blaðið - 11.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 11.01.2007, Blaðsíða 1
7. tölublað 3. árgangur fimmtudagur 11. janúar 2007 ■ KONAN „Það er vænlegra fyrir samfélagið að einstaklingar af báðum kynjum komi að stjórnun fyrirtækja," segir Þóranna l Jónsdóttir framkvæmdastjóri | síða36 ■ FOLK Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri og kjólameistari, segist vera í mjög skemmtilegri vinnu, ekki síst þegar hún tekur flíkur í meðferð | síða 31 Munur á hvernig feður og mæður nýta fæðingarorlof: Feður lengja ekki orlofið ■ Staða móður afgerandi ■ Útgjöld 6,6 milljarðar ■ Fæðingarorlof of stutt til breytinga Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Þótt sameiginlegur réttur foreldra til fæðingaror- lofs sé þrír mánuðir taka feður að jafnaði aðeins fæðingarorlof þá þrjá mánuði sem er sjálfstæður réttur þeirra. Það þýðir að mæður taka að jafnaði sex mánuði í fæðingarorlof. „Allar erlendar athuganir og tölur um hvernig fæðingarorlof er nýtt sýna að móðirin nýtir sameiginlega tímanný segir Ingólfur Gíslason, sviðsstjóri hjá Jafnréttisstofu. „Hérlendis er fæð- ingarorlofið enn stutt og langflestar konur kjósa að hafa barn á brjósti allavega í sex mánuði. Það er mjög ólíklegt að það verði einhver breyting á skiptingu orlofstímans á meðan fæðingarorlof er ekki lengra en það er,“ bendir Ingólfur á. Frá og með árinu 2003 hefur sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs verið þrir mánuðir eins og sjálfstæður réttur mæðra. Þessi þriggja mán- aða réttur er óframseljanlegur. Þar að auki eiga foreldrar sameiginlegan rétt til greiðslna í þrjá mánuði til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða parið skipt á milli sín. Hjá pörum þar sem faðirinn hafði nýtt eitt- hvað af sameiginlega fæðingarorlofinu var vinnu- markaðsstaða móðurinnar afgerandi þáttur, að því er könnun Ingólfs hefur leitt í ljós. „Ef hún er sjálfstætt starfandi eða háttsett í fyrirtæki eða stofnun, þannig að henni finnist hún illa geta verið frá, tekur karlinn hluta af sameiginlega or- lofinu eða allt orlofið." Feðurnir sem tóku fæðingarorlof vegna barna fæddra 2005 voru 3.464 en mæðurnar 3.345. Fleiri karlar eru á vinnumarkaði en konur og er munur- inn á fjölda karla og kvenna sem taka fæðingaror- lof talinn skýrast afþví. Styrki fengu 377 feður en 986 mæður. Útgjöld vegna fæðingarorlofsgreiðslna og styrkja voru tæpir 6,6 milljarðar króna fyrir árið 2005. Konur fengu 3,6 milljarða en karlar 2,9 millj- arða. Árið 2004 voru greiðslur vegna fæðingaror- lofs og styrkja rétt rúmir 6,6 milljarðar króna. Borgarstjóri heiðrar Þórólf Þórólfur Valgeir Þorleifsson stendur hér með borgarstjóranum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni (til vinstri). Þórólfur hóf störf hjá Sorphirðunni eða Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar 6. janúar 1957. Hann var þá 16 ára gamall. „Þegar ég byrjaði í ruslinu voru olíutunnur notaðar undir sorp og þær keyrðar á trillum," er haft eftir Þórólfi á vef umhverfis- sviðs borgarinnar. Hann á því fimmtfu ára starfsafmæli og var heiðraður af borgarstjóra Reykjavíkur í gær. nnap^ » síða 42 1 VEÐUR » síða 2 » SÍÖur 19-30 Sjaldan í bíó „Ég fer afar sjaldan í bíó því stúdentapólitíkin tekur mestallan frítíma minn,“ segir hin unga háskólastúlka Alma Joensen. Ofankoma minnkar Léttir til suðvestanlands. Lægir og dregur úr ofan- komu. Vaxandi vindur um landið vestanvert seint í dag með éljagangi. Frost 1 til 8 stig. Sérblað um Heimili og hönnun fylgir með Blaðinu ídag Veldu 5 stjörnu öryggi lífsins vegna! Renault Laguna II agu Nýskr. 01.2003, 5 dyra, ssk., ekinn 75 þ. Verð kr. 1.590.000 Tilboð kr. 1.280.000 Renault Laguna II Nýskr. 01.2006, 5 dyra, ssk., ekinn 7 þ. VerO kr. 2.790.000 Renault Megane II Sport T Nýskr. 09.2004, 5 dyra, bsk., ekinn 42 þ. VerO kr. 1.680.000 Renault SCENIC II Nýskr. 06.2005 , 5 dyra, ssk., ekinn 17 þ. VerO kr. 2.520.000 A k z i|Q: lan i y Grjóthálsi 1 bilaland.is 1 575 1230 > /\ r 'J í FULLUM GANGI habitat^opiÐALLADAGA /o AFSLÁTTUR Askalind 1.201 Kópavogur Sími 568 9700 www.habitat.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.