Mourinho sé á förum frá félaginu en sá orðrómur hefur verið á kreiki að samband Mourinhos við eiganda félagsins, Roman Abramovich, sé orðið ansi stirt. Hefur Mourinho meðal annars verið orðaður sem arftaki Fabio Capello hjá Real Madrid. „Svona er ákafinn í Englandi. Það er ekkert til í þessu. Við erum í öðru sæti í deildinni og komnir áfr am í Meistaradeild- inni, bikarkeppninni og í deildabik- arnum,“ seg- ir Kenyon. Hollenska liðið PSV virðist ætla að binda enda á mar- tröð spænska framherjans Albert Luque hjá Newcastle með því að bjóða honum 18 mánaða lánssamning. Luque gekk til liðs við enska félagið sumarið 2005 fyrir 9 millj- ónir punda frá Deportivo en hefur gengið afleitlega inni á leik- vellinumoglítið fengið að spreyta sig að undanförnu. Graeme Souness hyggur á endurkomu 1 enska boltann: Vill kaupa Ulfana ■ Kaupin gætu fariö í hundana ■ Forráöamenn félagsins foröast svör Hinn skapbráði Skoti Graeme Sou- ness hefur gert 20 milljón punda til- boð í hið fornfræga knattspyrnulið Wolverhampton Wanderers að eigin sögn. Souness, sem hefur verið utan sviðsljóssins síðan hann hætti sem knattspyrnustjóri Newcastle í febrúar 2006, staðfesti við breskt dagblað að hann hefði lagt fram tilboðið þrátt fyrir að forráðamenn Úlfanna neiti þeim fréttum: „Það er ekki satt að við höfum verið í viðræðum við Souness eða neinn honum tengdan varðandi kaup á liðinu. Annars fara okkar viðskipti ekki fram í fjölmiðlum, samkvæmt stefnu félagsins, heldur greinum við frá því að fyrra bragði ef eitthvað fréttnæmt gerist,“ sagði Jez Moxey, STJÓRAFERILL SOUNESS 1986-1991 Rangers 1991-1994 Liverpool 1995-1996 Gaiatasaray 1996-1997 Southampton 1997 Torino 1997-1999 Benfica 2000-2004 Blackburn 2004-2006 Newcastle framkvæmdastjóri liðsins. Souness sagðist koma af fjöllum þegar hann heyrði yfirlýsingu Moxeys: „Ég veit ekki af hverju Moxey heldur þessu fram. Ég lagði fram tilboð í síðustu viku, eftir að hafa skoðað fjármál klúbbsins, upp á 20 milljónir punda. Ég talaði bæði við Sir Jack Hayward eiganda og Jez Moxey sem neituðu tilboðinu þá. En það var í síðustu viku og tilboðið stendur enn.“ Souness segist hafa fjársterkan aðila á bak við sig sem hann neitar að gefa upp hver er. Hann segist sjá mikla möguleika í félaginu og segir að hann sé ekki eins og hver annar útlendingur sem sjái aðeins skjóta gróðavon í kaup- unum: „Þetta er gamalgróið og gott félag með sterka innviði. Ég sé mikla möguleika í því og mun reyna að auka fjárstreymi til að koma liðinu á meðal þeirra bestu r r « a ný. Leiða má líkur að því að ef af kaup- unum verður muni Souness hugsan- lega setjast sjálfur í stjórastólinn. Hann hefur á löngum ferli sínum þjálfað Rangers, Liverpool, Galat- asaray, Southampton, Torino, Benf- ica, Blackburn og Newcastle en ár- angur hans hefur verið umdeildur því með enskum liðum hefur hann mest náð 43-37% vinningshlutfalli, sem hann afrekaði með Newcastle. Hann þykir harður í horn að taka og frægt er atvikið þegar hann tæklaði Dwight Yorke harkalega á æfingu með Blackburn Rovers, þá sem þjálf- ari, sem hefði getað fótbrotið leik- manninn. Souness sagðist aðeins vera að sýna honum hvernig ætti að leggja sig fram. A tvinnua uglýsingar Augíýsingasíminn er 510 3735 PÓSTURINN Bílstjórar Útkeyrsludeild óskar eftir starfsfólki til framtíðarstarfa í útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu, á minni sendibílum. Unnið er á tvískiptum vöktum sem skiptast vikulega, aðra vikuna frá kl. 07.30-16.55 og hina vikuna frá kl.16.30-22.15. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Hæfniskröfur: • Bílpróf í gildi í minnst 2 ár (fullnaðarskírteini) • Hreint sakavottorð • Stundvísi, snyrtimennska og góð þjónustulund Umsóknum skal skilað til: íslandspóstur hf. Póstmiðstöð Stórhöfða 32 110 Reykjavík Merkt: Bílstjórar Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu íslandspósts: www.postur.is Laust er til umsóknar starf umbrotsmanns Toppskórinn leitar eftir starfsmanni í almenn verslunarstörf! Umsóknir sendist á: hermann@sporbaugur.is Laust er til umsóknar starf blaðamanns Viðkomandi verður að hafa yfirgripsmikla þekkingu á þjóðfélagsmálum og vera mjög áhugasamur um fréttir. Umsóknir og ferilsskrá ber að senda til Trausta Hafliðasonar, ritstjóra Blaðsins, á netfangið: traustih@bladid.net. Viðkomandi verður að hafa gott auga fyrir útlitshönnun og góða þekkingu á Adobe InDesign. Umsóknir og ferilsskrá ber að senda til Trausta Hafliðasonar, ritstjóra Blaðsins, á netfangið: traustih@bladid.net. blaði

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.