blaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 1
8. tölublað 3. árgangur
föstudagur
12. janúar 2007
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
■ MATUR
200 gestir sátu hátíðarkvöldverð Klúbbs
matreiðslumeistara, þar sem ellefu réttir
voru fram bornir. Bjarki Hilmarsson
er ánægður með kvöldið |síða26
! ■ A
■ FOLK
Emm School of Make-up er tveggja ára.
Steinunn Þórðardóttir yfirkennari ætlar ca>’
að þrífa skólann um helgina og sleppa
djamminu | síðais
Alþýðusamband íslands undirbjó málaferli gegn álverinu í Straumsvík:
Alcan semur við rekna
■ Starfsmennirnir þrír sáttir ■ Trúnaður um samninginn ■ Engin ástæða til frekari aðgerða
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Alþýðusamband íslands hugðist stefna Alcan til
þess að sækja rétt þriggja starfsmanna sem sagt
var upp störfum í haust. Mikil óánægja skapað-
ist vegna uppsagnanna, einkum þar sem yfir-
stjórn fyrirtækisins gaf ekki ástæður fyrir þeim.
Alcan lagði fram sáttaboð á síðustu stundu.
Hans Hafsteinsson rafvirki er einn þeirra
þriggja sem sagt var upp störfum og segir hann
að Alcan hafi átt frumkvæði að sáttafundinum.
„Þetta var fínt að ná þessu samkomulagi og við
erum sáttir. Ég má ekki segja út á hvað þetta
gengur því við vorum beðnir sérstaklega um að
halda því leyndu," segir Hans.
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan
sem rekur álverið í Straumsvík, segir alveg ljóst
að tíma fyrirtækisins á næstunni verði betur
varið í annað en að standa í málaferlum. „Slíkt
getur tekið langan tíma og verið kostnaðarsamt.
Sátt var gerð í málinu og það tilheyrir nú fortíð-
inni,“ segir hann.
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnað-
arsambandsins, segir að til umræðu hafi átt að
koma um málshöfðunina á miðstjórnarfundi
ASÍ í gær. Þeirri umræðu var frestað þegar Alcan
lagði fram sáttaboð. „Ég veit ekki betur en að
allir séu sáttir með þessa leið. I kjölfarið þykir
ekki ástæða til frekari aðgerða vegna þessara upp-
sagna eða ásakana sem fram komu,“ segir hann.
„Við látum ásakanir fyrirtækisins falla niður og
höfum þetta að baki. Þessi ágreiningur er bara
búinn og ég held að samkomulagið sé gott fyrir
alla aðila," segir Guðmundur að lokum.
Sjá einnig síðu 4
FRETTIR
Gæslan starfar
með Dönum
„Þetta er pólitísk viljayfirlýsing um
aö þróa hiö góða samstarf áfram
og gefa færi á því að víkka það út,“
segir Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra.
Soren Gade, varnarmálaráðherra Dan-
merkur, og Björn Bjarnason undirrituðu
í gær samkomulag um aukið samstarf
Landhelgisgæslunnar og dönsku
strandgæslunnar.
Nær samkomulagið meðal annars til
björgunarstarfa og almenns eftirlits á
hafsvæðunum í kringum landið.
Fram kom í máli Björns að Islendingar
kanni einnig möguleika á því að ganga
til þríhliða samkomulags við Breta,
Bandaríkjamenn og Kanadamenn um
öryggismál á Norður-Atlantshafi. „Við
erum fúsir til að eiga samstarf við aðrar
þjóðir og hefur meðal annars veriö talað
um að við gerðumst aðilar að þríhliða
samkomulagi Breta, Bandaríkjamanna
og Kanadamanna um öryggismál á
Norður-Atlantshafi. Við erum að vinna
að því ásamt viðræðum við aðrar þjóðir."
Saren Gade sagði dönsk stjórnvöld hafa
áhuga á að efla samstarf milli þjóðanna
enn frekar á komandi árum enda geti
þær báðar hagnast á slíkri samvinnu.
„Það er ekkert því til fyrirstöðu að þróa
þetta samkomulag á næstu árurn."
Aukið samstarf við Dani Landhelgisgæslan og danska strandgæslan gerðu í gær með sér samkomulag um aukið samstarf í eftirlits-
og björgunarstörfum á hafsvæðunum í kringum landið. Af því tilefni var efnt til sameiginlegrar björgunaræfingar i Reykjavíkurhöfn með
þátttöku þyrlusveitar Gæslunnar og þyrlusveitar danska varðskipsins Triton.
ORfll AIJS
» sída 30 H VEÐUR
» siða 2 I VIÐTAL
» r'A'"' 24-25
Heiða í Bombay
„Það er æðislegt að búa í Bombay
þótt stundum sé borgin manni
ofviða," segir Heiða Rún Sigurðar-
dóttir, 24 ára fyrirsæta og dans-
ari, sem hefur unnið fyrir sér í
Indlandi síðustu misseri.
Frost og kalt
Vestlæg eða breytileg átt,
5-13 m/s og sums staðar
él, en heldur hvassari norða-
nátt um tíma norðvestantil
og éljagangur. Frost 0 til
10 stig.
Lífið er lærdómur
„Ég lít á lífið almennt sem lær-
dóm og það er líka mikill lær-
dómur í því fyrir mig að miðla
hugmyndum með þessum
hætti," segir Siggi pönk um
Anarkistabókasafnið.
FASTEIGNALÁN
í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
12. -14. janúar
ÚR KJÖTBORÐI
Nautahakk
kr. 998 kg
Nautagúllas
kr. 1.299 kg
Opiö alla daga frá kl. 10.-20.
S P,R
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
VEXTIR FRA
)EINS
3 A%
Miðað vlð myntkorfu 3, Litx