blaðið - 16.01.2007, Blaðsíða 1
MATUR
ÞRIÐJUDAGUR16. JANÚAR 2006
18
Þorrinn að
ganga í garð
20
Hollurog
bragðgóðurmatur
22
Terturnar
pantaðar á Netinu
23
Jólasleninu sagt
stríð á hendur
24
Úrvalsþorramatur
hjá Gaflinum
AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
á
Frá því að Veisluþjónustan
Skútan hóf göngu sína árið 1975
hefur hún staðið fyrir öllum
gerðum af veislum og skapað sér
nafn sem veitingaþjónusta með
mikla reynslu í matargerð. Skútan,
sem hefur verið í eigu sömu aðila
frá stofnún fyrirtækisins, sendir
matarbakka í fyrirtæki, sér um
mötuneyti fyrir eldri borgara og
starfrækir smurbrauðsdeild svo
fátt eitt sé nefnt.
Umþessarmundirstendurstarfs-
fólk Skútunnar í stórræðum við
að undirbúa þorrann, en að sögn
Sigurpáls Birgissonar, yfirkokks
Skútunnar, stendur mikið til. „Við
verðum með einnota bakka fyrir
fyrirtæki og stofnanir, auk þess
sem við verðum með þorrahlað-
borð fyrir stærri hópa. Hlaðborðin
eru mjög vinsæl hjá okkur, en oft er
þetta þannig að það safnast saman
hópar, til dæmis 10 manna, og
kaupa hjá okkur trog með súrmat
og öllu í,“ segir Sigurpáll, en hann
segir þorraveislur í heimahúsum
stöðugt vinsælli. „Það er orðið
meira um að fólk hittist í minni
hópum og panti matinn heim.
Þetta getur verið mjög skemmti-
legt og auðvitað stórsniðugt."
Sigurpáll bætir við að undir-
búningur þorrans hafi staðið yfir
síðan í september. „Við lögum
súrmatinn sjálfir og byrjum í sept-
ember að súrsa. Við setjum slátrið
og mysuna af stað, svo byrjum við
að sjóða punga, svið og annað til
að setja ofan í. Svo þarf auðvitað
að fylgjast rosalega vel með þessu
og skipta um mysu í desember.
Núna í janúar byrjar svo eltingar-
leikurinn um góðan harðfisk og
góðan hákarl.“
Frekari upplýsingar um veislu-
þjónustu Skútunnar má finna á
vefsíðunni www.skutan.is.
Hugsaðu um hollustuna!
Ef þú vilt að hrökkbrauðið þitt sé hollt en líka sérlega bragðgott
skaltu velja Burger hrökkbrauð. í því er enginn viðbættur sykur
og ekkert ger. Svo er bragðið er ómótstæðilegt. Það er engin
tilviljun að Burger er mest selda hrökkbrauðið á íslandi.